bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Official kvörtun https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=7027 |
Page 1 of 1 |
Author: | force` [ Sat 07. Aug 2004 01:18 ] |
Post subject: | Official kvörtun |
Mér finnst bara fáránlegt að vera að læsa þræði ef manneskjan hefur auglýst áður. Ekki nema það sé "ein auglýsing per notanda" policy í gangi. Þarna inní bmw til sölu var einhverjum þræði læst því að hann hafði auglýst bílinn mánuði fyrr. OG HVAÐ ? Er það hættulegt ? Persónulega þá finnst mér alveg hrottalega leiðinlegt að vera að lesa eldgamlar auglýsingar sem ekkert stendur í nema *bömp* *ttt* og þannig vesen. Og hvað er eiginlega málið? Þetta skil ég bara alls ekki, hefði skilið það ef það væri bara einhverjir dagar á milli, en síðasta SVAR á hinum þræðinum er síðan 6 júlí. |
Author: | iar [ Sat 07. Aug 2004 11:34 ] |
Post subject: | Re: Official kvörtun |
force` wrote: Mér finnst bara fáránlegt að vera að læsa þræði ef manneskjan hefur auglýst áður. Ekki nema það sé "ein auglýsing per notanda" policy í gangi. Þarna inní bmw til sölu var einhverjum þræði læst því að hann hafði auglýst bílinn mánuði fyrr. OG HVAÐ ?
Er það hættulegt ? Persónulega þá finnst mér alveg hrottalega leiðinlegt að vera að lesa eldgamlar auglýsingar sem ekkert stendur í nema *bömp* *ttt* og þannig vesen. Og hvað er eiginlega málið? Þetta skil ég bara alls ekki, hefði skilið það ef það væri bara einhverjir dagar á milli, en síðasta SVAR á hinum þræðinum er síðan 6 júlí. Reyndar hefur einmitt verið sú "policy" í gangi að það sé ekki endalaust verið að auglýsa sama hlutinn aftur heldur er frekar leyft að bæta við auglýsingaþræði til að "bömpa" auglýsingum upp, koma með nýjar upplýsingar osfrv. Gallinn við þetta er auðvitað eins og margir hafa tekið eftir að auglýsingar geta farið út í alveg ótrúlegt bull og vitleysu þar sem hver sem er getur póstað inn í þær. En í dag er þetta semsagt svona. ![]() PS: Bara til að benda á aðra möguleika þá er það t.d. þannig á kvartmíluspjallinu að ekki er hægt að svara auglýsingapóstum og auglýsingum eldri en X vikna gömlum er hent sjálfkrafa. Þetta krefst þess auðvitað að fólk geri almennilegar auglýsingar með góðum kontactupplýsingum en á móti hverfur kjaftagangur ("kerlingaþvaður" ![]() Þetta finnst mér persónulega mjög sniðugt kerfi þar sem óþarfa bull í auglýsingum angrar mig mikið. Ef ég væri að auglýsa bílinn minn til sölu og allt í einu færi umræðan að snúast um öll tjónin sem allt annar en samskonar bíll hafi lent í. Þetta væri ekki mikið að hjálpa mér að selja minn. |
Author: | force` [ Sat 07. Aug 2004 13:38 ] |
Post subject: | |
Já bull er alveg óþarfi í auglýsingum, en það gerist oft óvart.......... Samt eru ákveðnir einstaklingar á flestum spjöllum sem að er alveg sama hvernig auglýsingar fara og geta ekki haldið fingrunum að sér í flestum tilvikum. En þetta með þessa auglýsingu þarna sem ég er að tala um, fannst mér alger óþarfi, og svo fann ég bara svona "stæla" vibes frá þessu replyi frá oskard, og sé enga ástæðu fyrir því. Það er alveg rétt, það er óþarfi að auglýsa sama hlutinn hundraðogsjötíusinnum, en ef að fólk er að gera nýja auglýsingu, afhverju er GAMLA þræðinum ekki bara hent og nýja leyft að vera ef það má alls ekki vera með 2 auglýsingar um það sama í gangi þá það séu 32 dagar á milli þeirra .. ? Þetta er bara almenn forvitni, sérlega því að mér hefur alltaf allt hafa gengið hérna á almennri kurteisi og verð bara að segja það að mér líkar mun betur við mig hérna núna en þegar ég kom og ætlaði að vera með fyrst. (enda þeir sem að gerðu ekki annað en að vera með leiðindi eru ekki hérna lengur nema þeir hafi skipt um notendanafn ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |