Ætla að teikna upp aðstæður og langar mig að sjá hvað þið mynduð gera í þessum aðstæðum.Hvernig bíl myndir þú kaupa þér í USA?
25.000$ sem budget.Þetta yrði í
Californiu svo að veðrið er yfirleitt til fyrirmyndar.
Fyrir mér eru þetta
barátta á milli skynsemi og skemmtanagildis. Reyna að finna gullna meðalveginn og sameina þetta.
Eina sem mér er sama um er bensíneyðsla. 50% af verðinu á íslandi og um að gera að njóta þess að eiga bensínhák.
Nokkrir hlutir sem þyrfti að hafa í huga. Því þetta yrði eini bíll heimilsins og því notaður í daglegt amstur. Hann þarf t.d. að fara í gang án þess að opna húddið. 2 einstaklingar sem nota hann og því ekkert must að hann sé eitthvað ofur fjölskylduvænn.
Gott væri ef menn myndu aðeins hugsa útfyrir BMW og reyna að setja sig í þessar aðstæður.
Akstur: Þetta þyrfti að hafa í huga í sambandi við viðhald o.s.frv.
Tegund: Bíllinn þyrfti að meika sens í rekstri, maður verður að hafa efni á því að bremsa og keyra.
Aldur: Viltu eiga 2007-2013 árgerð eða ertu tilbúinn að díla við það sem fylgir því að eiga eldri bíla.
2 sæta/dyra vs 4 sæti/hurðar: Ef það koma gestir eða þú þarft að skuttla vinafólki. Pæliru í það?
Fun vs notagildi: Ferð í ferðalag, fer vel um þig í bílnum á langkeyrslu? veghljóð, þéttur o.s.frv.
Beinskipt/Sjálfskipt: beinskipt vissulega gaman af ákveðnum bílum, en að bíða í röð til að borga vegadolla eða bara í downtown traffík er algjört rassgat til lengdar á beinskiptum.
jeppi vs fólksbíll: vissulega næs að eiga jeppa en semi óþarfi að vera á 4x4 við þessar aðstæður 360 daga ársins.
4x4 vs rwd/fwd. Eyðslan sem fylgir 4x4 vs það að geta verið á afturdrifnu allan ársins hring.
http://sfbay.craigslist.org/cta/ - Hérna er barnaland þeirra bandaríkjamanna og hægt væri að slá inn eitthvað til að átta sig á gangverði bíla á svæðinu, því það er vissulega hærra í CA eins og flest allt annað í samanburði við aðra staði í USA.
Verð á sportbíl í minnesota er irrelevant í þessu tilfelli.
Nokkur dæmi;Ford mustang gt premium 2006-2007 - 15.000-22.000$ bsk/ssk? Bandaríkt, ódýrt viðhald, en mikið harðplast og brak og brestir sem því fylgir. 2 dyra en þó bærilegt til að redda 4 á milli staða.
Honda S2000, árg.2000-2007 - 10.000-25.000$ - 2 dyra, 2 manna, beinskiptur, mögulega blæju. Getur ekki tekið 2 töskur út á flugvöll einu sinni.
BMW 645 coupe, árg.2004-2005 20.000-25.000$ - 2 dyra, ssk, pláss fyrir 4. Þægindi en samt sprækur.
BMW 335 e90 eða e92, árg.2007-2009 25.000$ - rosa fjör, alveg á budgeti samt. Viðhald?
Porsche 911 996, árg 2001-2004 22.000-25.000$ - orðnir gamli, daldið eknir til að falla undir budget. Dýrt í rekstri í mikilli notkun. Nógu gaman til að réttlæta það? Augljóslega ekki turbo fyrir þetta budget. Yrði all show, no go.
SRT8 bílarnir eldri: charger, 300c, magnum - 15.000-25.000$ - Mikið pláss, USA og ódýrir varahlutir, ekki mest kosy bílar að innan en vissulega mikið power og en allt drullu hrátt, meira að segja aflið. Brakar og brestur í innréttingum og svona.
Challenger RT, Camaro SS: 22.000$+ - alveg á budget, nýlegir bílar og hef ég 0 reynslu af þeim en virkar sem eitthvað sem gaman væri að prófa að eiga. Lítið pláss afturí, en þó möguleiki að koma fleiri en tveim farþegum.
BMW e60 M5: árg.2005-2006 23.000$+ - Alveg á budget, dýrt í rekstri og dáldið eknir til að fást á þessu verði. Verður viðhaldsfaktorinn stærri en skemmtanagildið. Hefur pláss, kraft og í raun allt. En að ég tel langt frá því að vera skynsamt.
BMW e46 M3: 15.000$+ - Hægt að finna fín eintök af þannig með því að fara langt með að maxa budgetið. En vissulega gamlir M bílar og kannski full viðhaldsfrekir fyrir daglega notkun?
Benz nýji C-class: árg.2007-2010 - 20.000$+ - flottir, praktískir, nýlegir, þýsk gæði og mun meira kósý en USA bílar.
BMW 5 series e60: 2005+ - 15.000$+ - Mikið til af hinum ýmsu týpum og margir mjög vel búnir og snyrtilegir. Skynsamt og flott en skemmtanagildið?
Uppástungur?
Hvað myndir ÞÚ gera?