Page 1 of 1

Corolla 1.4 vvti 2000 vélarhljóð

PostPosted: Tue 04. Aug 2015 19:39
by deno
Þegar vélin er undir álagi og er í þungum gírum að þá kemur hljóð einsog tímakeðjan er að rekast utan í eitthvað. Gæti verið að hún sé of slök? Þetta er svona bank hljóð og hljómar illa. Þetta er 1.4 2000 árgerð með tímakeðju.

Las að þetta gæti verið galli úr verksmiðjunni og að ég þyrfti að kaupa ECU nýjan.

Kannski er þetta ekki tímakeðjan, ég var bara að spá hvort þetta gæti verið hún.


Ég fann þetta á netinu sem gæti tengst þessu. Hefur einhver annað fengist við þetta vandamál?

"E11 1.4TTVi 2000 rattling "pinking" "pre-ignition"
This happens under load at around 2000rpm. It is a known fault. Customers who complained got a revised ECU...a new computer contol box...free. Toyota redsigned the ECU. The vehicles were not recalled, so unless the first customer complained your engine will rattle as ours does."


Er ECU dýr í svona bíl með vinnu? Er hægt að fá notaðan?

Re: Corolla 1.4 vvti 2000 vélarhljóð

PostPosted: Wed 05. Aug 2015 20:39
by -Siggi-
Það er algengt í þessum bílum að það losni eitthvað drasl í soggreininni sem myndar svona glamur.
Það þarf að skipta um hana til að laga þetta.