Page 1 of 1
Vantar 17" á X5 e53

Posted:
Sun 21. Sep 2008 17:53
by JonHrafn
Er að kanna fyrir gamla hvað er í boði. Liggur ekki einhver á 17" felgum sem henta vel fyrir veturinn.
Ekki væri verra ef einhver gæti frætt mann um miðju og gatadeilingu á felgum sem passa undir e53.

Posted:
Mon 22. Sep 2008 11:40
by saemi
Alveg sama gatadeiling og miðja og á öllum öðrum BMW nema 4ra bolta og E39.

Posted:
Mon 22. Sep 2008 12:03
by JonHrafn
Gæti þá þessvegna lánað honum mínar undan e46? Datt ekki í hug að það myndi passa. Er með 16 vetrarfelgur sjálfur.

Posted:
Mon 22. Sep 2008 14:18
by Dóri-
JonHrafn wrote:Gæti þá þessvegna lánað honum mínar undan e46? Datt ekki í hug að það myndi passa. Er með 16 vetrarfelgur sjálfur.
Ef að það passar þá er það nú ekki fallegt því að offsettið er líklegast ALLT öðruvísi

Posted:
Mon 22. Sep 2008 14:35
by Berteh
Pabbi setti 18" felgur undan e60 undir e53 og er það hörkuflott

smellpassaði btw

Posted:
Mon 22. Sep 2008 14:48
by saemi
JonHrafn wrote:Gæti þá þessvegna lánað honum mínar undan e46? Datt ekki í hug að það myndi passa. Er með 16 vetrarfelgur sjálfur.
Offsettið er allt annað, ekki víst að það passi.
Berteh wrote:Pabbi setti 18" felgur undan e60 undir e53 og er það hörkuflott

smellpassaði btw
Akkurrat, það á að passa.

Posted:
Mon 22. Sep 2008 17:50
by JonHrafn
Offset .... Er það hversu djúpt/utarlega felgurnar eru ?

Posted:
Mon 22. Sep 2008 17:52
by Axel Jóhann
JonHrafn wrote:Offset .... Er það hversu djúpt/utarlega felgurnar eru ?
Jább.

Posted:
Fri 10. Oct 2008 20:03
by JonHrafn
Felgurnar sem eru undir honum heita Styling 63 V-Speiche ET 48 að aftan ET 45 að framan.
Felgurnar sem ég er að pæla hvort passi eru Styling 68 M-Doppelspeiche ET41 að framan ET 50 að aftan.
Núna munar ekki miklu á þessum tölum. Ætti þetta ekki að ganga upp? Auðveldara að pæla þetta við ykkur en að fara í felgumátanir, skelli mér í það ef þetta ætti að ganga upp.

Posted:
Sat 11. Oct 2008 00:49
by saemi
Það var sett af 17" minnir mig uppi í vöku á 80þús í vikunni.

Posted:
Sat 11. Oct 2008 01:31
by Angelic0-
JonHrafn wrote:Felgurnar sem eru undir honum heita Styling 63 V-Speiche ET 48 að aftan ET 45 að framan.
Felgurnar sem ég er að pæla hvort passi eru Styling 68 M-Doppelspeiche ET41 að framan ET 50 að aftan.
Núna munar ekki miklu á þessum tölum. Ætti þetta ekki að ganga upp? Auðveldara að pæla þetta við ykkur en að fara í felgumátanir, skelli mér í það ef þetta ætti að ganga upp.
Gæti passað... prófaðu að máta
Ég vil sjá myndir af þessu..