Page 1 of 1

Hryðjuverkamenn ráðast á fjarskiptanet íslensku þjóðarinnar

PostPosted: Fri 19. Mar 2010 10:28
by gunnar
http://sannleikurinn.com/heim/node/614
Hópur hryðjuverkamanna reyndi að lama fjarskiptanet landsins í nótt með því að sprengja upp fjarskiptamastur í Öskjuhlíð.
Svokallaðir Moggabloggarar hafa lýst árásinni á hendur sér og segja þeir árásina vera aðeins byrjunina á því sem koma skal.

Er hópurinn mjög óánægður með breytingarnar sem gerðar hafa verið á vef Morgunblaðsins, en bloggið hefur verið aðskilið fréttasíðunni, og berst hann fyrir því að bloggið sameinist fréttasíðunni aftur.

Ætlar hópurinn, að sögn Jens Guðs forprakka hans, að beita öllum tiltækum ráðum svo öryrkjar og atvinnulausir geti áfram skrifað málefnalega pistla um Icesave og efnahagsmál, tengt það fréttum og sýnt alþjóð.
En 90% prósent bloggaranna eru á einhverskonar bótum.

Ekki tók langan tíma fyrir tæknimenn að laga skemmdirnar enda tilræðismennirnir hálfgerðir aular.


:lol: :lol:

Re: Hryðjuverkamenn ráðast á fjarskiptanet íslensku þjóðarin

PostPosted: Fri 19. Mar 2010 11:08
by SteiniDJ
Hahaha, þessi síða er skemmtileg.

Re: Hryðjuverkamenn ráðast á fjarskiptanet íslensku þjóðarin

PostPosted: Fri 19. Mar 2010 11:56
by Thrullerinn
SteiniDJ wrote:Hahaha, þessi síða er skemmtileg.


Þetta liggur við slær út baggalút, mega hrár og góður húmor

Re: Hryðjuverkamenn ráðast á fjarskiptanet íslensku þjóðarin

PostPosted: Fri 19. Mar 2010 12:05
by SteiniDJ
Thrullerinn wrote:
SteiniDJ wrote:Hahaha, þessi síða er skemmtileg.


Þetta liggur við slær út baggalút, mega hrár og góður húmor


Baggalútur er 90% bull (á góðan hátt), en þarna bralla þeir oftast með alvöru fréttir.

Re: Hryðjuverkamenn ráðast á fjarskiptanet íslensku þjóðarin

PostPosted: Fri 19. Mar 2010 12:11
by gardara