Page 1 of 1
Vetrarfelgur og dekk undan E39 M5 til sölu

Posted:
Thu 31. Jan 2008 11:30
by e_b
Sælir,
Er með sett af 17" Style 66 orginal BMW felgum til sölu. Á felgunum eru Michelin Pilot Alpin dekk (hef ekið rúman einn vetur á þessum dekkjum).
Settið er tilbúið til afhendingar.
Ef þið hafið áhuga sendið PM til mín.
Kv.
Eggert

Posted:
Thu 31. Jan 2008 14:14
by e_b
Vegna nokkurra fyrirspurna....
Ég borgaði 300þús fyrir þetta sett fyrir rúmu ári. Það sér ekki á felgunum, og dekkin eru fín líka.
Hef ekki mótað mér skoðun á verði, þannig að þeir sem hafa áhuga geta bara boðið það sem þeim finnst eðlilegt og við sjáum hvað gerist.
Kv.
Eggert

Posted:
Thu 31. Jan 2008 21:29
by Alpina
Þetta er án vafa dýrt,,
en efa ..því miður þín vegna .. að þú fáir það sem þú ímyndaðir þér í upphafi..


Posted:
Thu 31. Jan 2008 23:04
by KFC
ertu ekki með myndir af þessu?

Posted:
Thu 31. Jan 2008 23:35
by e_b
Veit alveg að ég fæ ekki 300 þús. fyrir þetta, en þar sem fólk spurði um verð þá minntist ég á þetta bara svo að fólk vissi hve upphaflegt virði hafði verið.
Það er því alveg óþarfi að rúlla augunum mín vegna, og halda að ég hafi ætlað að rukka "fullt" verð.
Svona til að setja verð á þetta þá skulum við segja að 150 þús. sé ásett verð, og svo er bara að bjóða.
Kv.
Eggert

Posted:
Fri 01. Feb 2008 06:53
by Alpina
e_b wrote:Veit alveg að ég fæ ekki 300 þús. fyrir þetta, en þar sem fólk spurði um verð þá minntist ég á þetta bara svo að fólk vissi hve upphaflegt virði hafði verið.
Það er því alveg óþarfi að rúlla augunum mín vegna, og halda að ég hafi ætlað að rukka "fullt" verð.
Svona til að setja verð á þetta þá skulum við segja að 150 þús. sé ásett verð, og svo er bara að bjóða.
Kv.
Eggert
Ef ég væri í kauphugleiðingum ,, þá er þetta FEYKI gott verð fyrir kaupanda

Posted:
Fri 01. Feb 2008 10:25
by e_b
Takk fyrir það. Já, ég tel þetta vera mjög gott verð fyrir mjög flottar álfelgur og fín dekk.
Þar sem bíllinn er farinn þá hef ég ekkert við þetta að gera lengur. Endilega bjóða ef einhverjum vantar.
Ég náði ekki að redda myndum í gær, en reyni að redda því fljótlega.
Kv.
Eggert

Posted:
Tue 05. Feb 2008 20:10
by e_b
Jæja, með myndavél í hönd ætlaði ég að smella af myndum áðan, en sá þá fljótlega að felgurnar eru soldið skítugar. Myndir verða því að bíða eftir helginni, þegar ég hef haft tækifæri til að þrífa settið.
En, bæði felgurnar og dekkin eru í TOPP standi.
Ef einhverjir hafa áhuga á að koma og skoða bjallið þá í 840 2076, eða sendi PM hér.
Kv.
Eggert