Page 1 of 3
Smá eyðslupælingar.

Posted:
Thu 06. Jan 2005 09:35
by Kristjan
Ég hef nú látið mig dreyma eins og flestir hérna og geri enn. Mig langar alveg rosalega að eignast M5 en eftir að hafa rekið 530iA núna síðan í maí þá hef ég uppgötvað að ég ætti kannski að setja það á bið í smátíma að stækka við mig. Þess vegna fór ég hugsa um að næla mér í einhvern sparneytnari bimma, nú fá nokkrir verk í magann og hugsa (ætlar hann að fá sér 4 cyl) nei er svarið, ég ætla að halda mér við 6 cyl. Málið er bara að ég hef ekki reynslu af nýrri týpunum, hvernig eru M50 vélarnar að standa sig varðandi eyðslu. M30 vélin í mínum er frekar dutlungafull varðandi eyðslu, það er til dæmis ekkert mál að keyra bílinn á 80-90 km hraða og á eyðslumælinum stendur 9.8 sem mér finnst alveg ágætt að vetri til. En um leið og maður fer að fikta eitthvað í gjöfinni þá ríkur eyðslan upp. Fylgnin milli eyðslu og hraða er eitthvað á þessa leið. 100 km hraði = 10.5l - 110km = 11l - 120km = 12.3 l- 130km = 14l en þetta er miðað við að gjöfinni sé haldið mjög varlega og engar brekkur séu á leiðinni. Hafiði pælt eitthvað í svipuðum hlutum?

Posted:
Thu 06. Jan 2005 09:43
by gunnar
Minn BMW E36 320IA er að eyða svona 11-13 innanbæjar, STRICTLY innanbæjar akstur.

Posted:
Thu 06. Jan 2005 10:01
by hlynurst
328 bíllinn sem ég átti eyddi nú svipað og bíllinn hjá Gunnari innanbæjar... með inngjöfum.


Posted:
Thu 06. Jan 2005 10:03
by bjahja
hlynurst wrote:328 bíllinn sem ég átti eyddi nú svipað og bíllinn hjá Gunnari innanbæjar... með inngjöfum.

Minn er í svona circa 10 lítrum innanbæjar að meðaltali, í langkeyrslu fer hann alveg hlægilega langt niður
ATH bæði 320 hans gunna 328 og minn erum með m52 vélar


Posted:
Thu 06. Jan 2005 10:05
by gunnar
Minn er nátturulega sjálfskiptur, held að það sé að ríða mér svolítið í rassgatið stundum í eyðslunni..
Það er vont en það venst


Posted:
Thu 06. Jan 2005 10:23
by Kristjan
hah! minn er að fara með svona 16 innanbæjar í þessu skítafæri, en þar innifalið er ágætis magn af inngjöfum í beygjum.

Posted:
Thu 06. Jan 2005 10:28
by bjahja
Kristjan wrote:hah! minn er að fara með svona 16 innanbæjar í þessu skítafæri, en þar innifalið er ágætis magn af inngjöfum í beygjum.
Verð reyndar að viðurkenna að minn stekkur aðeins upp á veturna, ætli hann sé ekki í svona 12-13 eftir því hversu mikið maður er á hlið


Posted:
Thu 06. Jan 2005 10:32
by gunnar
Sorglegt að segja það en minn bíll hefur aldrei snert snó meðan ég hef átt hann
Búinn að vera inn í skúr núna í held ég 4 mánuði. Búinn að vera taka hann í gegn. Greyið iðar eflaust í skinninu að fá að prufa vetrardekkin sín


Posted:
Thu 06. Jan 2005 11:02
by jonthor
bjahja wrote:hlynurst wrote:328 bíllinn sem ég átti eyddi nú svipað og bíllinn hjá Gunnari innanbæjar... með inngjöfum.

Minn er í svona circa 10 lítrum innanbæjar að meðaltali, í langkeyrslu fer hann alveg hlægilega langt niður

ATH bæði 320 hans gunna 328 og minn erum með m52 vélar

Mjúmm enda er 323 vélin snilld!

Posted:
Thu 06. Jan 2005 11:12
by Kull
Ég hef mælt alla tanka síðustu mánuði og það er alltaf mjög stöðugir 17L sem hann er að eyða, nákvæmlega 17.0 á síðasta tank. Þetta er allt hreinn innanbæjarakstur, nánast allt innan Reykjavíkur meira segja.
Mér finnst þessi eyðsla bara mjög fín miðað við 315 hestafla bíl sem er kominn yfir 170 þús km.

Posted:
Thu 06. Jan 2005 11:25
by hlynurst
jonthor wrote:Mjúmm enda er 323 vélin snilld!
Tæki samt 2,8l vélina ef ég ætti að velja... engin spurning.


Posted:
Thu 06. Jan 2005 11:31
by iar
hlynurst wrote:328 bíllinn sem ég átti eyddi nú svipað og bíllinn hjá Gunnari innanbæjar... með inngjöfum.

Og eyðir enn svipað.
Það er reyndar hægt ná honum auðveldlega niður í 10-11 með leiðinlegum akstri.


Posted:
Thu 06. Jan 2005 11:42
by fart
523i E39 = 12c.a. (beinskiptur)
M5 E39 = í kringum 20

Posted:
Thu 06. Jan 2005 11:50
by gstuning
Vetrarbíllinn minn (316carb) virðist vera að eyða steady 10/100 miðað við allann akstur
3.0 vélin eyðir svona 10-12 innanbæjar


Posted:
Thu 06. Jan 2005 12:47
by Einsii
minn er að fara með 20-24 innanbæjar.. og þessvegna er ég kominn á mözdu ógeð núna og er að leggja bílnum mínum
