by íbbi_ » Tue 27. Apr 2004 23:49
ég hef verið að skoða verðið á bmw t.d í svíþjóð og finnst mér verðið hérna alltof hátt meðað við verð annara bíla,
gamlir bmw-ar (eins og t.d E32)eru vissulega miklir bílar sem veita manni ánægju útúr akstri sem er vissulega ekki hægt að ganga að sem vísri þótt um nýrri bíl sé að ræða, en þó finnst mér engu síður mikilvægt að fólk sé ekki að borga of mikið fyrir þá, þetta eru orðnir gamlir og margir hverjir mikið notaðir bílar,og viðhald þar af leiðandi eðlilega meira og þetta eru jú mjög tæknilegir bílar enda flaggskip síns tíma, sem gerir það að verkum að þessir bílar eru kannski stífari í viðhaldi en lítil púdda í sama aldursflokk, sést vel á hversu mikið verðmunurinn á t.d 730 og 750 færist nær hvor öðrum með hverju árinu og á endanum eru ásett verð komin í það sama og 730 bíllin líklegri til að seljast á því en 750 bíllin, það er ekkert grín að halda við 12cyl bíl með raf/tölvukerfi sem þessu við þegar hann er komin á þriðja hundrað þúsund km. tala nú ekki um eins og íslensk veðurfar er,
ég persónulega myndi ekki borga meira fyrir sona bíl í góðu standi en þann sem þú auglístir hér um daginn, ekki það að mér finnist bíll af þessu tagi vera verðlaust drasl, heldur sé ég kostin í þessum bílum að fá stóran og vægast sagt mikin bíl á sama verði og þætti eðlilegt að borga fyrir littla tík,
vinur minn sem vann hjá tækniþjónustu Bifreiða fékk einmitt 735 89 eins og nýjan ekin um 200 á undir 200k (lést í honum í bílslysi á vesturlandsvegi? í janúar síðastliðnum) það þótti mér verð sem ég væri til í að borga fyrir sona bíla og fá þar af leiðandi stóran og skemmtilegan bíl á lítin pening og eyða þá jafnvel aðeins meira í viðhald án þess að sjá eftir krónuni,
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll