Page 1 of 2

Hvað er best að fá sér í dag? (Bílakaup)

PostPosted: Fri 09. Jul 2010 22:46
by Geysir
Nú fer að koma tími á ný bílakaup, E28 fínn en langar í eitthvað nýrra og halda mig á því.
Vandamálið er bara að ég hef ekki grænann hvað ég á að fá mér.

Hinir ýmsu skilmálar sem fylgja, en breytast þó eftir því hvernig skapi ég er í :lol:
Verð að láta skynsemina ráða og því eru mjög drykkfelldir bílar ekki inn í myndinni, er með þungan bensínfót.
Hef ekki verið sá heppnasti á þessu bílabraski mínu og hafa farið alltof margir þúsund krónurnar í viðgerðir og vesen,
einnig orðinn vel þreyttur á því að verða óvænt stopp hér og þar eða að þurfa að leggja í brekku til að koma bílnum í gang.
Alltaf viss húmor í að keyra um á sérstökum eða ljótum bílum en það verður þreytt þegar horft á bílinn útaf ljótleika.

Ætli það sem ég sé að reyna að koma út úr mér hérna sé það að mig langar að spyrja ykkur um álit hvað sé svona álitlegast í íslensku flórunni sem uppfyllir eftirfarandi skilmála hér fyrir ofan, eða rándýr í rekstri en má samt vera með smá fútti (ekki að drepast úr aflleysi).
Compact er ekki til umræðu :lol:

Hafði hugsað að reyna að fara ekki yfir 1.1 milljón.

Hvað er sniðugt? Skynsamlegt og flott fyrir 21 árs einstæðan mann.

Romsa en það vill stundum koma eftir nokkra öl.

Mbk
Atli Þór

Re: Hvað er best að fá sér í dag? (Bílakaup)

PostPosted: Fri 09. Jul 2010 22:50
by ///MR HUNG
Compact :mrgreen:

Re: Hvað er best að fá sér í dag? (Bílakaup)

PostPosted: Fri 09. Jul 2010 22:52
by Geysir
///MR HUNG wrote:Compact :mrgreen:

Nei :lol:

Re: Hvað er best að fá sér í dag? (Bílakaup)

PostPosted: Fri 09. Jul 2010 22:53
by Ásgeir
///MR HUNG wrote:Compact :mrgreen:



Fyrsta sem ég hugsaði. :D

Re: Hvað er best að fá sér í dag? (Bílakaup)

PostPosted: Fri 09. Jul 2010 22:57
by ///MR HUNG
Geysir wrote:
///MR HUNG wrote:Compact :mrgreen:

Nei :lol:

Víst!

Veistu ekki að Compact er nýmóðins E30 8)

Re: Hvað er best að fá sér í dag? (Bílakaup)

PostPosted: Sat 10. Jul 2010 01:14
by 20"Tommi
Ef þú ert ekki bara að tala um BMW þá er málið Mazda 323 klikkar aldrei og framleiðir bensin

Og 1.8 billinn er sprækari en margur 320 e36 eða e46 bmw og bilar bara ekki

Re: Hvað er best að fá sér í dag? (Bílakaup)

PostPosted: Sat 10. Jul 2010 08:02
by Zed III
6 cyl e39 eða e46

Re: Hvað er best að fá sér í dag? (Bílakaup)

PostPosted: Sat 10. Jul 2010 10:28
by HAMAR
E46 318i

Re: Hvað er best að fá sér í dag? (Bílakaup)

PostPosted: Sat 10. Jul 2010 12:01
by gulli
Nissan sunny 1.6 slx :wink:

Re: Hvað er best að fá sér í dag? (Bílakaup)

PostPosted: Sat 10. Jul 2010 14:17
by sosupabbi
E38 740 :oops:

Re: Hvað er best að fá sér í dag? (Bílakaup)

PostPosted: Sat 10. Jul 2010 17:17
by Geysir
Enginn þokkalegur 325 eða 525 (E39 þ.e.a.s) í boði?

Re: Hvað er best að fá sér í dag? (Bílakaup)

PostPosted: Sat 10. Jul 2010 21:34
by Geysir

Re: Hvað er best að fá sér í dag? (Bílakaup)

PostPosted: Sat 10. Jul 2010 21:39
by tinni77
Efsti er í eigu spjallmeðlims, heitir Rafnar og með einkanrið [BIVIVV]

Re: Hvað er best að fá sér í dag? (Bílakaup)

PostPosted: Sat 10. Jul 2010 23:56
by oddur11
þessi er allt fyrir peningin. flottur að innan, pixalar í utvarpi farnir, og ein balastangar upphengja farin hægra megi, smá riðblettir hér og þar, pústhitahlífin laus...

fyrir smá pening geturu gert hann helvíti fínan, og þá ekki búin að eiða 1.1mill í heildina í hann uppgerðan

Re: Hvað er best að fá sér í dag? (Bílakaup)

PostPosted: Sun 11. Jul 2010 08:56
by Zed III
mér finnst nú þessi hvíti nokkuð álitlegur. Það er samt kannski ekki að marka, ég er eitthvað heitur fyrir hvítum þessa dagana.

Ná honum aðeins niður í staðgreiðslu og þá áttu nóg fyrir öllum breytingum sem þér myndi detta í hug.