bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Kvartmíluklúbburinn ekki að gera sig https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=47066 |
Page 1 of 3 |
Author: | tinni77 [ Sat 18. Sep 2010 20:22 ] |
Post subject: | Kvartmíluklúbburinn ekki að gera sig |
Í dag var haldin svokölluð Auto-X keppni á Kvartmílubrautinni og langar mig að segja frá atviki sem verður seint gleymt. Dagurinn byrjar þannig að ég vakna kl hálf11 upp við símann, Aron Jarl að hringja að spurja hvort ég væri ekki kominn uppá braut, ég segi nei, auto-xið byrjar ekki fyrr en eftir 1/8, s.s. kl 4, þá segir hann að það sé búið að breyta því og verði keyrt samhliða 1/8 (persónulega finnst mér að Klúbburinn ætti að láta fólk vita með sms-i að breyting á tímasetningunni), allt í góðu, ég dríf mig uppeftir, borga 3000 kr í keppnisgjöld og tek tvö tímatökurönn. Svo þegar þau eru búin er ákveðið að klára bara 1/8 en samt búnir að segja að þetta yrði keypt til skiptis. Við bíðum í 5 klst ! Ætlaði upphaflega að horfa á RC á meðan 1/8 var en neeei. Svo klárast 1/8, einn keppandi í 1/8 hafði dreift olíu yfir stóran part af brautinni og þá breyta þeir bara brautinni. Engin æfingarönn, og segja við okkur að brautin liggi nú framhjá olíunni. Ég fer fyrstur, í kringum 300 m var 180 gráður í kringum keilu, ég beygji, lendi í olíupolli, reykur úr framdekkjunum, strauja útaf og rispa framsvuntuna í drasl. Aron fer þriðji af stað, ætlar að stöðva í þrautinni, slædar bara eins og í hálku og yfir keilurnar. Við förum og krefjumst endurgreiðslu því við borguðum ekki fyrir einhverja listdanskeppni á bílum. Þá fáum við bara þvert nei, haft eftir formanni KK:"Betra er að hafa ykkur keppendur fúla heldur en áhorfendur" Það er alveg klárt mál að ég mun aldrei leggja krónu í þennan klúbb aftur og mun ég framvegis hvetja fólk til að sneiða framhjá þessum klúbb, og borga EKKI inn á atburði hjá þessu skítabatteríi. Kv. |
Author: | gunnar [ Sat 18. Sep 2010 20:26 ] |
Post subject: | Re: Kvartmíluklúbburinn ekki að gera sig |
Ætla ekki að taka undir né lasta það sem Tinni segir en fyrirkomulag og skipulagning á þessu var fyrir neðan allar hellur. Ég sem áhorfandi var MEGA fúll og pirraður yfir því að hafa mætt þarna. Endalausar tafir og vesen. Fór heill laugardagur eiginlega bara í að bíða eftir Auto X sem ég á endanum sá aldrei því ég fór útaf kulda og leiðindum. |
Author: | ppp [ Sat 18. Sep 2010 20:28 ] |
Post subject: | Re: Kvartmíluklúbburinn ekki að gera sig |
tinni77 wrote: ÍVið förum og krefjumst endurgreiðslu því við borguðum ekki fyrir einhverja listdanskeppni á bílum. Þá fáum við bara þvert nei, haft eftir formanni KK:"Betra er að hafa ykkur keppendur fúla heldur en áhorfendur" Hefði haldið að þeir gætu bara endurgreitt þetta klink og haft alla ánægða? Lélegt. |
Author: | Vlad [ Sat 18. Sep 2010 20:34 ] |
Post subject: | Re: Kvartmíluklúbburinn ekki að gera sig |
Er bara ekki réttast að einhver úr þessum klúbb svari bara fyrir sig í þessum þræði? |
Author: | tinni77 [ Sat 18. Sep 2010 20:36 ] |
Post subject: | Re: Kvartmíluklúbburinn ekki að gera sig |
Vlad wrote: Er bara ekki réttast að einhver úr þessum klúbb svari bara fyrir sig í þessum þræði? Miðað við svörin sem ég Fannar, Dóri og Aron fengum áðan þá þýðir ekkert að ræða við þetta lið, ég held ég hafi aldrei kynnst jafnmiklum puslum á ævinni... |
Author: | Andri sti [ Sat 18. Sep 2010 20:57 ] |
Post subject: | Re: Kvartmíluklúbburinn ekki að gera sig |
og ég sem var að pæla í að taka þátt í dag og borga ársgjald + keppnisgjaldið , eins gott að ég gerði það ekki ! hætti við útaf ónýtum dekkjum . hefði verið gaman að vinna þetta þó ![]() |
Author: | aronjarl [ Sat 18. Sep 2010 20:58 ] |
Post subject: | Re: Kvartmíluklúbburinn ekki að gera sig |
Þetta Auto-X var auglýst með þessa helgi til að fá meira að áhofendum til að borga í kassan. Að geta ekki séð sóma sinn og leysa svona mál eins og eðlilegur eintaklingur er ekki formaður fyrir fimm aur.! Í dag komst greinilega upp um innri mann stjórnenda á þessu svæði og kemst ekkert annað að í huga þeirra en v8 amerískir bílar á brautina! Ég ætla gera allt mitt að mæla með að fólk greiði sig ekki inní þetta klíku félag. Það er árið 2010.!!! Breyttir tímar. |
Author: | Jón Ragnar [ Sat 18. Sep 2010 21:02 ] |
Post subject: | Re: Kvartmíluklúbburinn ekki að gera sig |
Sleppið að borga ársgjaldið til KK og smellið því í DDA frekar ![]() |
Author: | gunni_litli [ Sat 18. Sep 2010 21:06 ] |
Post subject: | Re: Kvartmíluklúbburinn ekki að gera sig |
oki ég er sammála því að þið áttuð að fá endurgreitt (allavegana að hluta til)... en mér finnst kannski soldið hart skotið hjá ykkur þótt það sé EINN maður sem neitar að borga eins og jón bjarni sagði áðan þegar hann var spurður. þá sagði hann taliði við ingó hann ræður þessu... þýðir ekki að bresta í grátur yfir þessu frekar að reyna ræða málin við þennan ingó. og ég mun vera hlutlaus í þessu máli |
Author: | agustingig [ Sat 18. Sep 2010 21:09 ] |
Post subject: | Re: Kvartmíluklúbburinn ekki að gera sig |
Þetta finnst mér nú lélegt,, engin æfingarrönn á "nýju" brautinni? og átti ekki að bremsa þarna í olíu pollinum?? ![]() ![]() |
Author: | tinni77 [ Sat 18. Sep 2010 21:10 ] |
Post subject: | Re: Kvartmíluklúbburinn ekki að gera sig |
gunni_litli wrote: oki ég er sammála því að þið áttuð að fá endurgreitt (allavegana að hluta til)... en mér finnst kannski soldið hart skotið hjá ykkur þótt það sé EINN maður sem neitar að borga eins og jón bjarni sagði áðan þegar hann var spurður. þá sagði hann taliði við ingó hann ræður þessu... þýðir ekki að bresta í grátur yfir þessu frekar að reyna ræða málin við þennan ingó. og ég mun vera hlutlaus í þessu máli Við fórum allir fjórir og töluðum við Ingó, og svörin sem komu út úr þessum manni voru hreint út sagt ömurleg í alla staði ![]() ![]() ![]() |
Author: | Dóri- [ Sat 18. Sep 2010 21:12 ] |
Post subject: | Re: Kvartmíluklúbburinn ekki að gera sig |
hef einmitt tekið eftir þessu með KK það eru alltaf endalausar tafir |
Author: | Alpina [ Sat 18. Sep 2010 21:12 ] |
Post subject: | Re: Kvartmíluklúbburinn ekki að gera sig |
Vá...... hörð skot ![]() |
Author: | tinni77 [ Sat 18. Sep 2010 21:13 ] |
Post subject: | Re: Kvartmíluklúbburinn ekki að gera sig |
agustingig wrote: Þetta finnst mér nú lélegt,, engin æfingarrönn á "nýju" brautinni? og átti ekki að bremsa þarna í olíu pollinum?? ![]() ![]() Neinei, engin æfing og jú, akkúrat þarna í pollinum, svo þegar við sögðum FORMANNI KK frá þessu að þetta væri bara hættulegt (þá var keppnin í fullum gangi) þá var það bara hundsað..... |
Author: | gunnar [ Sat 18. Sep 2010 23:58 ] |
Post subject: | Re: Kvartmíluklúbburinn ekki að gera sig |
Hvað ekkert í gangi. Var að vonast eftir algjörum popp&coke þræði í kvöld maður ![]() |
Page 1 of 3 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |