Page 1 of 2

Þarf hjálp við að nafngreina þennan mann ! Stolinn bíll !

PostPosted: Wed 29. Sep 2010 13:20
by bErio
Komið á hreint.

Re: Þarf hjálp við að nafngreina þennan mann ! Stolinn bíll

PostPosted: Wed 29. Sep 2010 13:29
by Misdo
djöfulsins aumingji er ekki hægt að láta bensínstöðvarnar hafa auga með þessum bíl ?

Re: Þarf hjálp við að nafngreina þennan mann ! Stolinn bíll

PostPosted: Wed 29. Sep 2010 13:38
by SteiniDJ
Síðan hverfa þessi númer örugglega af bílnum og enda á öðrum bíl sem verður eflaust notað í það sama. Ég skal hafa augun mín opin.

Re: Þarf hjálp við að nafngreina þennan mann ! Stolinn bíll

PostPosted: Wed 29. Sep 2010 13:46
by bErio
Bíllinn er fundinn og var að koma í Vöku
En ég þarf samt að finna þennan gæa og tala við hann :wink:

Re: Þarf hjálp við að nafngreina þennan mann ! Stolinn bíll

PostPosted: Wed 29. Sep 2010 13:47
by gardara
Látum CSI tólin finna út hver maðurinn er!

Re: Þarf hjálp við að nafngreina þennan mann ! Stolinn bíll

PostPosted: Wed 29. Sep 2010 14:30
by drolezi
Hvaða bensínstöð er þetta? Þarf greinilega aðeins að ræða við starfsfólkið þarna. Þessi mynd á ekki heima á internetinu.

Re: Þarf hjálp við að nafngreina þennan mann ! Stolinn bíll

PostPosted: Wed 29. Sep 2010 15:04
by fart
drolezi wrote:Hvaða bensínstöð er þetta? Þarf greinilega aðeins að ræða við starfsfólkið þarna. Þessi mynd á ekki heima á internetinu.

Af hverju ekki?

Re: Þarf hjálp við að nafngreina þennan mann ! Stolinn bíll

PostPosted: Wed 29. Sep 2010 15:15
by drolezi
fart wrote:
drolezi wrote:Hvaða bensínstöð er þetta? Þarf greinilega aðeins að ræða við starfsfólkið þarna. Þessi mynd á ekki heima á internetinu.

Af hverju ekki?

Persónuverndarsjónarmið. Beinlínis ólöglegt.

Re: Þarf hjálp við að nafngreina þennan mann ! Stolinn bíll

PostPosted: Wed 29. Sep 2010 15:17
by Aron Andrew
Er nú ekki litið framhjá því í svona tilfellum?

Re: Þarf hjálp við að nafngreina þennan mann ! Stolinn bíll

PostPosted: Wed 29. Sep 2010 15:34
by tinni77
drolezi wrote:
fart wrote:
drolezi wrote:Hvaða bensínstöð er þetta? Þarf greinilega aðeins að ræða við starfsfólkið þarna. Þessi mynd á ekki heima á internetinu.

Af hverju ekki?

Persónuverndarsjónarmið. Beinlínis ólöglegt.

Ef gaurinn stelur bíl og líka bensíni á hann þá getur hann bara sjálfum sér um kennt, bara betra að fólk viti hvernig hann lítur út þegar hann stelur einhverju næst....

Re: Þarf hjálp við að nafngreina þennan mann ! Stolinn bíll

PostPosted: Wed 29. Sep 2010 15:42
by jeppakall
drolezi wrote:Hvaða bensínstöð er þetta? Þarf greinilega aðeins að ræða við starfsfólkið þarna. Þessi mynd á ekki heima á internetinu.

drolezi wrote:Persónuverndarsjónarmið. Beinlínis ólöglegt.

Ég get ekki séð hvað sé ólöglegt við að birta mynd af einstakling sem er að fremja lögbrot. Eru sem sagt allar myndir af fólki sem lögreglan biður um hjálp við að nafngreina til þess að upplýsa glæp ólöglegar?

Ef bílnum þínum væri stolið, myndir þú ekki biðja um hjálp við að finna gaurinn ef þú værir með hann á video?

Re: Þarf hjálp við að nafngreina þennan mann ! Stolinn bíll

PostPosted: Wed 29. Sep 2010 15:59
by ÁgústBMW
http://www.personuvernd.is/spurningar-og-svor/rafraen-voktun/nr/473
Verslunareigendum, og öðrum sem hafa sett upp eftirlitsmyndavélakerfi, er þannig óheimilt að hengja upp, setja á netið eða dreifa á annan hátt myndum af einstaklingi sem þeir gruna um þjófnað, án leyfis viðkomandi einstaklings eða Persónuverndar. Enda er að íslenskum rétti það talið verkefni lögreglu að rannsaka brotamál, en ekki hins almenna borgara.

Re: Þarf hjálp við að nafngreina þennan mann ! Stolinn bíll

PostPosted: Wed 29. Sep 2010 16:15
by Zed III
agust94 wrote:http://www.personuvernd.is/spurningar-og-svor/rafraen-voktun/nr/473
Verslunareigendum, og öðrum sem hafa sett upp eftirlitsmyndavélakerfi, er þannig óheimilt að hengja upp, setja á netið eða dreifa á annan hátt myndum af einstaklingi sem þeir gruna um þjófnað, án leyfis viðkomandi einstaklings eða Persónuverndar. Enda er að íslenskum rétti það talið verkefni lögreglu að rannsaka brotamál, en ekki hins almenna borgara.

Er þá ekki hægt að birta myndina og auglýsa eftir manninum til að gefa leyfi fyrir að myndin verði notuð til að upplýsa þjófnað.

If you can't do the time, don't do the crime.

Re: Þarf hjálp við að nafngreina þennan mann ! Stolinn bíll

PostPosted: Wed 29. Sep 2010 16:25
by ÁgústBMW
Zed III wrote:

ekki nema með sérstöku leyfi persónuverndar

Re: Þarf hjálp við að nafngreina þennan mann ! Stolinn bíll

PostPosted: Wed 29. Sep 2010 16:26
by Kristjan
Þú ert saklaus þangað til það er búið að dæma þig. Street justice er ekki alltaf málið.