Thrullerinn wrote:
Óli, ertu með einhver plön með 928 annað en að keyra?
Það er nú ekki planið að keyra þennan bíl mjög mikið, þetta verður meira spari.
Eftirfarandi eru plön vorsins:
a) Skipta um bremsuklossa og skynjara, er búinn að kaupa original hluti (þoli ekki að vita af aftermarket hlutum í bílnum).
b) Skipta um mótora fyrir rúðu- og ljósapiss, er búinn að kaupa original hluti.
c) Laga flautu
d) Setja tölvukubbana í bílinn og prófa opna pústið sem ég á.
e) Rétta eina cup felguna og láta mála þær allar.
f) Láta poppa út örlítilli beyglu á toppnum.
g) Láta mála afturstuðarann, bensínlokið og listana á hliðunum.
h) Skipta um afturljósin (það er lítil sprunga í öðru ljósinu sem böggar mig).
i) Panta einkanúmer.
Framtíðar plön eru svo:
a) Yfirfara PSD kerfið sem kemur úr Porsche 959 (það er í góðu lagi en ljósið fyrir það hefur samt logað sl. 15 ár).
b) Mála upprunalegu D90 felgurnar þó þær séu nokkuð góðar.
Hér er ný mynd af innréttingunni:
_________________
BMW X3 M tech (F25) árg. 2015
VW Golf MK 3,5 cabriolet árg. 2001
Porsche 911 SC árg. 1980
Porsche 924 árg. 1982
Porsche 928 S4 árg. 1991
Nikolai Smolenski wrote:
Buy a Ferrari and you become a member of a club. Buy a TVR and you remain an individual