Page 1 of 2

PLÍS HJÁLP! Geltandi hundur nágranna.

PostPosted: Mon 09. May 2011 21:15
by Grétar G.
Sælir félagar

Nú er ég búinn að vera pirraður á hunda gelti hjá nágranna heil lengi.

Ákvað nú loksins að ég væri búinn að fá mig full saddann og hringdi mjög rólegur og bað konuna sem svaraði að kippa hundinum inn þar sem hann væri búinn að vera geltandi á alla sem labba hérna framhjá og útihurðina hjá sér til að komast inn.

Haldiði að kella hafi ekki bara farið í þessa svakalegu vörn og byrjað að kalla mig helvítis dóna og eitthvað !

Þetta þýðir bara að ég ætla ekki lengur að vera almennilegur þegar kemur að þessu hundkvikindi og leita nú til ykkar hvort það er eitthvað sem ég get gert ?

Nei ég er ekki að fara yfir að stela hundinum eða skjóta hann (nema kópavogsbær gefi mér leyfi til þess).

Með von um góð svör
Pirraði gaurinn

Re: Hvað er hægt að gera í geltandi hundi hjá nágranna ?

PostPosted: Mon 09. May 2011 21:21
by Geirinn
Það er einmitt einn hundur hér í húsinu sem ýlfrar frá kl. c.a. 08:30 á morgnanna, þ.e. byrjar um leið og eigandinn stígur út um dyrnar. Þetta stendur oft yfir í nokkra klukkutíma í einu. Einstaklega skemmtilegt sérstaklega þegar þetta gerist um helgar.

:burn:

Re: Hvað er hægt að gera í geltandi hundi hjá nágranna ?

PostPosted: Mon 09. May 2011 21:21
by ///MR HUNG
Leystu hann bara og leyfðu honum að spretta í burtu.

Re: Hvað er hægt að gera í geltandi hundi hjá nágranna ?

PostPosted: Mon 09. May 2011 21:26
by Grétar G.
Geirinn wrote:Það er einmitt einn hundur hér í húsinu sem ýlfrar frá kl. c.a. 08:30 á morgnanna, þ.e. byrjar um leið og eigandinn stígur út um dyrnar. Þetta stendur oft yfir í nokkra klukkutíma í einu. Einstaklega skemmtilegt sérstaklega þegar þetta gerist um helgar.

:burn:


Shit myndi maður ekki brjálast ! Ég var að heyra að maður eigi að hringja í dýraeftirlitið og þeir sjái um þetta.. á víst að gelda geltandi hunda :thup:

///MR HUNG wrote:Leystu hann bara og leyfðu honum að spretta í burtu.


Styttist í það :twisted:

Re: Hvað er hægt að gera í geltandi hundi hjá nágranna ?

PostPosted: Mon 09. May 2011 21:29
by Geirinn
Grétar G. wrote:
Geirinn wrote:Það er einmitt einn hundur hér í húsinu sem ýlfrar frá kl. c.a. 08:30 á morgnanna, þ.e. byrjar um leið og eigandinn stígur út um dyrnar. Þetta stendur oft yfir í nokkra klukkutíma í einu. Einstaklega skemmtilegt sérstaklega þegar þetta gerist um helgar.

:burn:


Shit myndi maður ekki brjálast ! Ég var að heyra að maður eigi að hringja í dýraeftirlitið og þeir sjái um þetta.. á víst að gelda geltandi hunda :thup:


Ætli maður endi ekki á því að gera eitthvað í þessu ef maður fær eitthvað sumarfrí :lol:

Re: PLÍS HJÁLP! Geltandi hundur nágranna.

PostPosted: Mon 09. May 2011 21:34
by kalli*
Fá fleiri nágranna til að tala við kellinguna? Eflaust hlustar hún eitthvað ef að fleira fólk fer að kvarta.

Re: PLÍS HJÁLP! Geltandi hundur nágranna.

PostPosted: Mon 09. May 2011 22:12
by Grétar G.
Samkvæmt samþykkt um hundahald í Kópavogi stendur

í kaflanum um skyldur kemur framm í 10. grein

"Hundeiganda eða umráðamanni hunds er skylt að sjá til þess að hundur hans...raski ekki ró manna með stöðugu eða ítrekuðu gelti eða ýlfri. Eftirlitsaðili getur krafist þess að eigandi
hunds sæki hlýðninámskeið með hund sinn ef ástæða þykir til".

Síðan ef það dugar ekki, þá vísa ég í 14 grein. í kaflanum um valdsvið og þvingunarúrræði

"Sé um alvarlegt eða ítrekað brot á samþykkt þessari að ræða eða sinni hundeigandi eða umráðamaður
hunds ekki fyrirmælum eftirlitsaðila um úrbætur eða breytingu á hegðan hunds getur heilbrigðisnefnd
afturkallað skráninguna, bannað viðkomandi eiganda að vera með hund á eftirlitssvæðinu, gert
hundeiganda eða umráðamanni að koma hundi fyrir á öðrum stað, viðurkenndum af eftirlitsaðila eða látið
fjarlægja hundinn".

Að lokum vísa ég í 16. grein kaflans sem fjallar um viðurlög

"Brot gegn samþykkt þessari varða sektum. Með brot út af samþykktinni skal farið að hætti laga um
meðferð opinberra mála og að öðru leyti í samræmi við ákvæði laga nr. 7/1998, með síðari breytingum".

Re: PLÍS HJÁLP! Geltandi hundur nágranna.

PostPosted: Mon 09. May 2011 22:13
by Grétar G.
Sko mig :D Ég ætti bara að fara læra lögfræði :lol:

Re: PLÍS HJÁLP! Geltandi hundur nágranna.

PostPosted: Mon 09. May 2011 22:21
by Rafnars
Hvað þurftiru að klappa mörgum stelpum í lagadeild Háskólans til að finna þetta ? :lol:

Prófaðu að henda í hann beini eða bolta til að halda honum uppteknum :)

Re: PLÍS HJÁLP! Geltandi hundur nágranna.

PostPosted: Mon 09. May 2011 23:05
by jon mar
Bara skreppa í heimsókn með svona....

Image


Vandamálið úr sögunni.

Re: PLÍS HJÁLP! Geltandi hundur nágranna.

PostPosted: Mon 09. May 2011 23:23
by kalli*
Slakaðu nú aðeins á jon, þetta er lifandi vera.

Re: PLÍS HJÁLP! Geltandi hundur nágranna.

PostPosted: Mon 09. May 2011 23:25
by jon mar
kalli* wrote:Slakaðu nú aðeins á jon, þetta er lifandi vera.


Ekki taka þetta svona nærri þér. Bara létt djók. Ég hélt ekkert að þetta væri Ísbjörn eða neitt sko.
:mrgreen:


Annars er rétt að taka aðeins í hundaeigendur sem láta svona, enda ekki hundunum að kenna að eigendurnir séu bjánar.

Re: PLÍS HJÁLP! Geltandi hundur nágranna.

PostPosted: Tue 10. May 2011 00:49
by IngóJP
Grétar G. wrote:Samkvæmt samþykkt um hundahald í Kópavogi stendur

í kaflanum um skyldur kemur framm í 10. grein

"Hundeiganda eða umráðamanni hunds er skylt að sjá til þess að hundur hans...raski ekki ró manna með stöðugu eða ítrekuðu gelti eða ýlfri. Eftirlitsaðili getur krafist þess að eigandi
hunds sæki hlýðninámskeið með hund sinn ef ástæða þykir til".

Síðan ef það dugar ekki, þá vísa ég í 14 grein. í kaflanum um valdsvið og þvingunarúrræði

"Sé um alvarlegt eða ítrekað brot á samþykkt þessari að ræða eða sinni hundeigandi eða umráðamaður
hunds ekki fyrirmælum eftirlitsaðila um úrbætur eða breytingu á hegðan hunds getur heilbrigðisnefnd
afturkallað skráninguna, bannað viðkomandi eiganda að vera með hund á eftirlitssvæðinu, gert
hundeiganda eða umráðamanni að koma hundi fyrir á öðrum stað, viðurkenndum af eftirlitsaðila eða látið
fjarlægja hundinn".

Að lokum vísa ég í 16. grein kaflans sem fjallar um viðurlög

"Brot gegn samþykkt þessari varða sektum. Með brot út af samþykktinni skal farið að hætti laga um
meðferð opinberra mála og að öðru leyti í samræmi við ákvæði laga nr. 7/1998, með síðari breytingum".


Prentaðu þetta út og henntu þessu innum bréfalúguna til að byrja með

Re: PLÍS HJÁLP! Geltandi hundur nágranna.

PostPosted: Tue 10. May 2011 02:21
by gardara
Rafnars wrote:Hvað þurftiru að klappa mörgum stelpum í lagadeild Háskólans til að finna þetta ? :lol:

Prófaðu að henda í hann beini eða bolta til að halda honum uppteknum :)



Hann klappaði pottþétt bara Árna Birni :naughty:

Re: PLÍS HJÁLP! Geltandi hundur nágranna.

PostPosted: Tue 10. May 2011 03:10
by F2
Ég passa mig einmitt mega með þetta með minn hund!

Óþolandi svona dæmi, það var svona hundur í næsta húsi við mig.

Rosalega feginn að minn sé bara rólegur hérna útí garði