bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

GST- VS-Mazi 2
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=45740
Page 1 of 8

Author:  Alpina [ Tue 29. Jun 2010 10:20 ]
Post subject:  GST- VS-Mazi

Allt að gerast á facebook hjá GSt vs MAZI :shock:

Author:  bimmer [ Tue 29. Jun 2010 10:32 ]
Post subject:  Re: BMW E30 ///M3 Turbo Kabúúúmm!!.........

Alpina wrote:
Allt að gerast á facebook hjá GSt vs MAZI :shock:


?

Author:  Alpina [ Tue 29. Jun 2010 10:35 ]
Post subject:  Re: BMW E30 ///M3 Turbo Kabúúúmm!!.........

bimmer wrote:
Alpina wrote:
Allt að gerast á facebook hjá GSt vs MAZI :shock:


?
€€€€€ :roll:

Author:  SævarM [ Tue 29. Jun 2010 17:13 ]
Post subject:  Re: BMW E30 ///M3 Turbo Kabúúúmm!!.........

Bara það vanalega að hann neita að borga fyrir það sem er gert fyrir hann...
En það kemur bara ekkert annað til greina en að borga, það er alveg á hreinu!

Author:  Haffi [ Tue 29. Jun 2010 20:54 ]
Post subject:  GST- VS-Mazi 2

:shock: :shock:

Author:  SævarM [ Tue 29. Jun 2010 21:03 ]
Post subject:  Re: BMW E30 ///M3 Turbo Kabúúúmm!!.........

Ég get bara vottað það þar sem að ég er annar helmingurinn sem var að brasa í þessu drasli að það var ekkert bara kíkt á spíss og eitthvað rugl það þarf helling til að finna það út að spíss sé stíflaður...
Og svo það sé á hreinu þá er ég ekkert að rukka fyrir þetta eða neitt svoleiðis eingöngu að hjálpa gunna og það var ekkert skíta mix þarna og ástæðan fyrir þráðunum er að það var skipt um þræði og kertalok og sett á hann bensínþrýstimælir og skoðað rokkerarma og fleira til að finna út hvað var að ské með bílinn....

Þetta voru fleiri fleiri tímar í vinnu hjá okkur báðum og þar að auki á ég þá bara bensínslöngu í bílnum þínum og hosaklemmur á dælunni þinni þar sem að það þurfti að laga það.....

Ef þú ert eitthvað ósáttur með að þurfa að borga fyrir vinnu þá áttu bara að gera við þetta sjálfur :roll:

Og ekki halda að þú fáir einhverja hjálp frá einhverjum hérna aftur

Og endilega farðu með þennan lista í Tb og sjáðu hvað þetta kostar það væri miklu meira en 45þ. það er nokkuð víst

Author:  oddur11 [ Tue 29. Jun 2010 21:11 ]
Post subject:  Re: BMW E30 ///M3 Turbo Kabúúúmm!!.........

uff allt á leiðinni á annan endan hér :?

Author:  gstuning [ Tue 29. Jun 2010 21:21 ]
Post subject:  Re: BMW E30 ///M3 Turbo Kabúúúmm!!.........

:lol: :lol: :lol: :lol: :lol: :lol: :lol: :lol:

Þú bauðst svo að borga mér 10k

75% afsláttur. Vel gert Mázi, vel gert.

Þetta eru ekki kvartanir yfir "vinnubrögðum" heldur fátækleg tilraun til að komast undan að borga fyrir tímafreka bilanagreiningu.

Semsagt nokkur ströpp, ein sía og ófest tölva núllar út þá staðreynd að ég fann útur því hvað var að hrjá bílinn þinn.

tímaleysið tengt bílnum þínum er ástæðan fyrir ströppum og ófestri tölvu , því það er mörgum sinnum mikilvægar að komast að því hvað er að hrjá bílinn heldur einhver barnalegur frágangur. Sían datt af eftir að ég var búinn að ákveða að það væri ekki hægt að nota þennan bensín tank,og ég vissi því að þú myndir taka tankinn undann og síuna því úr. Og því skiptir það ekki einu sinni máli.

Það eitt að þú sért að heimta einhvern afslátt út á ströpp og tvær skrúfur er grátlega lélegt af þinni hálfu.

Ekki einu sinni REYNA að gera lítið úr þessari bilannagreiningu eða láta eins og það hafi verið kominn grunur um
þessi vandamál, til hvers að láta mig hafa þetta til að gera við þegar þú veist þá fullvel hvað vandamálið er.

Eftir að sían datt af þá VARÐ ég að vita hvort það væri bensínþrýstings vandamál sem væri að valda lean mixtúru. Og setti ég því svamp utan um síuna að neðan, útbjóum við svo þrýsti mælir og fórum út að keyra og það reyndist málið, Ef ég hefði hreinlega sagt þér að skipta um tank og koma svo aftur hefðirru EKKI komist á bíladaga vitandi hvað olli veseninu. Ég varð því að mæla bensínþrýsting með öllum ráðum án þess að drepa bensín dæluna með ryði.

ég tek enga ábyrgð á því hvað aðrir segja um þitt dót hérna á kraftinum og þýðir lítið að kvarta yfir því.


Svo vogarru þér að senda mér PM núna þar sem þú loks lýsir óánægju þinni. Ég gaf þér breik á að borga þar til framyfir bíladaga ég hefði betur átt að hlusta á sjálfann mig og ekki leyfa þér að taka bílinn fyrr enn þú hefðir verið búinn að borga. Enn þú hefur klárlega ætlað að bíða þangað til ég væri farinn frá íslandi áður enn þú myndir reyna pulla eitthvað svona. Ekki hafðirru manndóm í þér að kvarta strax hvað þá beint framann í mig. Varst akkúrat ekkert nema vinalegur á Ak og varst hringjandi í mig öllum stundum eins og ég væri þinn persónulegi bifvélavirki með 24h símalínu.

Þessi hegðun er þér sjálfum bara fyrir verstu.
Ég er búinn að sitja á mér vel lengi að skrifa um samskipti mín við þig og hverskonar einstaklingur þú ert þegar kemur að því að greiða fyrir það sem þú færð gert. Enn núna kemur það bara beint í ljós.
Vesenið byrjaði í júlí eða ágúst í fyrra og var hreint út sagt fáránlegt. Ég veit ekki hversu oft þú lofaðir að borga enn sveiks svo aftur og aftur.

Þessi 40k + 5k bensín (sem fór á tankinn þinn btw) er bara fyrir minn hluta af vinnunni, það var ekki bara Sævar sem kom að bilanagreiningunni og enginn nema ég rukkaði tíma. Mig langar sérstaklega að fara bölva akkúrat núna enn ég veit bara ekki hvar ég myndi stoppa.Enn

ÞETTA ER SVO FOKKING LÉLEGT AÐ ÉG VEIT EKKI HVAÐ.

Author:  Alpina [ Tue 29. Jun 2010 21:26 ]
Post subject:  Re: BMW E30 ///M3 Turbo Kabúúúmm!!.........

Image

Image

Author:  JonFreyr [ Tue 29. Jun 2010 21:26 ]
Post subject:  Re: BMW E30 ///M3 Turbo Kabúúúmm!!.........

Top Secret í ofninum hjá mér......

Author:  SævarM [ Tue 29. Jun 2010 21:28 ]
Post subject:  Re: BMW E30 ///M3 Turbo Kabúúúmm!!.........

Spurning hvort að Mázi og Uvel/sjava séu eitthvað skyldir :lol: :lol:

Author:  ömmudriver [ Tue 29. Jun 2010 21:31 ]
Post subject:  Re: BMW E30 ///M3 Turbo Kabúúúmm!!.........

SævarM wrote:
Spurning hvort að Mázi og Uvel/sjava séu eitthvað skyldir :lol: :lol:


Virðast allaveganna vera álíka miklir pappakassar miðað við viðskiptahætti :lol: :shock:

Author:  arnibjorn [ Tue 29. Jun 2010 21:33 ]
Post subject:  Re: BMW E30 ///M3 Turbo Kabúúúmm!!.........

:popcorn:

Author:  Alpina [ Tue 29. Jun 2010 21:35 ]
Post subject:  Re: BMW E30 ///M3 Turbo Kabúúúmm!!.........

arnibjorn wrote:
:popcorn:


Og mikið af slíku ... :lol: :lol:

Author:  arnibjorn [ Tue 29. Jun 2010 21:36 ]
Post subject:  Re: BMW E30 ///M3 Turbo Kabúúúmm!!.........

Alpina wrote:
arnibjorn wrote:
:popcorn:


Og mikið af slíku ... :lol: :lol:

Bara verst að allt kókið er búið :x

Page 1 of 8 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/