Page 1 of 1

Macbook tengd við magnara....volume vesen.

PostPosted: Sat 19. Dec 2009 22:02
by krullih
Sælir Kraftsmenn

Er með macbook fartölvu og þegar ég tengi magnarann í output (headphones tengið) þá virðist volume-ið flökta upp og niður ásamt því að vera langt frá 'maxi' ef ég hækka upp..

Er búinn að prufa að spila þetta í VLC og itunes... hefur sömu afleiðingar

Sá sem reddar þessu er guð¨!

Re: Macbook tengd við magnara....volume vesen.

PostPosted: Sun 20. Dec 2009 19:20
by moog
Er snúran örugglega í lagi sem fer úr tölvunni og í magnarann?

Re: Macbook tengd við magnara....volume vesen.

PostPosted: Sun 20. Dec 2009 19:31
by jokullb
sakar heldur ekki að vera með nógu svera snúru... þessar grönnu eiga það til að sökka

Re: Macbook tengd við magnara....volume vesen.

PostPosted: Sun 20. Dec 2009 22:09
by drolezi
Prófaðu aðra stillingu á magnaranum. Gerist svipað hjá mér þegar ég er að nota Dolby digital II en ekki ef ég nota t.d. Stereo. Er með WDHD tengt í HK AVR155.

Re: Macbook tengd við magnara....volume vesen.

PostPosted: Sun 20. Dec 2009 22:24
by T-bone
Eins og menn segja, athuga hvort að snúran sé pottþétt heil, og þykkari snúrur þýða yfirleitt meiri gæði, en vissulega innan eðlilegra marka.

svo er líka mjög mikilvægt, þó svo að það komi þessu vandamáli í raun ekki við, að hafa frekar lágt í tölvunni, og hækka þá meira í magnaranum. Það að hafa mjög hátt í tölvunni er mjög slæmt þar sem að þar á sér stað mögnun sem kemur svo út sem bjögun þegar að magnarinn boostar merkið, því að magnarinn vill fá flatt merki (line input). Getur farið mjög illa með magnarann og hátalarana...

en svo getur nattúrulega verið að þú sért ekki að "mixa" neitt, þ.e. ert með magnara fyrir tölvuhátalara. Þá geturu bara strokað það út sem er hér fyrir ofan ;)