bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

22" FELGUM STOLIÐ!!!! 3 FUNDNAR!!
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=2&t=27594
Page 1 of 1

Author:  Höfuðpaurinn [ Mon 18. Feb 2008 10:12 ]
Post subject:  22" FELGUM STOLIÐ!!!! 3 FUNDNAR!!

[EDIT]

ég er búinn að fá 3 af 4 felgum til baka, þær fundust úti á víðavangi í Norðlingaholtinu, nú er bara að vona að sú síðasta finnist. Ég fór þarna um í morgun og leitaði að þeirri síðustu en fann hana ekki.

ég vil þakka öllum sem hafa lagt hönd á plóg í þessu máli og vona að einhver rekist á þessa síðustu.

[/EDIT]


Ég vaknaði upp við miður skemmtilega hringinu í morgun, þar sem mér var tilkynnt að bílinn minn stæði á búkkum.

Felgurnar eru 22" 5x115, dekkin 265/35, man ekki tegundina, ætti að vera eina svona settið á landinu, hef ekki séð þessar felgur neinsstaðar.

Allar ábendingar þegnar, annaðhvort hér, í síma 699-0735 eða til lögreglunnar.

Image
Image
Image
Image
Image
Image

Author:  Aron Andrew [ Mon 18. Feb 2008 10:20 ]
Post subject: 

Hvar var bíllinn?

Author:  Höfuðpaurinn [ Mon 18. Feb 2008 10:45 ]
Post subject: 

Aron Andrew wrote:
Hvar var bíllinn?


inni í bílageymslunni í Reiðvaði í Norðlingaholti.

Það var brotist inn í íbúð þar um daginn, en var ekki búið að skipta um lása á bílageymslunni, þannig að þetta eru sömu þjófar.

Author:  maxel [ Mon 18. Feb 2008 13:07 ]
Post subject: 

10 spoke 22" króm felgur ... leggja á minnið - check!


Hef auga með þeim :evil:

Author:  Höfuðpaurinn [ Tue 19. Feb 2008 11:39 ]
Post subject: 

uppfærsla á stöðu mála efst.

Author:  saemi [ Tue 19. Feb 2008 11:46 ]
Post subject: 

Veiiiii einn að nota eina felgu sem borð heima!

Author:  bErio [ Wed 20. Feb 2008 15:34 ]
Post subject: 

Eru þær eitthvað skemmdar eftir þetta?

Author:  Höfuðpaurinn [ Wed 20. Feb 2008 17:00 ]
Post subject: 

ég er nú ekki búinn að þrífa þessar þrjár, en gat ekki séð að þær hefðu nokkuð skemmst, einu skemmdirnar sem ég hef séð hingað til eru á plasthlífum undir bílnum þar sem þeir vönduðu sig ekkert rosalega við að henda tjökkunum undir á réttum stöðum.

en svo má að sjálfssögðu kalla það skemmdir að það vantar miðjurnar í þessar þrjár sem komnar eru í leitirnar og ekki verður það ódýrt ef ég þarf að panta eina staka og nýjar miðjur í þær allar.

Author:  gunnar [ Wed 20. Feb 2008 23:53 ]
Post subject: 

Búinn að finna sökudólgana?

Author:  maxel [ Wed 20. Feb 2008 23:56 ]
Post subject: 

Ég fæ leiðinda pirring við að lesa þetta.. líka bara hvað þetta var mikið óþarfa tjón, hefðuj alveg getað sleppt þessu

Author:  Höfuðpaurinn [ Thu 21. Feb 2008 09:59 ]
Post subject: 

nei því miður eru sökudólgarnir ekki fundnir, ætla að fara í dag og kaupa nýjar rær til að geta hreyft bílinn, býst nú við að hann verði frekar kjánalegur á þrem 22" og varadekkinu.

Author:  X-ray [ Thu 21. Feb 2008 10:10 ]
Post subject: 

Höfuðpaurinn wrote:
nei því miður eru sökudólgarnir ekki fundnir, ætla að fara í dag og kaupa nýjar rær til að geta hreyft bílinn, býst nú við að hann verði frekar kjánalegur á þrem 22" og varadekkinu.


Bestu vinir þínir ættu að vera TVÖ lásabolta sett !

:wink:

Author:  bakari22 [ Thu 21. Feb 2008 10:30 ]
Post subject: 

holvitar eru þetta !

ef þetta eru einar felgur á landinu halda þeir virkilega ad madur tekur ekki eftir þeim i umferdini ségstaklega 22" krom felgur !

frekar ledinlegt ad lenda i þessu eins og var gert hjá vinn minn um dagin rifin aftur spoiler af bilnum hanns

svo þegar hann fatadi ad þetta var eini spoiler á landinu skiladi hann honum enn samt brotnar festingar ég segi bara hvað er að folki !

vonandi skilar þessi adilin þessa 1 felgu gángi þér vel félagi !

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/