Page 1 of 3
Bílskúr - opnari og gólfefni

Posted:
Thu 18. Oct 2012 12:01
by Jónas
Sælir.
Er að versla íbúð - meðfylgjandi er c.a. 20fm bílskúr sem er afskaplega basic eins og er. Myndi vilja skella bílskúrshurðaopnara ásamt því að gera hann snyrtilegan að innan. Fólksbíll yrði geymdur þar dags daglega.
Hvar er hagstæðast að versla opnara? Skiptir einhverju máli hvað maður velur?
Hvað með gólfefni og lýsingu? Minnir að gólfið sé bara steypt&málað eins og er.
Re: Bílskúr - opnari og gólfefni

Posted:
Thu 18. Oct 2012 12:18
by bimmer
Ég fékk mér ódýran bílskúrsopnara í BYKO, man ekki tegund.
Varðandi gólfefni þá eru mjög skiptar skoðanir með það, er sjálfur með
flísar sem ég er að fíla vel.
Varðandi lýsingu þá mæli ég með Flúrlömpum í Hafnarfirði,
http://flurlampar.is/Fékk 8 stóra tvöfalda loftlampa ásamt 5 minni til að setja á vegg, með daylight
perum í allt draslið fyrir minna en 90.000.
Re: Bílskúr - opnari og gólfefni

Posted:
Sat 20. Oct 2012 16:28
by Viggóhelgi
Hiklaust að flota gólfið með epoxy... Virkilega sterkt og verður fallegt til lengri tíma!
Re: Bílskúr - opnari og gólfefni

Posted:
Sat 20. Oct 2012 16:51
by Thrullerinn
Myndi bara versla opnara í BYKO eða húsasmiðjunni, eru <30 þús eða svo. Nauðsynlegt að geta keypt varahluti.
flísar vs. lakk umræða
viewtopic.php?f=16&t=57009&hilit=fl%C3%ADsar
Re: Bílskúr - opnari og gólfefni

Posted:
Sat 20. Oct 2012 17:38
by Jónas
Hver ætli c.a. kostnaðurinn sé að flísaleggja 20fm bílskúr? Þarf ekki að ganga vel frá undirlaginu (lakkað í dag, eitthvað um smávegis sprungur osfrv.) áður en flísalagt er?
Re: Bílskúr - opnari og gólfefni

Posted:
Sat 20. Oct 2012 20:19
by Thrullerinn
Gætir orðið þér út um slípirokk(þarf ekki að vera öflugur), bollaskífu og tætt lakkið af.
Annars er líka hægt að fá ætandi grunn og borið á lakkið, eflaust einfaldara og minna ryk.
flísar 20 x 2-3 þús kall
lím 7 þús
fúga 5 þús
krossar 1 þús
leiga á sög?
Síðan þarftu límspaða, svamp, múrfötu og nokkra bjóra.
Re: Bílskúr - opnari og gólfefni

Posted:
Sun 21. Oct 2012 17:36
by Turbo-
versta við flísarnar er að ef þú ert að dunda þér í skúrnum og missir skrúfu þá skoppar hún út um allt, vann á verkstæði sem var allt flísalagt og ef maður missti skrúfu þá var hún í flestum tilfellum týnd
en afturá móti eru flísalagðir skúrar 1000x meira elegant en skúrar með máluðu gólfi
Re: Bílskúr - opnari og gólfefni

Posted:
Mon 22. Oct 2012 10:16
by Thrullerinn
Síðan er miklu þægilegra að halda flísunum hreinum.
Re: Bílskúr - opnari og gólfefni

Posted:
Mon 22. Oct 2012 10:37
by fart
Flísar eru klárlega málið, ég er síðan með lausar langar mottur sem ég set í kringum bílinn þegar ég er að vinna í honum, einmitt til þess að geta lagt dót frá már og þegar skrúfurnar detta, þannig að þar fari ekki út um allt. Konan skiptir reglulega um þessa dregla í eldhúsinu, og þá enda þeir í skúrnum hjá mér. Fást í IKEA á slikk.
Re: Bílskúr - opnari og gólfefni

Posted:
Mon 22. Oct 2012 11:29
by Jónas
Flísar it is!
Re: Bílskúr - opnari og gólfefni

Posted:
Mon 22. Oct 2012 13:55
by Thrullerinn
Gleymdi poka af einnota gúmmíhönskum í listanum.
Þetta er allt helvítis eitur.
Re: Bílskúr - opnari og gólfefni

Posted:
Mon 22. Oct 2012 14:15
by olinn
Ég er með epoxy, mjög þæginlegt, og flott
http://www.epoxygolf.is/bilageymslur.html
Re: Bílskúr - opnari og gólfefni

Posted:
Mon 22. Oct 2012 14:40
by Jónas
Re: Bílskúr - opnari og gólfefni

Posted:
Mon 22. Oct 2012 15:45
by Viggóhelgi
Ég mæli með epoxy fyrir alla! Eflaust aðeins dýrara, en þetta er mega flott, auðvelt að hreinsa og er virkilega sterkt! Engar rispur og ekki skemmdir eftir möööeg ár!
Re: Bílskúr - opnari og gólfefni

Posted:
Tue 23. Oct 2012 11:35
by Thrullerinn
Í næsta mánuði er planið að setja taflborð á gólfið í skúrnum.


Ætlaði fyrst að fara í gegnheilt samlitt, en þetta bara lúkkar svo skemmtilega
