Page 1 of 1

Brotinn lykill....

PostPosted: Thu 04. Oct 2012 02:09
by Páll Ágúst
Það er mál með vexti að lykillinn að bílnum mínum var tæpur á að brotna, ætlaði að fara á morgun og láta gera nýjan... var að vonast eftir að hann myndi ekki brotna í svissinum þangað til.....

Svo þegar ég fer úr vinnunni ákveður lykillinn að brotna í svissinum og ég get auðvitað ekki sett bílinn í gang.

Spurningin er, hvað get ég gert?

Re: Brotinn lykill....

PostPosted: Thu 04. Oct 2012 06:42
by JonFreyr
Kaupa nýjan bíl.

Þú gætir keypt annan sviss og verið með tvo mismunandi lykla, einn í hurðarnar og annan í svissinn.

Þú gætir tengt framhjá og verið með 2 falda switcha undir mælaborðinu og svo "Start" hnapp á góðum stað í mælaborðinu.

Hversu langt inni er restin af lyklinum?

Re: Brotinn lykill....

PostPosted: Thu 04. Oct 2012 07:21
by Danni
Geturðu með engu móti náð brotinu úr? Myndi bara reyna það og panta síðan nýjan lykil.

Re: Brotinn lykill....

PostPosted: Thu 04. Oct 2012 09:02
by Páll Ágúst
Danni wrote:Geturðu með engu móti náð brotinu úr? Myndi bara reyna það og panta síðan nýjan lykil.


Brotið er alveg vel inn í svissinum, efast um að ég get með eitthverju móti tekið það úr.

Re: Brotinn lykill....

PostPosted: Thu 04. Oct 2012 10:53
by íbbi_
getur reynt það með öflugu segurstáli, ég hef náð svona broti úr þannig.

ef ekki geturur eynt að ná cylinderinum úr og ná þessu úr þannig, í versta falli pantaru nýjan cylinder með lyklinum,

Re: Brotinn lykill....

PostPosted: Thu 04. Oct 2012 11:02
by Axel Jóhann
Nærðu að svissa á bílinn?

Re: Brotinn lykill....

PostPosted: Thu 04. Oct 2012 12:03
by Páll Ágúst
Axel Jóhann wrote:Nærðu að svissa á bílinn?


Nei, næ því ekki.

EDIT: ég næ því með smá tækni

íbbi_ wrote:getur reynt það með öflugu segurstáli, ég hef náð svona broti úr þannig.

ef ekki geturur eynt að ná cylinderinum úr og ná þessu úr þannig, í versta falli pantaru nýjan cylinder með lyklinum,


Hvar nálgast ég svoleiðis segul?

Re: Brotinn lykill....

PostPosted: Thu 04. Oct 2012 13:15
by íbbi_
verkfærabúðum, bílaverkstæðum og flr

getur fengið merkilega öfluga segla sem eru ætlaðir í að ná upp boltum og flr sem maður missir niður,

Re: Brotinn lykill....

PostPosted: Thu 04. Oct 2012 13:22
by ///M
Ég myndi heyra í þarna neyðaropnunar búllunni sem er/var hjá Heklu.

Ég braut einhverntíman lykil í mótorhjóli og þeir náðu þessu úr því dæmi :)

Re: Brotinn lykill....

PostPosted: Thu 04. Oct 2012 16:48
by ppp
Smá Superglue á lykilinn, stingur honum fast inn og bíður.


Safety not guaranteed.

Re: Brotinn lykill....

PostPosted: Thu 04. Oct 2012 17:52
by birkire
hallaðu bílnum 90 gráður þá dettur brotið úr !

Re: Brotinn lykill....

PostPosted: Thu 04. Oct 2012 22:32
by ppp
birkire wrote:hallaðu bílnum 90 gráður þá dettur brotið úr !

Verður líka að grípa í dekkið á honum og hrista.

Re: Brotinn lykill....

PostPosted: Fri 05. Oct 2012 01:48
by Páll Ágúst
Meh, seldi bara bílinn.

Takk samt fyrir aðstoðina.

Re: Brotinn lykill....

PostPosted: Fri 05. Oct 2012 08:45
by gunnar
Ehh okay, ekkert harkaleg viðbrögð við að brjóta lykil :thup: :lol:

Re: Brotinn lykill....

PostPosted: Fri 05. Oct 2012 09:41
by ppp
gunnar wrote:Ehh okay, ekkert harkaleg viðbrögð við að brjóta lykil :thup: :lol:


Næstum jafn harkaleg og árið 2009, þegar hann læsti sig úti, og reif ekki bara hurðina heldur restina af húsinu niður með gröfu.