Page 1 of 1

tjónaskírslu spurning ???

PostPosted: Wed 06. Jan 2010 19:55
by Leví
vinur minn er að leita sér að bíl og er kominn með einn avensis í huga en hann er samkvæmt bílasala skráður tjónabíll.
Veit einhver hovrt það sé hægt að skoða tjónaskírsluna einhverstaðar til þess að sjá hvort þetta hafi verið eitthvað mikið hann fær víst eitthvað takmarkað um þetta hjá bílasölunni ??

Re: tjónaskírslu spurning ???

PostPosted: Wed 06. Jan 2010 22:19
by Thrullerinn
Levei wrote:vinur minn er að leita sér að bíl og er kominn með einn avensis í huga en hann er samkvæmt bílasala skráður tjónabíll.
Veit einhver hovrt það sé hægt að skoða tjónaskírsluna einhverstaðar til þess að sjá hvort þetta hafi verið eitthvað mikið hann fær víst eitthvað takmarkað um þetta hjá bílasölunni ??


Þetta liggur eflaust hjá tryggingafélaginu sem borgaði tjónið, þú getur séð hvaða tryggingafélag það er út frá eigendaskráningunni á bílnum.

Re: tjónaskírslu spurning ???

PostPosted: Wed 06. Jan 2010 22:24
by srr
Ef hann er "skráður tjónabíll", þá hlýtur hann að vera "viðgerð tjónabifreið".
Til þess að fá númeraplötur aftur á bíl sem hefur verið skráður tjónabíll, þá þarf hann að fá
vottorð úr réttingarbekk, sem vottar að allar mælingar á grind bílsins standist upprunalegt horf.

Semsagt, ef hann er skráður viðgerð tjónabifreið, þá hefur hann verið réttur af fagmanni.