Page 1 of 1

bílalán og skil á bíl

PostPosted: Wed 02. Dec 2009 09:23
by Zed III
hefur einhverstaðar komið fram að menn mega skila bílunum gegn því að lengja bílalánin eða þá að lengja lánin og skila svo bílnum?

Re: bílalán og skil á bíl

PostPosted: Wed 02. Dec 2009 09:38
by Einarsss
held að lánveitendur séu ekki að taka bílana uppí lánið og leyfi svo fólki að borga eftirstöðvarnar.

Re: bílalán og skil á bíl

PostPosted: Wed 02. Dec 2009 09:40
by Zed III
fann þetta hjá Lýsingu:

Verða eftirstöðvar afskrifaðar?
Nei. Ef eftirstöðvar eru á bílasamningi þegar þrjú ár eru liðin umfram núverandi samningstíma getur leigutaki farið fram á samningsslit með því að greiða eftirstöðvar að fullu eða skila bifreiðinni. Ástand leigumunar við skil skal vera samkvæmt ákvæðum upphaflegs samnings um meðferð og viðhald leigumunar og bifreið hafi farið í gegn um skoðun eins og lög gera ráð fyrir.

Þetta dugar mér.

Re: bílalán og skil á bíl

PostPosted: Wed 02. Dec 2009 10:42
by Einsii
Mér sýnist öll þessi fyrirtæki ætla að rukka menn um leigu á bílnum auka 3 ár og svo biðja þá vinsamlega að skila til sín bílnum eftir það.
Þannig að bílasamningur sem var þannig að maður eignaðist bílinn í lok samnings er orðinn að einhverri bílaleigu þar sem maður skilar skrjóðnum eftir að hafa borgað í kanski 10 ár af honum okur greiðslur. Þetta er klikkað.

Re: bílalán og skil á bíl

PostPosted: Wed 02. Dec 2009 10:54
by Zed III
jebb, og þegar menn hugsa um hvernig þessi fyrirtæki hafa verið að reikna skilaverðmætið út þá batnar það ekki.

50k fyrir rúðuþurrkublöð osfrv

Alveg galið.

Sem betur fer er ég ekki með svona lán, ég hélt ég væri þvílíkt að tapa á þessu þegar ég borgaði upp lánið mitt þegar vísitalan var í 150.

Re: bílalán og skil á bíl

PostPosted: Wed 02. Dec 2009 14:19
by dabbiso0
Bíllinn er sko grandskoðaður. Allar rispur og allt. Og rukkað í samhæfi

Re: bílalán og skil á bíl

PostPosted: Wed 02. Dec 2009 17:21
by Einsii
Láta bara óháðann aðila skoða bílinn áður en honum er skilað, Frumherja eða viðurkent bílaverkstæði. Og reka svo þá pappíra framan í andlitið á þeim ef þeir eru með eitthvað múður.

Svo veit ég allavega til þess að hér á Ak er farið með bílana sem Avant er að taka til sín upp á frumherja í skoðun, Efast um að Frumherji sé með sérstaka bílasamningsbíla ástandsskoðun. Ætti að vera nokkuð sanngjörn skoðun þar.

Re: bílalán og skil á bíl

PostPosted: Wed 02. Dec 2009 17:59
by doddi1
Einsii wrote:Láta bara óháðann aðila skoða bílinn áður en honum er skilað, Frumherja eða viðurkent bílaverkstæði. Og reka svo þá pappíra framan í andlitið á þeim ef þeir eru með eitthvað múður.

Svo veit ég allavega til þess að hér á Ak er farið með bílana sem Avant er að taka til sín upp á frumherja í skoðun, Efast um að Frumherji sé með sérstaka bílasamningsbíla ástandsskoðun. Ætti að vera nokkuð sanngjörn skoðun þar.



þú veist að Frumherji er fyrirtæki í einkaeigu

Re: bílalán og skil á bíl

PostPosted: Wed 02. Dec 2009 22:57
by Einsii
doddi1 wrote:
Einsii wrote:Láta bara óháðann aðila skoða bílinn áður en honum er skilað, Frumherja eða viðurkent bílaverkstæði. Og reka svo þá pappíra framan í andlitið á þeim ef þeir eru með eitthvað múður.

Svo veit ég allavega til þess að hér á Ak er farið með bílana sem Avant er að taka til sín upp á frumherja í skoðun, Efast um að Frumherji sé með sérstaka bílasamningsbíla ástandsskoðun. Ætti að vera nokkuð sanngjörn skoðun þar.



þú veist að Frumherji er fyrirtæki í einkaeigu

Það eru önnur bílaverkstæði líka... Þeir eru samt óháðir aðilar fyrir því vona ég.