Hvar fæ ég gott loftskrall á góðu verði?

Posted:
Tue 22. Feb 2011 03:06
by Danni
Ég er að fara að vinna aðeins í fjöðruninni í bílnum mínum og mig langar til þess að kaupa mér loftskrall. Er með mjög góða loftpressu hérna heima en ekkert loftskrall!
Vill ekkert of dýrt en vill heldur ekkert ódýrt drasl sem dugar ekkert.
Re: Hvar fæ ég gott loftskrall á góðu verði?

Posted:
Tue 22. Feb 2011 09:32
by Axel Jóhann
Mæli ekki með því ódýrasta, það losar ekki jack.

Re: Hvar fæ ég gott loftskrall á góðu verði?

Posted:
Sat 26. Feb 2011 14:40
by Bjarkih
Würth er alveg málið, dýrt en endist að eilífu. Svo er krafturinn með afslátt þar IIRC
Re: Hvar fæ ég gott loftskrall á góðu verði?

Posted:
Sat 26. Feb 2011 16:14
by Jón Ragnar
Bjarkih wrote:Würth er alveg málið, dýrt en endist að eilífu. Svo er krafturinn með afslátt þar IIRC
Krafturinn er með 20% afslátt af verkfærum held ég
Re: Hvar fæ ég gott loftskrall á góðu verði?

Posted:
Sat 26. Feb 2011 18:19
by Lindemann
Ég er búinn að nota sama Förch loftlykilinn í 4 ár núna á hverjum degi í vinnunni og hann virkar fínt ennþá. Það þarf bara að passa að smyrja þetta reglulega eins og með önnur loftverkfæri.
Förch er frekar í ódýrari kantinum en fínt fyrir peninginn samt(var það allavega, þori ekki að segja til um hvort verðið hafi breyst mikið eftir að N1 tók við því).