Page 1 of 1

Nonni sóttur á Ísafjörð......

PostPosted: Sun 11. Jul 2010 23:44
by HK RACING
Ákvað að taka smá Roadtrip á Ísafjörð að sækja mér Service rútu fyrir næsta sumar,gripurinn sem sóttur var er Volvo af 1969 árgerð og gengur undir nafninu Nonni,fyrrverandi bíll frá Ríkissjónvarpinu,lagt af stað 8 á laugardagsmorgun og lentir á Ísafirði rétt fyrir klukkan 1 eftir hádegi að staðartíma,strax var hafist handa við að koma Nonna í hjólin og koma honum í gang en hann var búinn að standa inni í 4 ár óhreyfður,eftir að hafa skrúfað dekkin undir var hafist handa við að skipta um hráolíusíu og hráolíu á tanknum,setja í hann nýja rafgeyma og setja á hann ljósabretti að aftan,eftir smá bras við að lofttæma olíukerfið kom Bjössi á garðstöðum og reddaði þessu á núll einni og í gang hrökk hún,þá var ekkert annað að gera en skella sér á bensínstöð og fylla kvikindið og bruna af stað í bæinn,leiðin heim hófst klukkan 18.00(að staðartíma) og lauk klukkan 1 eftir miðnætti í Hafnarfirði eftir 3 áætluð stopp á leiðinni,Nonni stóð sig eins og hetja og sló ekki feilpúst einu sinni á leiðinni.....

Garðstaðir
Image

Ísafjörður
Image


Fyrsta sýn af Nonna
Image

Fordinn kom mér á óvart,eyddi hálfum tanki á leiðinni heim,það gera um 60 lítra á 500 kílómetra og reikniði svo....
Image

Skrúfa dekkin undir
Image

Image

Skipta um olíu
Image

Image

og tengja ljósin...
Image

komin með ljós og komin á númer
Image

Verið að pumpa í og gera klárt..
Image

Spurning að gera þessa svarthvíta
Image

stoppuðum á garðstöðum í bakaleiðinni að skoða allt gullið,Nonni hefði sæmt sér vel á túninu en ég tímdi því nú ekki
Image

Image

stoppuðum svo aftur á Hólmavík og í búðardal og enduðum í Hafnarfirði,Nonni fór með um 100 lítra af olíu þessa tæpu 500 kílómetra sem keyrðir voru.....meira seinna

Re: Nonni sóttur á Ísafjörð......

PostPosted: Sun 11. Jul 2010 23:49
by Dóri-
flott lesning og snilld að henda þessu bara á númer :lol:

Re: Nonni sóttur á Ísafjörð......

PostPosted: Sun 11. Jul 2010 23:57
by -Hjalti-
Hver var svona heppin að keyra nonna heim svona opinn ? :lol:

Re: Nonni sóttur á Ísafjörð......

PostPosted: Mon 12. Jul 2010 00:04
by IceDev
Shiiii, og hvað á svo að gera við nonna?

Re: Nonni sóttur á Ísafjörð......

PostPosted: Mon 12. Jul 2010 00:07
by HK RACING
Hjalti_gto wrote:Hver var svona heppin að keyra nonna heim svona opinn ? :lol:
Ég keyrði hann í bæinn í flíspeysu og með húfu,og var með opna rúðuna við hliðina á mér allan tímann,var smá kalt eftir að ég kom uppúr göngunum en það var alveg brakandi blíða á meðan við vorum fyrir vestan.....
Já og ég ætla að loka hliðunum á Nonna og smíða hlera aftaná hann til að geta sett rallý eða rallýcrossbílinn minn inní hann.........

Re: Nonni sóttur á Ísafjörð......

PostPosted: Mon 12. Jul 2010 00:32
by IceDev
Damn, ég var að búast við einum af svakalegasta sukkaravagni ever :(

Re: Nonni sóttur á Ísafjörð......

PostPosted: Mon 12. Jul 2010 02:26
by Grétar G.
Hahaha djöfulsins snilld !

Færð allveg :thup: fyrir þennan metnað :D

Re: Nonni sóttur á Ísafjörð......

PostPosted: Mon 12. Jul 2010 02:33
by srr
Átti þessi ekki að vera notaður við flutninga á DeLorean hjá ztebbster ?

Re: Nonni sóttur á Ísafjörð......

PostPosted: Mon 12. Jul 2010 08:07
by Zed III
HK RACING wrote:Já og ég ætla að loka hliðunum á Nonna og smíða hlera aftaná hann til að geta sett rallý eða rallýcrossbílinn minn inní hann.........


snilld

Re: Nonni sóttur á Ísafjörð......

PostPosted: Mon 12. Jul 2010 09:43
by Benz
srr wrote:Átti þessi ekki að vera notaður við flutninga á DeLorean hjá ztebbster ?


Jú, það var upphaflega pælingin hjá Stebba :wink:

Re: Nonni sóttur á Ísafjörð......

PostPosted: Mon 12. Jul 2010 09:46
by HK RACING
srr wrote:Átti þessi ekki að vera notaður við flutninga á DeLorean hjá ztebbster ?

Jú ég kaupi hann af honum,hann reif allt í tætlur og gafst svo upp.....

Re: Nonni sóttur á Ísafjörð......

PostPosted: Mon 12. Jul 2010 10:00
by Thrullerinn
Flottir að koma honum í gagnið !

Orðið ótrúlega þægilegt að aka þessa leið Reykjavík - Ísafjörður.. malbik alla leiðina

Re: Nonni sóttur á Ísafjörð......

PostPosted: Mon 12. Jul 2010 10:14
by HK RACING
Thrullerinn wrote:Flottir að koma honum í gagnið !

Orðið ótrúlega þægilegt að aka þessa leið Reykjavík - Ísafjörður.. malbik alla leiðina

Einmitt,vorum 4 tíma og 45 mínútur vestur á pikkanum með 2 stoppum.....