Jæja.
Þetta er síða sem eigendur og eða áhugafólk um BMW halda úti og hér eru allir velkomnir. En að vera hérna og eingöngu vilja ræða um VW Polo er ekki til þess að aðrir meðlimir taki þig alvarlega, þess vegna eru svörin kannski ekki neitt sérstaklega áhugaverð. Hér er L2C klárlega skárri kostur.
Hitt er annað mál að þú ert ekki að fara að Turbo-væða svona nýjan Polo. Mikið frekar að kaupa 20 ára gamlan Golf eða Polo og svo fara í Supercharger eða Turbo. Bíllinn þinn er bara ekki byggður fyrir svona æfingar. Myndi þá frekar setja hann upp í annan Polo sem kemur original með Turbo. Það mætti þá vinna út frá því án þess að fara í gjaldþrot.
Án þess að vera með leiðindi, þetta er ofboðslega slæmt plan og ég mæli með því að þú finnir þér annað að gera með bæði þin tíma og pening vegna þess að EF þú ferð þessa leið þá gætirðu alveg eins legið í rúminu í 6 mánuði og kveikt í öllum þínum peningum. Sem er eiginlega betra því að þá áttu allavega heilan bíl eftir 6 mánuði sem er einhvers virði.
Ef þig langar í aflmikinn bíl sem endist vel, er til hellingur af eldri Turbo bílum sem eiga mikið eftir. Selja Polo, kaupa annan (sjá link) og svo kaupa Chip + Filter + Púst og þú ert kominn með 300 hestafla bíl sem hljómar ótrúlega vel. Mótor og skipting þarf reglulegt viðhald en hérna úti eru svona bílar eknir fleiri hundruð þúsund kílómetra eftir að þeir eru chippaðir.
Fæst örugglega á 650þ. krónur. Enginn peningur fyrir 5 strokka Turbo.
http://www.bilasolur.is/CarDetails.aspx?bid=16&cid=252515&sid=407132&schid=2b839683-2e53-4e58-a0db-10ff64748cff&schpage=1