Page 1 of 2

(OT) Skoda Fabia 2007 og ljós í mælaborði

PostPosted: Sat 05. Dec 2009 07:23
by Mazi!
Sælir

var að lenda í því leiðindaveseni að sprengja dekk á mömmu bíl fór einhver andskotans skrúfa í dekkið :evil:

þetta var dekkið hægra megin að aftan, þegar dekkið var flatt kviknaði einhverskonar viðvörunarljós í mælaborðinu (!)

og það fer ekki þótt ég sé búinn að skipta um dekk og allt í fína ? :|


veit einhver hvernig maður fær þennan ömurlega bíl til að slökkva þetta ljós í mælaborðinu ?


tölvudrasl $%&()=%$... e30 ftw

Re: (OT) Skoda Fabia 2007 og ljós í mælaborði

PostPosted: Sat 05. Dec 2009 07:30
by Danni
Það þarf að vera sami loftþrýstingur í öllum dekkjunum undir bílnum. Getur líka verið að það er ekki skynjari í varadekkinu en ég þori ekki að fara með það.

Re: (OT) Skoda Fabia 2007 og ljós í mælaborði

PostPosted: Sat 05. Dec 2009 09:21
by JonFreyr
Stundum tharf líka ad tengja vid tölvu og endurræsa (reset) til ad losna vid svona ljos. Bara pæling.

Re: (OT) Skoda Fabia 2007 og ljós í mælaborði

PostPosted: Sat 05. Dec 2009 11:43
by ///M
Stendur alveg pottþétt í owners manualnum í hanskahólfinu....

Re: (OT) Skoda Fabia 2007 og ljós í mælaborði

PostPosted: Sat 05. Dec 2009 11:48
by Aron Andrew
Veit ekki hvort það er í Skodanum, en í sumum bílum eru mjög viðkvæmir skynjarar í felgunni sem eiga það til að skemmast í umfelgun.

Svo ef það er svona "sprungiðdekk takki" þá gæti virkað að halda honum inni í smá stund eftir að þú hefur jafnað þrýstinginn í dekkjunum.

Re: (OT) Skoda Fabia 2007 og ljós í mælaborði

PostPosted: Sat 05. Dec 2009 13:24
by hoddikr
Ég hef átt einn svona, og lenti í miklum vandræðum með hin ýmsu ljós í mælaborði.

Hann var reyndar aðeins eldri en til að endurræsa tölvuna þá þarftu að svissa á hann fimm sinnum, s.s. svissa á "on" (ekki starta) og aftur til baka fimm sinnum. Eftir það máttu starta og þá ætti ljósið að fara, þ.e.a.s. ef ekkert er bilað.

Vona að þetta hjálpi þér eitthvað.

Re: (OT) Skoda Fabia 2007 og ljós í mælaborði

PostPosted: Sun 06. Dec 2009 06:52
by Mazi!
Aron Andrew wrote:Veit ekki hvort það er í Skodanum, en í sumum bílum eru mjög viðkvæmir skynjarar í felgunni sem eiga það til að skemmast í umfelgun.

Svo ef það er svona "sprungiðdekk takki" þá gæti virkað að halda honum inni í smá stund eftir að þú hefur jafnað þrýstinginn í dekkjunum.


Úff :|


hoddikr wrote:Ég hef átt einn svona, og lenti í miklum vandræðum með hin ýmsu ljós í mælaborði.

Hann var reyndar aðeins eldri en til að endurræsa tölvuna þá þarftu að svissa á hann fimm sinnum, s.s. svissa á "on" (ekki starta) og aftur til baka fimm sinnum. Eftir það máttu starta og þá ætti ljósið að fara, þ.e.a.s. ef ekkert er bilað.

Vona að þetta hjálpi þér eitthvað.



prufa þetta, takk :D

Re: (OT) Skoda Fabia 2007 og ljós í mælaborði

PostPosted: Sun 06. Dec 2009 20:39
by jon mar
er loftlausa dekkið enþá í bílnum?

Re: (OT) Skoda Fabia 2007 og ljós í mælaborði

PostPosted: Tue 08. Dec 2009 03:31
by Mazi!
heyrðu nei, er búinn að fara með það á verkstæði og láta laga dekkið

núna er það komið undir bílinn aftur og varadekkið í skottið.


en enþá er þetta árans ljós í mælaborðinu :|

er búinn að prufa svissa 5 sinnum á bílinn og það virkaði ekki

ætli það þurfi ekki bara að núlla þetta úr tölvunni í bílnum eða kanski þetta sé einhver skynjari,

Re: (OT) Skoda Fabia 2007 og ljós í mælaborði

PostPosted: Tue 08. Dec 2009 12:08
by Benz
Örugglega að núlla þetta í tölvunni.

Smá off topic en ég stóðst ekki mátið...
Einu sinni var ég að keyra frúarbílinn, sem var þá Skoda Fabia, frá Akureyri til Reykjavíkur að vetrarlagi. Uppi á Holtavörðuheiði kviknaði á vélarljósinu og að sjálfsögðu var stoppað til þess að skoða hvað gæti verið að. Ekkert var hægt að sjá í fljótu bragði svo að flett upp í handbókinni yfir bílinn og þar stóð að það mætti aka bílnum á næsta viðurkennda Skoda verkstæði (of course :roll: ) en þó ekki fara yfir 50 km. hraða.
Það tekur ansi langan tíma að keyra á 50 til Reykjavíkur frá Holtavörðuheiði... :?
Og hvað haldið þið að niðurstaðan hafi verið úr tölvunni hjá viðkurkenna Skoda verkstæðinu?
Jú "bílnum var of kalt" og villuboðin voru núllstillt.
Það var nú ekki hálka á heiðinni, um 4-5 stiga hiti og Skoda Octavia Turbo, sem var með í för, fékk ekki "samskonar kvef" :roll:

Fékk nokkrum vikum síðar aftur samskonar skilaboð, aftur var tengd tölva við og aftur var bíllinn "kvefaður" og skilaboðunum eytt.

Ég fór í framhaldinu og losaði frúnna við bílinn sinn. Nennti ekki að standa í veseni með bíl sem þoldi illa "kulda" á Íslandi :-s

Re: (OT) Skoda Fabia 2007 og ljós í mælaborði

PostPosted: Tue 08. Dec 2009 12:17
by Djofullinn
Er enginn takki í bílnum til að núllstilla skynjarana? Það er allavega þannig í bimmunum. S.s þegar maður er búinn að setja réttan þrýsting í dekkin þá heldur maður honum inni þangað til ljósið fer minnir mig.

Re: (OT) Skoda Fabia 2007 og ljós í mælaborði

PostPosted: Tue 08. Dec 2009 18:03
by Zed III
er þetta ekki viðvörunarljós vegna bremsuklossa ?

Re: (OT) Skoda Fabia 2007 og ljós í mælaborði

PostPosted: Tue 08. Dec 2009 18:27
by Thrullerinn
Prófaðu að halda hnappinum inni, minnir endilega að ég núllsetji þetta þannig á Z4.

Re: (OT) Skoda Fabia 2007 og ljós í mælaborði

PostPosted: Tue 08. Dec 2009 18:47
by crashed
þetta er ljós fyrir bremsurnar eins og zed sagði sprungið dekk er gult stundum raut en mynd af loftlausu dekki að mig minnir, held að þetta hafi annað hvort hist svo vel á að klosarnir fóru niðurfyrir lámark á sama tíma eða bremsuskynjari dottið úr sambandi/sundur leiðslur

Re: (OT) Skoda Fabia 2007 og ljós í mælaborði

PostPosted: Tue 08. Dec 2009 23:26
by 98.OKT
Ég get alveg lofað ykkur því að það er enginn loftþrýstingsskynjari í Skoda Fabia :lol: :lol: