Tolla bíl sem er á erlendum númerum

Posted:
Mon 12. Aug 2013 14:40
by Henbjon
Sælir félagar, er flókið að tolla bíl sem er á erlendum númerum hérna á klakanum? Sem dæmi getum við sagt að bíllinn sé í minni eigu erlendis, ég sé að flytja heim til íslands og hafi leyst hann út úr höfninni á erlendu númerunum til að byrja með. Þarf ég ekki að tilkynna líka til útlanda að bíllinn sé nú á íslandi og ekki lengur á erlendu númerunum, jafnvel senda plöturnar út?
Kær kveðja
Re: Tolla bíl sem er á erlendum númerum

Posted:
Tue 13. Aug 2013 14:03
by JBV
Þú þarft að hafa samband við tollinn hér og Samgöngustofu. Þeir hjá tollinum sjá um að reikna út fyrir þig aðfluttningsgjöldin og rukka. Samgöngustofa sér um að úthluta númeri á bílinn, þú þarft einnig að panta númeraplöturnar í gegn um þá. Þegar bíllinn er tollaður og númerinn eru tilbúin til afhendingar, þá ferðu á næstu skoðunarstöð (þangað sem númerin hafa verið send) og bíllinn er skoðaður, útlendu númerin tekin af og íslensk sett í staðin. Skoðunarstöðin sér svo um að senda erlendu númeraplöturnar til Samgöngustofu. Samgöngustofa sér um að senda plöturnar til síns heima og afskrá bílinn í viðkomandi landi.