bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Jólasiðir Sverris Stormskers
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=41952
Page 1 of 1

Author:  Alpina [ Fri 25. Dec 2009 20:01 ]
Post subject:  Jólasiðir Sverris Stormskers

Hef sjaldan hlegið jafn geðveikislega og yfir þessum umælum Sverris,,,,,,,,,,


ég gjörsamlega veinaði eins og vitfirringur,,,,,,,

Önnur eins mannfýla er ekki til held ég,,

þvílíkur asni :lol: :lol: :lol:




„Þegar einhver slysast til að kveikja á útvarpinu og það er verið að útvarpa messu þá tryllist bókstaflega öll famelían," svarar Sverrir Stormsker aðspurður út í jólahátíðina og bætir við:

„Erum oft lengi að jafna okkur."




„Hefðbundnir jólasálmar fara líka í mínar fínustu, þetta grefilsins mjálm einsog „Heims um tól" og „Hjá betlurum er barn oss fætt" og allt það geðveikisjukk."

„Kirkjuklukknahringingar nísta sömuleiðis gegnum merg og bein. Það er nú ljóti djöfulsins vibbinn. Er ekki hægt að fá Ósóma bin Laden eða einhvern annan góðan gæa til að sprengja þennan óþverra í loft upp?" segir Sverrir.

„Þetta eru tvímælalaust skemmtilegustu ofurölvunardagar ársins. Það kemur enginn edrú api inn fyrir okkar dyr á jólunum. Við líðum ekki ódrukkna hálfvita í okkar húsum um jólin. Bara ekki að ræða það."

„Sá sem er ekki farinn að æla og míga á sig um miðnætti, honum er hent út. Maður verður nú að reyna að halda í þær hefðir og það siðferði sem eftir er í þessu landi," segir Sverrir að lokum.

Author:  Tombob [ Fri 25. Dec 2009 20:51 ]
Post subject:  Re: Jólasiðir Sverris Stormskers

Einn mesti snillingur og hugsuður þessa lands.

http://stormsker.blog.is/blog/stormsker/
skyldulesning til að átta sig á hvað er hvað :)

kv,
Tombob

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/