Page 1 of 1

Fiskidagurinn mikli ,,,,,, á Dalvík

PostPosted: Sun 08. Aug 2010 20:15
by Alpina
Jæja.. voru einhverjir hérna sem fóru,, ,, Bubbi á M3 var þarna og nokkrir aðrir saman

en til að segja í stuttu máli frá , þá er þetta án vafa alskemmtilegasta fjölskylduhátíð sem ég hef farið á,, talið var að yfir 35.000 manns hafi verið þarna og með gestum á laugardeginum ,, 40.000 manns takk fyrir,,, og það á stað sem er með 1500 íbúa

Flugeldasýningin er klárlega sú flottasta sem ég hef séð.. NOKKURNTÍMANN,, menn voru að tala um það að annað eins hefði ekki sést á Íslandi .. hvorki fyrr en eflaust síðar

frír matur allann laugardaginn ásamt drykkir .. og sást ekki vín á einum einasta gesti um daginn ,, en um kvöldið fór fólk að sjússa sig til ,,

Frábær skemmtun sem kom vægast sagt á óvart,, Magnaðir tónleikar ,, og þessi Eyþór,, Deep Purble voice er alveg efni í mega performer

ps,,nokkrir gestanna voru einnig Þjóðhátiðar gestir og höfðu á vörum sér ummæli sem lýstu eiginlega best hvernig stemningin var og slagorðið fór eins og eldur í sinu

ÞJÓÐHÁTÍÐ ,, HVAÐ

Re: Fiskidagurinn mikli ,,,,,, á Dalvík

PostPosted: Sun 08. Aug 2010 20:25
by Alpina
BMWkraftur var með þetta stuntatriði


Re: Fiskidagurinn mikli ,,,,,, á Dalvík

PostPosted: Sun 08. Aug 2010 21:19
by ValliB
Ég mætti á fös og kom heim núna í dag.

Get tekið undir það með þér að flugeldasýning var rosaleg. Endirinn með stóru bombunum var geðveikur.

Þokkalega margir niðri á höfninni líka í gærkvöldi.


En í sambandi við þennan M3, Er hann með einkanúmerið BUBBIS?
Ef svo er mætti alveg endurskoða pústið undir honum, imo rosalegt lýti á annars mjög fallegum bíl

Re: Fiskidagurinn mikli ,,,,,, á Dalvík

PostPosted: Mon 09. Aug 2010 00:34
by gunnar
Var þarna alla helgina í vinnu. Þetta er orðið alveg klárlega ein af flottustu hátíðum landsins. Þvílíkur metfjöldi af fólki.

Bara flott hjá heimamönnum. Flugeldasýningin var líka mjög flott.

Re: Fiskidagurinn mikli ,,,,,, á Dalvík

PostPosted: Mon 09. Aug 2010 01:00
by Freyr Gauti
Og þetta er mögulega síðasta skiptið sem þessi hátíð er með þessu fyrirkomulagi. Orðin of dýr.

Re: Fiskidagurinn mikli ,,,,,, á Dalvík

PostPosted: Mon 09. Aug 2010 01:02
by Alpina
Freyr Gauti wrote:Og þetta er mögulega síðasta skiptið sem þessi hátíð er með þessu fyrirkomulagi. Orðin of dýr.


Fáránlegt að selja ekki inn á þetta .. t.d 1000 kr á gesti

Re: Fiskidagurinn mikli ,,,,,, á Dalvík

PostPosted: Mon 09. Aug 2010 01:03
by Steini B
Var mikið að spá í að fara, en hætti við...

En flottasta flugeldasýning sem ég hef séð er á Jökulsárlóni, þá skjóta þeir upp af klökunum svo allt lónið lýsist upp.
Þetta er gert á hverju ári, er núna þann 28. ágúst skilst mér...

Re: Fiskidagurinn mikli ,,,,,, á Dalvík

PostPosted: Mon 09. Aug 2010 01:04
by Alpina
Steini B wrote:Var mikið að spá í að fara, en hætti við...

En flottasta flugeldasýning sem ég hef séð er á Jökulsárlóni, þá skjóta þeir upp af klökunum svo allt lónið lýsist upp.
Þetta er gert á hverju ári, er núna þann 28. ágúst skilst mér...



Það komu einmitt bombur UPP ÚR SJÓNUM :shock:

Re: Fiskidagurinn mikli ,,,,,, á Dalvík

PostPosted: Mon 09. Aug 2010 01:13
by srr
Alpina wrote:
Freyr Gauti wrote:Og þetta er mögulega síðasta skiptið sem þessi hátíð er með þessu fyrirkomulagi. Orðin of dýr.


Fáránlegt að selja ekki inn á þetta .. t.d 1000 kr á gesti

Sem yrði 40 milljónir í tekjur ef miðað er við 40.000 gesti :thup:

Re: Fiskidagurinn mikli ,,,,,, á Dalvík

PostPosted: Mon 09. Aug 2010 01:27
by Alpina
srr wrote:
Alpina wrote:
Freyr Gauti wrote:Og þetta er mögulega síðasta skiptið sem þessi hátíð er með þessu fyrirkomulagi. Orðin of dýr.


Fáránlegt að selja ekki inn á þetta .. t.d 1000 kr á gesti

Sem yrði 40 milljónir í tekjur ef miðað er við 40.000 gesti :thup:



Örlætið sem fyrirtækin er að þessu standa í garð gesta er hreint óeðlilega gjöfult,, ALLIR fá frítt að borða .. og drekka eins og þeim lystir
ALLIR bæjarbúa skreyta hús og híbýli með einhverju sem tengist útgerð og sjávarútvegi.

Þetta er að mínu mati einhver albesta fjölskyldusamkoma sem ég hef kynnst,, og bæjarstaðið er alveg einstaklega gerðarlegt og fallegt 8)

fásinnu mikil gestrisni af hálfu bæjarbúa ,, og allt til fyrirmyndar í alla staði

eðlilega koma tekjur til staðarins .. en tjaldsvæði og þessháttar hefur verið gratís :shock: :shock:
Ekki eru styrktaraðilar eingöngu einskorðaðir við Dalvík og Eyjafjörð..
Vífilfell og myllan gáfu veit ég allt brauð og gos ,, svo eitthvað sé nefnt

Re: Fiskidagurinn mikli ,,,,,, á Dalvík

PostPosted: Mon 09. Aug 2010 01:57
by Pétur Sig
flugeldasýningin var sú allra besta og ekki skemmdi fyrir að ég sat fremst á SAMSKIP skipinu þarna í höfnini sem er allls ekki slæmt

Re: Fiskidagurinn mikli ,,,,,, á Dalvík

PostPosted: Mon 09. Aug 2010 02:14
by Freyr Gauti
Alpina wrote:
srr wrote:
Alpina wrote:
Freyr Gauti wrote:Og þetta er mögulega síðasta skiptið sem þessi hátíð er með þessu fyrirkomulagi. Orðin of dýr.


Fáránlegt að selja ekki inn á þetta .. t.d 1000 kr á gesti

Sem yrði 40 milljónir í tekjur ef miðað er við 40.000 gesti :thup:



Örlætið sem fyrirtækin er að þessu standa í garð gesta er hreint óeðlilega gjöfult,, ALLIR fá frítt að borða .. og drekka eins og þeim lystir
ALLIR bæjarbúa skreyta hús og híbýli með einhverju sem tengist útgerð og sjávarútvegi.

Þetta er að mínu mati einhver albesta fjölskyldusamkoma sem ég hef kynnst,, og bæjarstaðið er alveg einstaklega gerðarlegt og fallegt 8)

fásinnu mikil gestrisni af hálfu bæjarbúa ,, og allt til fyrirmyndar í alla staði

eðlilega koma tekjur til staðarins .. en tjaldsvæði og þessháttar hefur verið gratís :shock: :shock:
Ekki eru styrktaraðilar eingöngu einskorðaðir við Dalvík og Eyjafjörð..
Vífilfell og myllan gáfu veit ég allt brauð og gos ,, svo eitthvað sé nefnt


Einmitt, og samherji hefur held ég verið að gefa fisk, en útaf því að fólk fær frítt að borða og svona yfir mest alla helgina þá koma mjög litlar tekjur inn í bæjarfélagið fyrir þessa hátíð. Hugsa að það myndi alls ekki fækka ef þeir rukkuðu 1000k á segjum fullorðna þarna inn.

Re: Fiskidagurinn mikli ,,,,,, á Dalvík

PostPosted: Mon 09. Aug 2010 08:56
by ömmudriver
Steini B wrote:Var mikið að spá í að fara, en hætti við...

En flottasta flugeldasýning sem ég hef séð er á Jökulsárlóni, þá skjóta þeir upp af klökunum svo allt lónið lýsist upp.
Þetta er gert á hverju ári, er núna þann 28. ágúst skilst mér...


Er þetta auglýst eitthversstaðar?

Re: Fiskidagurinn mikli ,,,,,, á Dalvík

PostPosted: Mon 09. Aug 2010 10:31
by gardara
Alpina wrote:
Freyr Gauti wrote:Og þetta er mögulega síðasta skiptið sem þessi hátíð er með þessu fyrirkomulagi. Orðin of dýr.


Fáránlegt að selja ekki inn á þetta .. t.d 1000 kr á gesti



Þótt 1000 kr sé ekki mikill peningur og að sjálfsagt væri að borga eitthvert gjald fyrir hátíðina er þá ekki hluti af sjarmanum við þessa hátíð sá að það kostar ekkert inn?

Re: Fiskidagurinn mikli ,,,,,, á Dalvík

PostPosted: Mon 09. Aug 2010 15:53
by Schulii
Eitthvað hljóta nú allir þessir gestir að vera að skilja eftir af peningum..