Page 1 of 2

Vinna myndirnar - klisja, óþarfi?

PostPosted: Mon 20. Sep 2010 23:38
by Kristjan
Ég vil byrja á að segja að ég ber mikla virðingu fyrir mönnum sem eru að taka myndir af atburðum.

Fúlt þykir mér hinsvegar að það eru alltaf að koma færri og færri myndir á netið frá hinum og þessum atburðum vegna þess að menn hafa ekki tíma til að "vinna" þær.

Er virkilega nauðsynlegt að photosjoppa hverja einustu mynd áður en hún er sett á netið?

Er ekki bara nóg að láta picasa watermarka þær og henda þessu strax á netið?

Ég bara spyr...

Mín vegna þurfa menn ekkert að gera og græja, setja þær bara frekar á netið og leyfa fólki að njóta þeirra. :)

Re: Vinna myndirnar - klisja, óþarfi?

PostPosted: Mon 20. Sep 2010 23:42
by BlitZ3r
Nkl

Hélt að það þyrfti varla að vinna myndir í ps úr svona dýrum vélum sem flestir eru með
tek fram að ég hef 0 áhuga á myndatöku, set vélinna á auto og ýti á takkan, búið

Re: Vinna myndirnar - klisja, óþarfi?

PostPosted: Mon 20. Sep 2010 23:48
by SteiniDJ
Myndvinnsla er svo stór hluti af myndinni og í mörgum tilfellum verður myndin aldrei söm án myndvinnslu.

Re: Vinna myndirnar - klisja, óþarfi?

PostPosted: Tue 21. Sep 2010 00:04
by gardara
SteiniDJ wrote:Myndvinnsla er svo stór hluti af myndinni og í mörgum tilfellum verður myndin aldrei söm án myndvinnslu.



Brenglaðar myndir af bílum eru þreytandi til lengdar...

Re: Vinna myndirnar - klisja, óþarfi?

PostPosted: Tue 21. Sep 2010 00:18
by Axel Jóhann
Stundum ÞARF bara að laga myndir örlítið til svo að þær séu ekki bara ljótar. En ég er sammála, öllu er hægt að ofgera. En í dýrari vélum held ég að það séu fleiri stillingar til að fikta og prófa sig áfram með og þessvegna er gott að geta lagað eða breytt einhverju eftirá.

Re: Vinna myndirnar - klisja, óþarfi?

PostPosted: Tue 21. Sep 2010 00:57
by SteiniDJ
gardara wrote:
SteiniDJ wrote:Myndvinnsla er svo stór hluti af myndinni og í mörgum tilfellum verður myndin aldrei söm án myndvinnslu.



Brenglaðar myndir af bílum eru þreytandi til lengdar...


Sammála, en ég er ekki að tala um brenglaðar myndir. ;)

Re: Vinna myndirnar - klisja, óþarfi?

PostPosted: Tue 21. Sep 2010 16:31
by Aron Andrew
Myndin er ekki tilbúin beint úr vélinni, það þarf að framkalla hana.

Re: Vinna myndirnar - klisja, óþarfi?

PostPosted: Tue 21. Sep 2010 16:39
by Haukur.RACER
það er rétt Andrew ef þú ert að taka í Raw... þú getur alveg tekið í Jpeg og keyrt vélina niður í stærð á jpeg myndinni og skellt þeim beint á netið.

ég er hinsvegar tilturlega nýr í þessari dellu, en ég skil ljósmyndara mjög vel sem vilja eiga aðeins við myndirnar áður en þær eru settar á netið.. það getur getur munað stórkostlega á myndunum..

og þeir sem eru að fara njóta myndanna, jafnvel eigendur tækjana.. þeir kvarta væntanlega ekki að fá mynd sem er kanski uppá 9 í stað þess að vera uppá 6 .. eða hvað ?

Re: Vinna myndirnar - klisja, óþarfi?

