bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
smá svartsýni fyrir USA https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=47734 |
Page 1 of 1 |
Author: | Bjarkih [ Sat 23. Oct 2010 23:21 ] |
Post subject: | smá svartsýni fyrir USA |
http://www.wimp.com/nationaldebt/ |
Author: | Svessi [ Wed 27. Oct 2010 21:06 ] |
Post subject: | Re: smá svartsýni fyrir USA |
Málið er bara að þetta er satt. Það er ekki spurning um hvort heldur hvenær kreppan "byrjar" hjá þeim. Og svo er ekkert gert til að reyna laga þetta að svo virðist, bara allt fullt af lobbiistum. Og meira að segja þrátt fyrir að ástandið sé svona þá er verið að reyna halda því áfram að þeir ríkustu fái tax cut. Þeir sem eiga peningana í bandaríkjunum stjórna. Ég fylgist dálítið með fréttum frá bandaríkjunum, og mér hefur stundum dálítið fundist eins og þeir séu á svipuðu róli og ísland var í fyrri hluta árs 2008. Þótt það sé kannski ekki alveg hægt að bera þetta saman, þá samt í stuttum máli sagt: Það eru peningar í umferð, það er samt allt í rugli, almenningur hefur ekki áttað sig almennilega á stöðunni, ráðamenn vita af þessu en gera ekki neitt. Lönd sem hafa lánað bandaríkjunum eru farin að segja stopp. Ég held að það verði áhugavert að sjá hversu góðir vinir þeir í Saudi Arabia eru þegar bandaríkin fara að hallast á hliðina. Það er enginn að fara bailout-a bandaríkin, hvorki geta né kannski vilja, nema þá að ég held kannski Saudi Arabia. Svo er auðvitað spurningin hvaða lönd myndu falla í kjölfarið. Ég yrði ekkert hissa á því að við eigum eftir að sjá gjörbreytta heimsmynd á næstu tveim áratugum, ekki nema þá Nibiru komi hérna eftir tvö ár og rústi öllu. |
Author: | Bjarkih [ Wed 27. Oct 2010 21:53 ] |
Post subject: | Re: smá svartsýni fyrir USA |
Ég var að ræða þetta við kunningja minn sem lærði hagfræði og hann spáir því að USA muni lækka gengið á dollarnum til að hjálpa sér út úr þessu. Gæti hjálpað þeim sem eru með lán í dollurum en ekki tekjur. En það er satt hjá þér þeir eru í mjög vondum málum sbr: http://www.spiegel.de/international/zeitgeist/0,1518,712496,00.html#ref=nlint |
Author: | íbbi_ [ Thu 28. Oct 2010 08:05 ] |
Post subject: | Re: smá svartsýni fyrir USA |
kína sogast svo inní þetta þar sem þeir eru búnir að kaupa upp bandarísk ríkisskuldabref og flr og nú lækkar þeirra gjaldmiðill á sama tíma og það er fasteignabóla dauðans í gangi þar |
Author: | jonthor [ Thu 28. Oct 2010 10:27 ] |
Post subject: | Re: smá svartsýni fyrir USA |
Þetta vandamál er engan vegin einskorðað við USA. Mikið verra vandamál í mörgum EU ríkjum, Meðal skuldsetninging G20 ríkjanna er 80% af GDP (60% í USA) og í EU er enginn skortur á off-balance sheet liabilities eins og í USA, þ.e. lífeyriskerfið ofl. (þetta er reyndar eitt gott við okkar kerfi, einu off-balance sheet skuldirnar vegna okkar lífeyriskerfi eru vegna Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, en ekki stærri hluta / alls kerfisins eins og á flestum öðrum stöðum, engu að síður er um að ræða 400 ma. gat í LSR) BNA eru hins vegar að gera stjarnfræðilega vitlausa hluti í peningaprentun. En þetta er alltaf sama sagan. Síðustu ár hafa verið úttekt á mögulegum hagvexti framtíðarinnar fjármagnað með lántöku. Nú er skuldsetningin þannig að slíkt er ekki hægt lengur og tími lækkun skuldsetningar framundan allsstaðar. Reyndar spáir IMF að skuldsetning G20 ríkjanna fari fyrst í 120% af GDP árið 2014 og lækki svo, en engu að síður alls ekki bjart framundan. Varðandi Kína, þá eru fasteignarverðin í sumum borgum orðin þannig að ekki er lengur nein spurning um hvort verðið lækkar, heldur hvenær og þá væntanlega með látum. |
Author: | íbbi_ [ Thu 28. Oct 2010 10:42 ] |
Post subject: | Re: smá svartsýni fyrir USA |
það verður væntanlega risa hrun í kína, sum normal hús eru kominn í yfir 1 miljarð isk, en það er spurning hvort að viðskiptakommarnir falli við þetta |
Author: | Bjarkih [ Thu 28. Oct 2010 12:38 ] |
Post subject: | Re: smá svartsýni fyrir USA |
Málið er nú samt að kínverjar eiga gífurlega varasjóði, spurning hvort það dempi ekki sjokkið. |
Author: | jonthor [ Fri 29. Oct 2010 09:41 ] |
Post subject: | Re: smá svartsýni fyrir USA |
Nouriel rubini: http://www.visir.is/bandarikin-eru-a-le ... 1021066817 |
Author: | Thrullerinn [ Fri 29. Oct 2010 12:58 ] |
Post subject: | Re: smá svartsýni fyrir USA |
Bjarkih wrote: Málið er nú samt að kínverjar eiga gífurlega varasjóði, spurning hvort það dempi ekki sjokkið. Er ekki Bandaríkin ágætis varasjóður? |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |