Page 1 of 1

Til sölu vetrardekk á stálfelgum.. ódýr og hálfslitin

PostPosted: Thu 23. Jan 2003 21:53
by saemi
Þetta eru 205/60 15" Dekk af gerðinni Goodyear. þau eru á 6.5x15 stálfelgum. 5 gata og offset er 47mm.

Þetta á að koma undan 525ix touring, en passar ekki undir hann! Pabbi fékk þetta með bílnum, en þetta passar ekki. Offsett-ið er samt rétt fyrir touring !

Verð 7000 kall.

Sæmi

PostPosted: Thu 23. Jan 2003 23:15
by sh4rk
Sæmi ég er til í þetta vantar alminileg vetrar dekk

PostPosted: Fri 24. Jan 2003 00:42
by saemi
Ég er samt ekki viss um að þetta offset passi fyrir þig. Þetta er allt annað offset en á venjulegum E34 bíl, þar er það um 20.

Felgan situr mjög innarlega, eða um 2.5cm innar en á venjulegum E34 (fjórhjóladrifs búnaðurinn gerir það að verkum að felgan þarf að sitja mun utar og því situr hún miklu innar á venjulegum bíl).

En ég hef ekki mátað þetta svosum og "speiserar" gætu reddað þessu.

Sæmi

PostPosted: Fri 24. Jan 2003 01:36
by sh4rk
var nu bara að spá í dekkin er með felgur sem þetta passar á

PostPosted: Fri 24. Jan 2003 01:53
by bjahja
Passar þetta undir minn E 36 323?

PostPosted: Fri 24. Jan 2003 08:22
by saemi
Ég bara veit ekki hvort þetta passar undir þinn. Athugaðu bara hvaða offset þú ert með (stendur á öllum felgunum). Ef þú ert með þrjátíuogeitthvað þá gæti þetta gengið...

Á felgunum setendur t.d. 6 1/2 j ... bla bla.. svo stendur annarsstaðar is xx, þar sem xx er offset í millimetrum.

Sæmi

PostPosted: Fri 31. Jan 2003 14:28
by bjahja
Mitt er IS 47 :cry:
Þetta passar semsagt ekki

PostPosted: Fri 31. Jan 2003 15:48
by saemi
offset er 47mm.


Víst gengur það ! Þetta er sama offset !!!

Það sem ég meinti er að ef þetta er þrjátíuogeitthvað OG UPPÚR ....

Sæmi

PostPosted: Fri 31. Jan 2003 15:51
by arnib
bíddu bíddu
er svona rosalegt offset á E36?

Mér skildist einhversstaðar að offsetið á e30 iX væri alveg svaðalega mikið, en svei mér þá er það ekki bara jafnt og þetta, (Eða minna?)

Skrýtið.

PostPosted: Fri 31. Jan 2003 16:02
by oskard
Þetta er meira offset en á e30 iX ... það er 41mm fyrir 15"

PostPosted: Fri 31. Jan 2003 23:15
by saemi
Jæja, dekkin og felgurnar er selt.

Ég vona að það sé ekki einhver ósáttur, en ég tók bara þann fyrsta sem sendi mér símanúmer með, og hringdi í hann (pabbi gerði það nú reyndar).

Ég bara átti ekki von á að það væru svona margir áhugasamir ! Hefði átt að setja 10.000.- kall á þetta :wink: eheheeh

Með kveðju,
Sæmi

glæsilegt

PostPosted: Sat 01. Feb 2003 01:48
by ///MR HUNG
smellpassaði og svínvirkar á tombóluverði :D

PostPosted: Sat 01. Feb 2003 09:51
by saemi
Já.. er ekki gaman að fara ekki bara í hringi :lol: ....