Page 1 of 1

Kostnaður við að panta dekk frá USA t.d. Tirerack

PostPosted: Sat 20. Sep 2008 19:48
by iceman3885
Hæ,
Afsakið ef þetta er í vitlausum flokki.
Ennnn....getur eh upplýst mig um ca kostnað við að panta t.d. 4 16 tommu dekk á felgna frá www.tirerack.com. Þetta fer væntanlega með DHL eða eh svipuðu félagi...eru kannski til hagkvæmari leiðir
Hvaða gjöld leggjast á þetta hérna heima....tollar/vsk osfrv???

Takk fyrir upplýsingarnar,
Iceman

PostPosted: Sat 20. Sep 2008 21:24
by Aron Andrew
Getur séð ca. verð með því að setja þetta inn á shopusa.is :)

PostPosted: Sun 21. Sep 2008 13:30
by BirkirB
Eða hringt í tollinn og spurt, það er líka svona "msn" á tollur.is þar sem þú getur talað við einhverja konu.

Svar frá tollinum

PostPosted: Tue 23. Sep 2008 13:37
by iceman3885
Jæja, þá er komið svar frá tollinum og datt mér í hug að deila því með ykkur ef eh annar en ég er í dekkjainnflutningshug... :)

"Daginn

fyrst er tollur á þitt kaupverð með sendingarkostnaði hingað (kaupverð erl. x gengi + fragt)

tollur er = 10% svo kemur gjald eftir þyngd pr. kg. sem er 35 kr. sem er úrvinnslugjald og vörugjald

svo er vsk ur af öllu saman = 24,5%

þannig að bæði þarf að vita þitt kaupverð og þyngd af dekkjunum

Kveðja,"

Þannig að nú getur hver reiknað fyrir sig.

PostPosted: Sat 27. Sep 2008 09:44
by gvessi
takk þetta var hjálplegt
kv
Gvessmann

PostPosted: Sat 27. Sep 2008 20:38
by Angelic0-
btw, tha tharftu ekki ad borga gummiskatt (urvinnslugjald) ef thu flytur inn dekk a felgum...

PostPosted: Sat 27. Sep 2008 22:56
by BirkirB
Er það? mig minnir að það hafi verið sagt við mig að gúmmígjaldið sé innifalið í einhverju af þessu...gæti alveg verið rangt