Page 1 of 2

Way off topic: 50 ára afmælisgjöf???

PostPosted: Wed 05. Jan 2011 16:46
by ömmudriver
Sælir piltar og stelpur,

við systkynin erum nánast alveg lost þegar kemur að því að finna eitthvað sniðugt handa múttu í fimmtugs afmælisgjöf og því biðla ég til ykkar um hjálp [-o<

Það eina sem okkur hefur dottið í hug eru skartgripir and that's about it :x


Vinsamlegast varpið fram hugmyndum ef þið hafið eitthverjar góðar.


Mbk,
Arnar Már.

Re: Way off topic: 50 ára afmælisgjöf???

PostPosted: Wed 05. Jan 2011 16:54
by Jón Ragnar
Góð Cintamani flíspeysa mundi hitta vel á

Re: Way off topic: 50 ára afmælisgjöf???

PostPosted: Wed 05. Jan 2011 16:56
by tinni77
Rúnt í blæjunni

Re: Way off topic: 50 ára afmælisgjöf???

PostPosted: Wed 05. Jan 2011 17:46
by fart
Kanski að Sveinbjörn geti svarað þessu, þetta er nú hans target hópur :lol:

Kanski að hann gæti mætt á ermalausum bol og tryllt gömlu með smá lap-dance :drool: :drool:

Re: Way off topic: 50 ára afmælisgjöf???

PostPosted: Wed 05. Jan 2011 17:49
by srr
Hvað finnst gömlu gaman,,,,á hún ekki einhver áhugamál?
Eitthvað tengt áhugamálinu, föt, skór, skartgripir, gjafabréf í einhvers konar spa....etc.

Það eru mínar hugmyndir svona í fljótu bragði.

Re: Way off topic: 50 ára afmælisgjöf???

PostPosted: Wed 05. Jan 2011 18:18
by urban
gjafabréf hjá t.d. icelandair.

semsagt bjóða henni eitthvert út, en leifa henni að ráða hvert.

Re: Way off topic: 50 ára afmælisgjöf???

PostPosted: Wed 05. Jan 2011 18:23
by Alpina
fart wrote:Kanski að Sveinbjörn geti svarað þessu, þetta er nú hans target hópur :lol:

Kanski að hann gæti mætt á ermalausum bol og tryllt gömlu með smá lap-dance :drool: :drool:


Segðu,, maður hefur farið offari í samkvæmum stundum,, ÞVÍLÍK niðurlæging fyrir eymingja fólkið

úr að ofan ,, armbeygjur.. sjómann .. segja rönnsögur,,,,,,,, prrrrrrrrrrrrrrrrrhhhhhhhhhhhhhhh


fólk er ekki sjokkerað ,,það er lamað yfir ósvífninni og gauragangnum frá þessum hálfvita :lol: :lol: :lol: :lol:

nei þetta er gott,,

ekki fleiri MOMENT :?

Re: Way off topic: 50 ára afmælisgjöf???

PostPosted: Wed 05. Jan 2011 18:46
by srr
urban wrote:gjafabréf hjá t.d. icelandair.

semsagt bjóða henni eitthvert út, en leifa henni að ráða hvert.

Hehehe hún hefur EKKERT við þetta að gera skal ég segja þér :lol:

Re: Way off topic: 50 ára afmælisgjöf???

PostPosted: Wed 05. Jan 2011 19:43
by ömmudriver
John Rogers wrote:Góð Cintamani flíspeysa mundi hitta vel á


Lýst þokkalega vel á þessa hugmynd.

tinni77 wrote:Rúnt í blæjunni


Úr því að þú minnist á blæjuna..............
..........mútta vill meina að bíllinn hennar sé kraftmeiri en blæjan mín og skilji blæjuna hreinlega eftir í reyk en hún á sjálfskipta Imprezu árgerð 2008, TRUE STORY en meiningin er að bjóða henni rúnt í blæjunni næsta sumar og spóla í nokkra hringi og reyna að hræða úr henni líftóruna :lol: Nú eða leyfa gamla settinu að fara einn rúnt saman á blæjunni :)

fart wrote:Kanski að Sveinbjörn geti svarað þessu, þetta er nú hans target hópur :lol:

Kanski að hann gæti mætt á ermalausum bol og tryllt gömlu með smá lap-dance :drool: :drool:


Ég sprakk úr hlátri þegar ég las þetta :lol2:

srr wrote:
urban wrote:gjafabréf hjá t.d. icelandair.

semsagt bjóða henni eitthvert út, en leifa henni að ráða hvert.

Hehehe hún hefur EKKERT við þetta að gera skal ég segja þér :lol:


Mikið rétt hjá Skúla en gamli er að vinna hjá IGS sem er dótturfyrirtæki Icelandair og þau hjúin fara reglulega út á frímiðum og eru t.d. nýkomin af mótorhjólasýningu í Seattle :lol:

Re: Way off topic: 50 ára afmælisgjöf???

PostPosted: Wed 05. Jan 2011 21:21
by HPH
Gefðu þeim þá gjafabréf hjá Iceland Express :lol:
En annars er kanski sniðugt gjafabréf út að borða á flottum stað eins og La Prímavera, Hotel Borg, lækjabrekku ofl. það er svona 20.000

Re: Way off topic: 50 ára afmælisgjöf???

PostPosted: Wed 05. Jan 2011 22:00
by jeppakall
Persónulega finnst mér að 50ára afmælisgjöf ætti að vera eitthvað annað en gjafabréf sem endist ekkert,

þetta þarf að vera eitthvað sem mamma þín hugsar til þegar hún er hund gömul að skrifa erfðaskrána,

þú færð líka mun stærri plús í kladdann ef þetta er eitthvað sem á eftir að fylgja henni.

Skartgripi er hægt að handsmíða eftir þörfum viðskiptavina, taktu saman skartgripina sem mamma þín

notar reglulega og farðu til einhvers skartgripahönnuðar og láttu hann búa eitthvað til fyrir þig!

Þetta eru listamenn og það kostar ekkert að láta þá teikna eina mynd fyrir þig sem hugmynd.

Þeir þurfa bara að vita hvernig skartgripi mamma þín notar reglulega til að sjá eitthvað trend.

Þetta er dýrt er hún verður sjúklega ánægð, múttan mín var það allavega!

Re: Way off topic: 50 ára afmælisgjöf???

PostPosted: Wed 05. Jan 2011 22:43
by Spiderman
Ég hef nokkrum sinnum við svona tilefni keypt málverk beint af listamönnum. Prísinn er oft svona 50% af galleríverði, t.d. lítil 50 þús króna mynd á ca. 25 þús.

Re: Way off topic: 50 ára afmælisgjöf???

PostPosted: Wed 05. Jan 2011 23:01
by íbbi_
mér fannst hugmyndin um gjafarkort í e-h spa. nudd og svona allherjardekur nokk sterk, ég gaf álíka við svipað tilefni, og það var eflaust ein af mínum best metnu gjöfum

Re: Way off topic: 50 ára afmælisgjöf???

PostPosted: Thu 06. Jan 2011 00:12
by billi90
inniskó!

Re: Way off topic: 50 ára afmælisgjöf???

PostPosted: Thu 06. Jan 2011 00:45
by Thrullerinn
Misjafn er áhuginn hjá fólki en sjaldan hef ég verið stoltari af nokkurri gjöf heldur eames ruggustóll fyrir tengdó síðustu jól, 40-50 ára gamall stóll, vissi að henni langaði í hann, allir sameinuðust í þessum pakka.

..hvað langar henni í en hefur aldrei haft sig út í að fá sér.