Page 1 of 4

Vandræði á bensínstöð

PostPosted: Tue 15. Dec 2009 10:37
by -Hjalti-
Sælir.

Ég lenti í því leiðindar atviki að gleyma bensíndælu byssu í bensínlokinu þegar ég keyrði af stað frá sjálfsafgreiðslustöð N1 um daginn.
Það skeði nú ekki annað en það að byssan losnaði fra slönguni án þess að ég hafi séð nokkura skemmd á dæluni eða bílnum . Virtist vera eitthvað öryggi sem kúplaði byssuni frá slönguni við viss átök.
Ég ræddi við starfsmann á plani sem græjaði þetta saman á no time og sagði mér bara að koma mér í burtu.
Núna svo 10 dögum seinna fæ ég SMS! frá stöðvarstjóranum að það sé reikningur inná borði hjá þeim sem hljómi uppá 65.000kr og ég hafi frest til Fimmdagsins 17. Des að borga hann (2. daga frest )annars verði málið sent lögreglu. Eins og allir hafi þannig upphæð í öðrum rassvasanum svona rétt fyrir jól.
Eins og ég segi þá viðurkenni ég alveg mín mistök. Hinsvegar er það sem mér fynst frekar undarlegt er hótunar sms frá stöðvarstjóranum og upphæðin á reikningnum sem um ræðir.
Ég er búin að reyna að ná í toppana hjá framvæmdarsviði N1 núna í 2 daga án þess ná í gegn og kvarta yfir frammferði yfirmans þessa útibús N1 í Hveragerði.
Nú langar mig að spurja ykkur , hefur eitthver lent í álíka atviki og hvernig fór það mál. Nú hef ég talað við aðra sem tengjast öðrum sölustöðum og þar hafa þeir allir sagt að þeir séu tryggðir fyrir svona löguðu,
að þetta sé í raun bara hlutur sem þeir tæku á sig. Ekki halda það samt að ég sé að reyna að komast undan því að borga , fynst þessi upphæð bara alveg glórulaus. og þeir vilja ekki sýna mér frammá hvernig þeir fá þessa upphæð út.

Re: Vandræði á bensínstöð

PostPosted: Tue 15. Dec 2009 10:45
by siggir
Svona atvik kom allavega tvisvar upp sumarið sem ég vann á bensínstöð. Dælurnar eru með öryggi sem lokar fyrir slönguna og kúplar byssunni frá ef það er tekið á þessu. Vandamálið er að þetta öryggi er einnota svo það verður að skipta um byssuna. Mig minnir að það hafi bara verið græjuð tjónaskýrsla og málið síðan farið í eðlilegan farveg hjá tryggingunum.
Mér þykja svona vinnubrögð allavega frekar kjánaleg.

Re: Vandræði á bensínstöð

PostPosted: Tue 15. Dec 2009 10:49
by -Hjalti-
siggir wrote:Svona atvik kom allavega tvisvar upp sumarið sem ég vann á bensínstöð. Dælurnar eru með öryggi sem lokar fyrir slönguna og kúplar byssunni frá ef það er tekið á þessu. Vandamálið er að þetta öryggi er einnota svo það verður að skipta um byssuna. Mig minnir að það hafi bara verið græjuð tjónaskýrsla og málið síðan farið í eðlilegan farveg hjá tryggingunum.
Mér þykja svona vinnubrögð allavega frekar kjánaleg.


Já ég gleymdi að nefna það en Bíllinn sem um ræðir var ekki á númerum heldur var í drætti aftaní öðrum bíl.

Re: Vandræði á bensínstöð

PostPosted: Tue 15. Dec 2009 10:57
by bErio
Þetta ætti samt væntanlega að coverast í gegnum tryggingar.
Ég trúi ekki öðru.

Re: Vandræði á bensínstöð

PostPosted: Tue 15. Dec 2009 11:05
by 20"Tommi
gleymdu þessu bara maður ..!!!

þeir eru tryggðir fyrir þessu .

Ekki láta svona pappa kassa eyðileggja jólin fyrir þér .