PostPosted: Tue 21. Sep 2010 16:46
by Jón Ragnar
Þetta er voðalega mikið hitamál svosem

Þeir sem vilja fá myndir er eflaust sama hvernig þær eru unnar, með ramma og watermark

Aðrir villja leggja mikla vinnu í 200-300 samkomumyndir sem skiptir kannski ekki eins miklu máli


Persónulega finnst mér allt í lagi að strumpa inn fullt af samkomu myndum og bara resiza þær kannski og þeir sem vilja geta beðið ljósmyndarann um að photoshoppa meira

Re: Vinna myndirnar - klisja, óþarfi?

PostPosted: Tue 21. Sep 2010 16:50
by MR.BOOM
Þetta er ein af ástæðum fyrir því að ég er hættur að dæla myndum inn á þessi spjöll.....ekkert nema vanþakklæti og væl.........

Re: Vinna myndirnar - klisja, óþarfi?

PostPosted: Tue 21. Sep 2010 16:57
by Jón Ragnar
Ekki taka þetta sem ég er að segja sem vanþakklæti :)

Re: Vinna myndirnar - klisja, óþarfi?

PostPosted: Tue 21. Sep 2010 17:22
by SteiniDJ
MR.BOOM wrote:Þetta er ein af ástæðum fyrir því að ég er hættur að dæla myndum inn á þessi spjöll.....ekkert nema vanþakklæti og væl.........


Ekki vera svona viðkvæmur, ljúfur!

Re: Vinna myndirnar - klisja, óþarfi?

PostPosted: Tue 21. Sep 2010 18:42
by Rafnars
Kristjan wrote:Ég vil byrja á að segja að ég ber mikla virðingu fyrir mönnum sem eru að taka myndir af atburðum.

Fúlt þykir mér hinsvegar að það eru alltaf að koma færri og færri myndir á netið frá hinum og þessum atburðum vegna þess að menn hafa ekki tíma til að "vinna" þær.

Er virkilega nauðsynlegt að photosjoppa hverja einustu mynd áður en hún er sett á netið?

Er ekki bara nóg að láta picasa watermarka þær og henda þessu strax á netið?

Ég bara spyr...

Mín vegna þurfa menn ekkert að gera og græja, setja þær bara frekar á netið og leyfa fólki að njóta þeirra. :)



Ef maður horfir á þetta frá öðru sjónarhorni þá breytist nú myndin.

Tökum til dæmis bíl, þegar þú þrífur bílinn þinn þá viltu nú ekki láta sjá það að þú hafir gleymt einum blett hér og þar er það nokkuð? Tala nú ekki um ef bíllinn er að fara á stað þar sem margir sjá hann...

Ég kýs að þrífa bílinn minn vel og þurrka eftirá, eins kýs ég að taka myndir og vinna smá eftirá til að gera þær flottari en ekki að hafa þær eins hráar og þær eru beint úr vélinni. Það breytir flottri mynd oftar en ekki í geggjaða :wink: .
Svo vinn ég myndirnar ekki mikið heldur laga ég aðeins til lýsingu og lit.

Svo má fólk ekki gleyma að það tekur slatta tíma að fara í gegnum allar myndirnar sem voru teknar og velja þær sem eiga að fara á netið :)

Re: Vinna myndirnar - klisja, óþarfi?

PostPosted: Tue 21. Sep 2010 20:46
by danni orn smarason
já alveg sammála sumum hérna maður þarf að vinna þær smá heima en eitt sem ég vill vita er að ef maður ætlar að láta inn myndir hvar ætti maður að gera það :)









http://www.flickr.com/photos/danni96/ myndirnar mínar eru hér allavegna

Re: Vinna myndirnar - klisja, óþarfi?

PostPosted: Tue 21. Sep 2010 20:57
by Rafnars
danni orn smarason wrote:já alveg sammála sumum hérna maður þarf að vinna þær smá heima en eitt sem ég vill vita er að ef maður ætlar að láta inn myndir hvar ætti maður að gera það :)
http://www.flickr.com/photos/danni96/ myndirnar mínar eru hér allavegna


Það vantar að gera Myndatöku-forum hingað fyrir ljósmyndarana. Er svosem enginn annar staður til að setja myndirnar inn nema í þráðinn sem fjallar um efnisvið myndanna... Eða í offtopic forum-inn