Page 1 of 2
Er hringvegurinn malbikaður?

Posted:
Tue 10. Aug 2010 06:15
by SteiniDJ
Var bara að velta því fyrir mér, er hægt að keyra hringinn (með góðu móti) án þess að enda með ónýtt lakk?
Re: Er hringvegurinn malbikaður?

Posted:
Tue 10. Aug 2010 07:54
by gjonsson
Þetta er allt malbikað nema einhverjir spottar á austurlandi.
Ef þú fylgir þjóðvegi 1, þá þarftu að fara yfir Breiðdalinn og Breiðdalsheiði og þeir vegir eru báðir ómalbikaðir.
Getur samt losnað við þessa kafla með því að fara í gegnum Fáskrúðsfjörð og Reyðarfjörð. Þá eru þetta ekki nema um 15 km sem eru ómalbikaðir.
Sú leið lengir hinsvegar hringinn um nokkra kílómetra.
Svona var þetta a.m.k. þegar ég keyrði þetta síðast, gæti vel verið að menn hefðu tekið sig til og gert eitthvað í þessu.
Re: Er hringvegurinn malbikaður?

Posted:
Tue 10. Aug 2010 11:09
by FrikkiGaur
Re: Er hringvegurinn malbikaður?

Posted:
Tue 10. Aug 2010 11:59
by Einzi
Það er smá spotti innst í Berufirðinum sem er ennþá möl. Annars getur þú keyrt hringinn á malbiki.
Það segir samt ekki að þú fáir ekki steinköst. Það eru vegaviðgerðir víða og svoleiðis.
Re: Er hringvegurinn malbikaður?

Posted:
Tue 10. Aug 2010 12:01
by bimmer
SteiniDJ wrote:Var bara að velta því fyrir mér, er hægt að keyra hringinn (með góðu móti) án þess að enda með ónýtt lakk?
Ef þú vilt halda lakkinu perfect þá skaltu sleppa hringnum

Re: Er hringvegurinn malbikaður?

Posted:
Tue 10. Aug 2010 12:15
by oddur11
tape-aðu bara framendan
Re: Er hringvegurinn malbikaður?

Posted:
Tue 10. Aug 2010 12:24
by Lindemann
ég fór hringinn um daginn, þetta er bara örlítill spotti sem er eftir af malarvegi þarna fyrir austan....það er ekkert til að tala um.
aftur á móti fékk ég nokkur slæm steinköst, þó svo að ég væri að passa mig.
Re: Er hringvegurinn malbikaður?

Posted:
Tue 10. Aug 2010 12:25
by arnibjorn
Keyra hringinn. Mála allan bílinn.
Problem solved.
Re: Er hringvegurinn malbikaður?

Posted:
Tue 10. Aug 2010 16:32
by dolgur
fljuga bara hringin, odyrara og fljotlegra og ekkert steinkast
Re: Er hringvegurinn malbikaður?

Posted:
Tue 10. Aug 2010 17:21
by IngóJP
Tók hringinn á 16 tímum fyrir nokkrum mánuðum mjög fínt sá helling. Stoppaði fyrst á Reyðarfirði fékk mér pizzu og kíkti aðeins niðra bryggju og lagði svo í hann aftur mæli hiklaust með þessu
Re: Er hringvegurinn malbikaður?

Posted:
Tue 10. Aug 2010 17:57
by Hemmi
færð þér bara svona haldara

Re: Er hringvegurinn malbikaður?

Posted:
Tue 10. Aug 2010 18:41
by urban
IngóJP wrote:Tók hringinn á 16 tímum fyrir nokkrum mánuðum mjög fínt sá helling. Stoppaði fyrst á Reyðarfirði fékk mér pizzu og kíkti aðeins niðra bryggju og lagði svo í hann aftur mæli hiklaust með þessu
ekki mundi ég fyrir mitt litla líf nenna því
Re: Er hringvegurinn malbikaður?

Posted:
Tue 10. Aug 2010 20:04
by SteiniDJ
Þakka öll svör! Það væri gaman að keyra hringinn og skoða landið sem maður býr á, sérstaklega ef maður fær sér eitthvað nýtt í haust. Annars sé ég á myndinni sem þú gafst mér gjonsson að þetta ætti nánast allt að vera malbikað, fyrir utan smá smá spöl á austurlandi. Held að þetta yrði bara gaman.

Re: Er hringvegurinn malbikaður?

Posted:
Tue 10. Aug 2010 20:14
by urban
SteiniDJ wrote:Þakka öll svör! Það væri gaman að keyra hringinn og skoða landið sem maður býr á, sérstaklega ef maður fær sér eitthvað nýtt í haust. Annars sé ég á myndinni sem þú gafst mér gjonsson að þetta ætti nánast allt að vera malbikað, fyrir utan smá smá spöl á austurlandi. Held að þetta yrði bara gaman.

ein góð regla
reiknaðu með 25% meiri tíma en þú gerir núna
já og ábiggilega 50% meira af peningum

Re: Er hringvegurinn malbikaður?

Posted:
Tue 10. Aug 2010 21:40
by SteiniDJ
urban wrote:SteiniDJ wrote:Þakka öll svör! Það væri gaman að keyra hringinn og skoða landið sem maður býr á, sérstaklega ef maður fær sér eitthvað nýtt í haust. Annars sé ég á myndinni sem þú gafst mér gjonsson að þetta ætti nánast allt að vera malbikað, fyrir utan smá smá spöl á austurlandi. Held að þetta yrði bara gaman.

ein góð regla
reiknaðu með 25% meiri tíma en þú gerir núna
já og ábiggilega 50% meira af peningum

Haha, hef það í huga.
