bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Spurning fyrir fróða menn í ebay fræðum
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=7321
Page 1 of 2

Author:  Kristjan [ Mon 06. Sep 2004 22:44 ]
Post subject:  Spurning fyrir fróða menn í ebay fræðum

Hvar finn ég M5 kit (ekki M Tech Jón Ragnar laug að mér að það héti það) á minn.. finn bara einhver ógeðsleg rice kitt sem einhverjir Tyrkneskir innflytjendur hafa hannað...

HJÁLP!

Author:  saemi [ Mon 06. Sep 2004 22:57 ]
Post subject: 

Ert þú að meina M5 kit???

ef svo er, þá slærðu inn BMW M5 í leitarvélina og færð:

http://cgi.ebay.de/ws/eBayISAPI.dll?Vie ... eName=WDVW

http://cgi.ebay.de/ws/eBayISAPI.dll?Vie ... 33268&rd=1

http://cgi.ebay.de/ws/eBayISAPI.dll?Vie ... 78687&rd=1

Reyndar er ekki mikið að finna núna, þetta kemur alltaf við og við upp.

Author:  Kristjan [ Mon 06. Sep 2004 23:20 ]
Post subject: 

saemi wrote:


Er þetta fyrra afturstuðarinn og seinna framstuðarinn?

Ef svo er, hvernig skrái ég mig inn svo ég geti boðið í dótið.

Og hvernig stillir maður á ensku. Ég er alveg grænn í þessu.

Gæti jafnvel einhver boðið í þetta fyrir mig og ég borgað hinum sama fyrir ómakið. Maður er eitthvað svo loðinn um lófana þessa daganna ;)

Author:  gunnar [ Tue 07. Sep 2004 08:53 ]
Post subject: 

Bara hvað sem þú gerir notaðu þá paypal! :)

Author:  gstuning [ Tue 07. Sep 2004 09:45 ]
Post subject: 

gunnar wrote:
Bara hvað sem þú gerir notaðu þá paypal! :)


ég sé enga ástæðu til að halda sig við paypal,

Author:  Kristjan [ Tue 07. Sep 2004 10:28 ]
Post subject: 

þarf maður ekki vísareikning fyrir paypal?

Author:  Gunni [ Tue 07. Sep 2004 10:31 ]
Post subject: 

gstuning wrote:
gunnar wrote:
Bara hvað sem þú gerir notaðu þá paypal! :)


ég sé enga ástæðu til að halda sig við paypal,


Er það samt ekki betra heldur en að láta einhvern kjána rippa sig off ? Er til eitthvað annað heldur en bein millifærsla á reikning ?

Author:  Svezel [ Tue 07. Sep 2004 10:34 ]
Post subject: 

Þú þarft bara kreditkort fyrir paypal.

Annars taka Þjóðverjar nánast aldrei Paypal svo þetta skiptir svosem ekki máli. Notar bara wire eða eitthvað

Author:  Alpina [ Tue 07. Sep 2004 13:18 ]
Post subject: 

Gunni wrote:
gstuning wrote:
gunnar wrote:
Bara hvað sem þú gerir notaðu þá paypal! :)


ég sé enga ástæðu til að halda sig við paypal,


Er það samt ekki betra heldur en að láta einhvern kjána rippa sig off ? Er til eitthvað annað heldur en bein millifærsla á reikning ?


Það er óskaplega sjaldan sem slíkt gerist,,,,,,menn nást yfirleitt ALLTAF
og verða útilokaðir frá EBAY

Author:  fart [ Tue 07. Sep 2004 13:21 ]
Post subject: 

Words spoken from experience..

ALDREI senda peninga með beinum hætti.. nema viðkomandi sé með alveg ROSALEGA gott feedback, eða um sé að ræða óverulegar fjárhæðir.

EF þið notið VISA þá endurgreiðir visa þér ef vörurnar berast ekki innan 2ja mánaða. Been there.. done that.

Author:  gstuning [ Tue 07. Sep 2004 15:12 ]
Post subject: 

Málið er að shoppa ekki við neinn sem er ekki með gott feedback
það er mesta öryggið í því

Ebay tekur hart á þeim sem svindla

Author:  Gunni [ Tue 07. Sep 2004 16:34 ]
Post subject: 

En það eru menn sem vinna við það að svindla á ebay !

Author:  Alpina [ Tue 07. Sep 2004 18:08 ]
Post subject: 

Gunni wrote:
En það eru menn sem vinna við það að svindla á ebay !


Jújú,,,,,, en þeir eru kannski ekki í þessum geira,, ekki það há upphæð

helst menn sem eru að selja Y bíl með þessu og hinu sem stemmir svo ekkert við myndir ofl,, loðnar skýringar og engann ferill að baki

Author:  Kull [ Tue 07. Sep 2004 18:11 ]
Post subject: 

Gunni wrote:
En það eru menn sem vinna við það að svindla á ebay !


Alveg rétt, það er líka þekkt trick að gaurarnir kaupa/selja slatta af hræódýru drasli bara til að fá gott feedback.

Það er engin spurning að maður er í miklu betri stöðu ef greitt er með Visa korti en auðvitað er það ekki alltaf hægt. Bara spurning um skynsemi, skoða fjölda feedbacks og skoða hvað gaurinn hefur verið að kaupa/selja áður.

Ég hef nokkrum sinnum versla á Ebay, einu sinni borgað með money order, annars alltaf með Paypal og hef aldrei lent í neinum vandræðum.

Author:  Benzari [ Tue 07. Sep 2004 18:18 ]
Post subject: 

Skráðu þig frekar á eBay.com heldur en eBay.de , tekur/tók lengri tíma í gegnum .de

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/