Page 1 of 2

Grein í nýjasta Séð og Heyrt.

PostPosted: Fri 13. Aug 2010 14:16
by gulli
Fékk séð og heyrt innum lúgunna í gær,, og gat ekki annað en hlegið smá þegar ég las eftirfarandi grein.

Á 20 MILLJÓNA KRÓNA BMW!

Bíll Kristínar er einn sá alflottasti á markaðinum í dag og er verðið eftir því. Kristín er einn annar stofnenda af Auður capital fjármálafyrirtækisins og núverandi eigandi og forstjóri, og keyrir um borgina á því sem bílasalar kalla "einn rosalegasta bílinn á markaðinum í dag" þetta er Bmw 630i sportbíll og var fluttur inn nýr árið 2007 þegar kristín festi kaup á honum. Þeim tíma var sportbíllinn falur á 10,1 milljónir en er í dag metinn á 20.milljónir "Og ekki af ástæðu lausu" því bíllinn er búinn fullkomnu hljóðkerfi er tveggja dyra og 190 hestöfl!

:rofl:
þetta er alveg án efa eitt mesta tryllitæki sem þú færð fyrir 20 kúlur í dag :mrgreen:

Re: Grein í nýjasta Séð og Heyrt.

PostPosted: Fri 13. Aug 2010 14:28
by Bjarkih
100% ávöxtun, ekki slæm fjárfesting það! :santa:

Re: Grein í nýjasta Séð og Heyrt.

PostPosted: Fri 13. Aug 2010 14:35
by Jónas
Hhahahahahah

Re: Grein í nýjasta Séð og Heyrt.

PostPosted: Fri 13. Aug 2010 14:56
by gunnar
Vá! Mig langar í 190 hestafla 630 á 20 millz! :lol:

Re: Grein í nýjasta Séð og Heyrt.

PostPosted: Fri 13. Aug 2010 15:01
by jens
FAIL

Re: Grein í nýjasta Séð og Heyrt.

PostPosted: Fri 13. Aug 2010 15:18
by Jón Ragnar
Hver tekur það að sér að vera reiði og birtri BMWnöttarinn og senda þeim póst með mikli besservisku.

Og auðvitað hafa okkur í cc :lol:

Re: Grein í nýjasta Séð og Heyrt.

PostPosted: Fri 13. Aug 2010 15:29
by Zed III
John Rogers wrote:Hver tekur það að sér að vera reiði og birtri BMWnöttarinn og senda þeim póst með mikli besservisku.

Og auðvitað hafa okkur í cc :lol:


Eru fleiri en einn sem koma til greina ?

Held að sá sé sjálfvalinn.

Re: Grein í nýjasta Séð og Heyrt.

PostPosted: Fri 13. Aug 2010 15:30
by Jón Ragnar
Zed III wrote:
John Rogers wrote:Hver tekur það að sér að vera reiði og birtri BMWnöttarinn og senda þeim póst með mikli besservisku.

Og auðvitað hafa okkur í cc :lol:


Eru fleiri en einn sem koma til greina ?


hehe eða allir að senda :lol:

Re: Grein í nýjasta Séð og Heyrt.

PostPosted: Fri 13. Aug 2010 15:34
by JOGA
Þetta er annars helvíti nett sexa ef þetta er sá sem ég held.
En 20millz er kannski svolítið vel í lagt :lol:

Re: Grein í nýjasta Séð og Heyrt.

PostPosted: Fri 13. Aug 2010 16:04
by ValliB
Þeir mættu nú alveg leggja pínu vinnu í þessa ótrúlega góðu grein líka.

190kw en ekki 190hö


20 milljón króna lúxussportbíllinn hennar fékk 65 hestöfl allt í einu

Re: Grein í nýjasta Séð og Heyrt.

PostPosted: Fri 13. Aug 2010 17:42
by Danni
gunnar wrote:Vá! Mig langar í 190 hestafla 630 á 20 millz! :lol:


Ég skal redda þér þannig fyrir 20milljónir :mrgreen:

Re: Grein í nýjasta Séð og Heyrt.

PostPosted: Fri 13. Aug 2010 23:43
by SteiniDJ
Zed III wrote:
John Rogers wrote:Hver tekur það að sér að vera reiði og birtri BMWnöttarinn og senda þeim póst með mikli besservisku.

Og auðvitað hafa okkur í cc :lol:


Eru fleiri en einn sem koma til greina ?

Held að sá sé sjálfvalinn.


BCC á mig. :loveit:

Re: Grein í nýjasta Séð og Heyrt.

PostPosted: Sat 14. Aug 2010 00:19
by sosupabbi
Var líka í sama blaði mynd af rauðum z3 og hann var kenndur við james bond bílinn, en ef ég man rétt var það ekki z8? eða var það kanski líka z3?

Re: Grein í nýjasta Séð og Heyrt.

PostPosted: Sat 14. Aug 2010 01:47
by Bjarkih
sosupabbi wrote:Var líka í sama blaði mynd af rauðum z3 og hann var kenndur við james bond bílinn, en ef ég man rétt var það ekki z8? eða var það kanski líka z3?


bæði Z3 og Z8

Re: Grein í nýjasta Séð og Heyrt.

PostPosted: Sat 14. Aug 2010 12:43
by ValliFudd
Er kannski verið að tala um að NÝR 630 kosti 20 millur í dag?
Þá er ég að aka um á 30 milljóna króna bíl! Eins gott að setja hann í kaskó! :lol: