bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Uppáhaldsorðið þitt í bílamáli?
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=68395
Page 1 of 2

Author:  saemi [ Mon 09. Mar 2015 23:01 ]
Post subject:  Uppáhaldsorðið þitt í bílamáli?

Mitt orð er Alternator.

Altonador

Altenator

Altornador

Aldenatorinn.....

Hver hefur ekki brosað yfir þessu. Hvert er þitt uppáhaldsorð?

:P

Author:  srr [ Mon 09. Mar 2015 23:05 ]
Post subject:  Re: Uppáhaldsorðið þitt í bílamáli?

Og fáránlegt þegar það er hugsað til erlendu orðanna yfir alternator.
Lichtmaschine á þýsku,,,,væri nánast bara ljósavél á íslensku, eða rafall eins og sumir íslendingar kalla þetta (sem er auðvitað réttast)
Generator á ensku,,,,,,again === rafall
Samt er ETK með alternator og generator í notkun,,,,

Það sem böggar mig mest er hjólná / hjólnaf.

Author:  tinni77 [ Mon 09. Mar 2015 23:06 ]
Post subject:  Re: Uppáhaldsorðið þitt í bílamáli?

saemi wrote:
Mitt orð er Alternator.

Altonador

Altenator

Altornador

Aldenatorinn.....

Hver hefur ekki brosað yfir þessu. Hvert er þitt uppáhaldsorð?

:P


Heyrðu besta útgáfan af þessu sem ég hef heyrt er aftanímótor.!

Author:  ///M [ Mon 09. Mar 2015 23:18 ]
Post subject:  Re: Uppáhaldsorðið þitt í bílamáli?

Fara með bílinn í sprautningu.

Hambremsa.

Held samt að uppáhalds sé "millihedd", hver fann það eiginlega upp :lol:

Author:  D.Árna [ Mon 09. Mar 2015 23:57 ]
Post subject:  Re: Uppáhaldsorðið þitt í bílamáli?

Stuðari/Stöðari

Soggrein/Sógrein

Handbremsa/Hambremsa

Alternator/Aldineitor

Author:  fart [ Tue 10. Mar 2015 06:47 ]
Post subject:  Re: Uppáhaldsorðið þitt í bílamáli?

Ekki endilega bílamál en finnst oft á bílaspjallsíðum... Ýminda... :evil:

Kúpling er voða krúttlegt orð

Author:  sosupabbi [ Tue 10. Mar 2015 08:45 ]
Post subject:  Re: Uppáhaldsorðið þitt í bílamáli?

Stimpilbulluhreyfill - Vél
Tengsli - Kúpling
Millihedd (Team USA) - Soggrein ( Rest )
Stage 2 - Þýðir að eitthvað sé betra en Stage 1 en verra en Stage 3, mismunandi hvað það er samt milli framleiðanda sem gerir þetta hálf useless staðal
Loka loka lok - Olíulok, lokið á ventlalokið sem er lokið á strokklokið - Lokalokalok

Author:  Kristjan [ Tue 10. Mar 2015 11:31 ]
Post subject:  Re: Uppáhaldsorðið þitt í bílamáli?

Soggrein.

Author:  fart [ Tue 10. Mar 2015 11:42 ]
Post subject:  Re: Uppáhaldsorðið þitt í bílamáli?

Kristjan wrote:
Soggrein.

:naughty:

Author:  Kristjan [ Tue 10. Mar 2015 13:14 ]
Post subject:  Re: Uppáhaldsorðið þitt í bílamáli?

fart wrote:
Kristjan wrote:
Soggrein.

:naughty:


hue hue hue

Author:  Wolf [ Tue 10. Mar 2015 19:05 ]
Post subject:  Re: Uppáhaldsorðið þitt í bílamáli?

Ég var með minn á verkstæði til að skipta um spliffið, og gaurinn sannfærði mig um að ég yrði líka að skipta um donkið og gengjuna,,, 380 þús,, en bílinn er allt annar.....

Author:  Alpina [ Tue 10. Mar 2015 19:37 ]
Post subject:  Re: Uppáhaldsorðið þitt í bílamáli?

Strokkur,, Bulla,,

gömul orð

Author:  Danni [ Wed 11. Mar 2015 01:45 ]
Post subject:  Re: Uppáhaldsorðið þitt í bílamáli?

Hef oft gaman af orðum sem byrja á vatns*.

vatnsdæla, vatnskassi, vatnslás.

Veit ekki hversu oft maður sér Íslendinga í húð og hár berjast við þess orð. Algengast er vassdæla, -lás, -kassi.

Author:  slapi [ Thu 12. Mar 2015 05:09 ]
Post subject:  Re: Uppáhaldsorðið þitt í bílamáli?

Eimsvali

Author:  íbbi_ [ Thu 12. Mar 2015 10:36 ]
Post subject:  Re: Uppáhaldsorðið þitt í bílamáli?

lokalokalok

nei annars eru alternator og hvarfakútur yfirleitt með þetta. það eru ansi skrautlegar útgáfurnar af þessu

millihedd hefur mér fundist allt í lagi, þar sem soggreinin liggur á milli tveggja hedda í því tilfelli.

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/