Jæja hver var að gera góða hluti?
Tveir Suðurnesjapiltar undir tvítugu voru fluttir undir læknishendur eftir að BMW-bíll þeirra lenti utan vegar á Reykjanesbraut um klukkan átta í gærkvöldi. Ökumaðurinn rotaðist og var fluttur til Reykjavíkur til nánari skoðunar en farþeginn er útskrifaður. Óhappið varð þar sem verið er að gera nýtt hringtorg ofan við Grænlandleiðs. Að sögn lögreglu eru framkvæmdirnar vel merktar og þar gildir 50 kílómetra hámarkshraði. Lögregla telur ökumanninn unga hafa ekið of greitt. Bíllinn, sem fór utan í moldarbarð og yfir á öfugan vegarhelming, var dreginn á brott.