Re: Vandræði á bensínstöð

PostPosted: Tue 15. Dec 2009 11:28
by ValliFudd
Ég hefði haldið að tryggingar bílsins ættu að covera svona hluti, en þar sem bíllinn var ótryggður.. Gæti verið að þetta lendi á þér.
Ég myndi nú kannski ekki rífa upp veskið án þess að kanna þetta betur, en ég er samt nokkuð viss um að þetta sé eins og hvert annað tjón, ef þú keyrir á bílinn minn sem er t.d. lagður í stæði, segir minn tryggingaraðili að sjálfsögðu fokk off, það er tjónvaldur sem á að borga eða hans tryggingaraðili..

Vona að þetta leysist nú vel, en ég er hræddur um að þú sért ekki í góðum málum þar sem bíllinn var ekki á númerum :thdown:

Re: Vandræði á bensínstöð

PostPosted: Tue 15. Dec 2009 11:32
by Maggi B
bíllinn er ekki ótryggður í spotta, þá er hann á tryggingu bílsins sem dregur

Re: Vandræði á bensínstöð

PostPosted: Tue 15. Dec 2009 11:37
by jens
Láttu þér ekki detta í hug að greiða eitthvað inn á reikning einhvers sem sendir þér sms, þetta fer beint í hans vasa ef það er ekki gerð skýrsla og þú færð nótu og alles.

Settu þig í samband við þá hjá N1.

Re: Vandræði á bensínstöð

PostPosted: Tue 15. Dec 2009 11:51
by alpina.b10
ég lenti í þessu fyrir nokkrum árum, þeir sögðu við mig að þeir myndu bara redda þessu og ég hefði nóg með skemmdirnar á mínum bíl.

Re: Vandræði á bensínstöð

PostPosted: Tue 15. Dec 2009 11:59
by Gunnar Þór
SMS! frá stöðvarstjóranum?

Er þessi maður 12 ára eða...?

Sendir ekkert hótanir með SMS nema þú sért 12ára eða handrukkari (eða bæði...)

Djöfull yrði ég brjálaður ef ég lenti í svona - nógu er manni nú illa við olíufélögin fyirr :D

Re: Vandræði á bensínstöð

PostPosted: Tue 15. Dec 2009 12:09
by fart
Bað hann kanski um "CASH" greiðslu :alien:

Einn að reyna að redda sér smá seðlum fyrir jólin :thdown:

Myndi halda að þeir nú eða þú séu tryggðir fyrir svona.

Re: Vandræði á bensínstöð

PostPosted: Tue 15. Dec 2009 12:22
by BjarkiHS
Maggi B wrote:bíllinn er ekki ótryggður í spotta, þá er hann á tryggingu bílsins sem dregur


Það er málið.. er ekki þitt tjón

Re: Vandræði á bensínstöð

PostPosted: Tue 15. Dec 2009 12:23
by sosupabbi
Ég vann á bensínstöð í allt sumar, kom eitt svona atvik upp...ég festi hausinn bara aftur á slöngunna með hamri og hann hefur verið þar síðan

Re: Vandræði á bensínstöð

PostPosted: Tue 15. Dec 2009 12:29
by fart
sosupabbi wrote:Ég vann á bensínstöð í allt sumar, kom eitt svona atvik upp...ég festi hausinn bara aftur á slöngunna með hamri og hann hefur verið þar síðan


og svo næst þegar þetta gerist frussast bensínið út um allt og mögulega hverfur allt draslið í eldhafi :thup:

Re: Vandræði á bensínstöð

PostPosted: Tue 15. Dec 2009 13:42
by doddi1
fart wrote:
sosupabbi wrote:Ég vann á bensínstöð í allt sumar, kom eitt svona atvik upp...ég festi hausinn bara aftur á slöngunna með hamri og hann hefur verið þar síðan


og svo næst þegar þetta gerist frussast bensínið út um allt og mögulega hverfur allt draslið í eldhafi :thup:



jájá en þangað til, þá er allt í gúddí :thup:

job well done