bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Síminn a.k.a skíta fyrirtæki ? https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=41503 |
Page 1 of 3 |
Author: | Grétar G. [ Mon 30. Nov 2009 16:19 ] |
Post subject: | Síminn a.k.a skíta fyrirtæki ? |
Var að fá þetta e-mail frá Nova.. langaði að deila með ykkur ![]() Kæri viðskiptavinur, Leiðrétting. Síminn býður ekki ódýrustu farsímaþjónustu á Íslandi skv. Póst- og fjarskiptastofnun. Í fjölmiðlum undanfarið hefur verið til umfjöllunar verðsamanburður á farsímaþjónustu á Íslandi í tenglsum við undirbúning Póst- og fjarskiptastofnunar á reiknivél fyrir símaþjónustu. Bæði fréttir og auglýsingar um að Síminn bjóði ódýrustu GSM áskriftina er hrein blekking. Annars vegar er um að ræða ályktanir sem eru dregnar af gögnum sem enn eru á vinnslustigi en ekki er síður alvarlegt að Síminn miðaði við þjónustuleiðir sem neytendum stóð ekki til boða. Stöð 2 fjallaði um þennan verðsamanburð í fréttum miðvikudaginn 25. nóvember og aftur í fréttum fimmtudaginn 26. nóvember. Í fréttum Stöðvar 2 fimmtudaginn 26. nóvember kemur eftirfarandi fram: Þau þrjú farsímatilboð hjá Símanum sem sögð voru lægst voru ekki í boði fyrir viðskiptavini þegar fréttastofa spurðist fyrir um þau en tilboðin voru gerð aðgengileg eftir að fréttastofa spurðist fyrir um málið. Í ljósi þess að tekið var mið af tilboðsleiðum sem ekki eru í boði fyrir viðskiptavini er ljóst að reiknivél Póst- og fjarskiptastofnunar er ekki tilbúin og því ekki hægt að treysta upplýsingum sem þaðan koma. Þrátt fyrir þetta auglýsir Síminn að fullum krafti í útvarpi og dagblöðum ódýrustu farsímaþjónustu á Íslandi vitandi að verðsamanburðinn er rangur. Síminn var samkvæmt þessu ódýrastur í farsímaþjónustu sem ekki var til. Það hefur einnig komið fram í fjölmiðlum undanfarið að Síminn hefur aldrei misst fleiri viðskiptavini frá sér frá því að Nova opnaði. Síminn er í fyrsta skipti kominn undir 50% markaðshlutdeild. Viðskiptavinum Nova hefur á sama tíma fjölgað hratt og eru viðskiptavinir fyrirtækisins í dag hátt í 60.000 talsins. Viðskiptavinum Nova hefði ekki fjölgað svona hratt á stuttum tíma ef ekki væri fyrir hagstæðara verð á farsímaþjónustu. 0 kr. Nova í Nova er ekki tímabundið tilboð heldur grunnurinn að lágri verðlagningu fyrirtækisins. Við ætlum okkur EKKI að hætta með 0 kr. Nova í Nova, það hefur aldrei staðið til þrátt fyrir orðróm þess efnis. Hjá Nova þarf ekki heldur að borga fyrir 0 kr. Nova í Nova - en hjá samkeppnisaðilum er algengt að 0 kr. símtöl fáist eingöngu gegn lágmarks-viðskiptum á mánuði. Hjá Símanum þarf t.d. að borga 990 kr. eða 1.990 kr. á mánuði til að fá 0 kr. símtöl en hjá Nova kostar 0 kr. Nova í Nova - 0 kr. í frelsi. Mánaðargjald í áskrift hjá Nova er 490 kr. og þá fylgir líka netið í símann með (250 MB á mánuði). Í ljósi fallandi markaðshlutdeildar, notfærði Síminn sér að fara út með rangar upplýsingar í nafni Póst- og fjarskiptastofnunar. Er það von Nova að endanleg útgáfa af reiknivél Póst- og fjarskiptastofnunar verði betur unnin og varpi ljósi á hið rétta í þessu máli. Liv Bergþórsdóttir Framkvæmdastjóri Nova. 27. nóvember 2009 Yfirlýsing frá Póst og fjarskiptastofnun Vegna frétta sem birtar hafa verið á Stöð 2 og Vísi.is og auglýsinga Símans undanfarna daga þar sem vitnað er til úttektar og reiknivélar Póst- og fjarskiptastofnunar vill stofnunin taka fram: Póst- og fjarskiptastofnun hefur ekki birt úttekt um verðsamanburð milli fjarskiptafyrirtækjanna nema þann mánaðarlega verðsamanburð sem birtur er á vef stofnunarinnar sem PDF skjöl. Fréttir og auglýsingar um slíka úttekt eru rangar og ekki á ábyrgð PFS. (sjá, http://www.postogfjar.is) |
Author: | SteiniDJ [ Mon 30. Nov 2009 16:58 ] |
Post subject: | Re: Síminn a.k.a skíta fyrirtæki ? |
Ég er hjá símanum og er bara mjög sáttur. Ekkert rugl eða vesen, þannig þeir fá mín viðskipti áfram. Þetta snýst ekki alltaf um einhverja smápeninga. |
Author: | Birgir Sig [ Mon 30. Nov 2009 17:17 ] |
Post subject: | Re: Síminn a.k.a skíta fyrirtæki ? |
ég nennti nú ekki að lesa þetta en heitir konan liv? eða er þetta stafsetningarvilla? Liv Bergþórsdóttir Framkvæmdastjóri Nova. |
Author: | tinni77 [ Mon 30. Nov 2009 18:11 ] |
Post subject: | Re: Síminn a.k.a skíta fyrirtæki ? |
birgir_sig wrote: ég nennti nú ekki að lesa þetta en heitir konan liv? eða er þetta stafsetningarvilla? Liv Bergþórsdóttir Framkvæmdastjóri Nova. jebb |
Author: | Aron Fridrik [ Mon 30. Nov 2009 19:00 ] |
Post subject: | Re: Síminn a.k.a skíta fyrirtæki ? |
Hringdu í þjónustuverið hjá nova og fáðu þetta staðfest.. Æjj nei það svarar enginn þar.. Ég er alveg til í að borga 990 fyrir betra samband og einhverja þjónustu |
Author: | Aron Andrew [ Mon 30. Nov 2009 19:09 ] |
Post subject: | Re: Síminn a.k.a skíta fyrirtæki ? |
Aron Fridrik wrote: Hringdu í þjónustuverið hjá nova og fáðu þetta staðfest.. Æjj nei það svarar enginn þar.. Ég er alveg til í að borga 990 fyrir betra samband og einhverja þjónustu Ekki vera með þetta bull! Ég hef hringt nokkrum sinnum í þjónustuverið hjá Nova og alltaf er svarað fljótt. Ég er búinn að þvælast mikið um núna í haust og hef tekið eftir því á tveimur stöðum að ég var með símasamband en ekki aðrir sem eru hjá Vodafone og Símanum. Þetta var í bröttubrekku og austur í möðrudalsöræfum. Og svo talandi um þjónustu, síminn hjá kærustunni bilaði í gær, við fórum í Nova í dag, fengum lánssíma og hinn á að koma úr viðgerð eftir viku. Ég er búinn að kaupa inneignir fyrir undir 10k kr á þessu ári og borga ekki krónu í mánaðargjald, þetta er alltaf ódýrara en önnur fyrirtæki! |
Author: | SteiniDJ [ Mon 30. Nov 2009 19:21 ] |
Post subject: | Re: Síminn a.k.a skíta fyrirtæki ? |
Ég hef ekki prófað Nova, en mikið fara hljóðin sem maður þarf að hlusta á ef maður hringir í þá í taugarnar á mér. Finnst líka alveg absúrd hvað það er dýrt að hringja í Nova númer. Hef prófað Vodafone, var ekki sáttur og fór aftur í Símann. Mín reynsla hefur alltaf verið no nonsense og það hefur gengið eftir. |
Author: | Mazi! [ Mon 30. Nov 2009 19:25 ] |
Post subject: | Re: Síminn a.k.a skíta fyrirtæki ? |
ég hef verið hjá Símanum, vodafone og svo nova núna í ca ár og Nova er bara það besta sem ég hef nokkurntímann vitað, er ekki búinn að kaupa mér inneign í ár ![]() semsagt ég tala við alla þá sem ég þarf að tala við í síma FRÍTT. ef einvher er ekki hjá nova sem ég þarf að ná í sem gerist verulega sjaldan þá sendi ég bara SMS (hringdu og símanúmer. og sendi í 1900) þá fær sá aðilli skilaboð um að hringja í mig ![]() svo er líka hægt að nota heimasímann bara hehe.. ég er allaveganna alveg að fýla það að borga ekki krónu í síma inneign eða áskrift, svo er þjónustan hjá nova bara mjög góð hinsvegar er þjónustuverið hjá símanum alveg ein skita, þar þarf maður einmitt að bíða og bíða og bíða og einhver leiðindi |
Author: | ///M [ Mon 30. Nov 2009 19:26 ] |
Post subject: | Re: Síminn a.k.a skíta fyrirtæki ? |
Aron Andrew wrote: Ég er búinn að þvælast mikið um núna í haust og hef tekið eftir því á tveimur stöðum að ég var með símasamband en ekki aðrir sem eru hjá Vodafone og Símanum. Þetta var í bröttubrekku og austur í möðrudalsöræfum. Quote: Vodafone og Nova hafa samið um samnýtingu farsímakerfa hvors annars og hafa stjórnir félaganna þegar samþykkt samning þess efnis. Samningurinn felur í sér að Vodafone fær aðgang að nýju dreifikerfi Nova fyrir þriðju kynslóð farsíma (3G) og Nova fær aðgang að GSM farsímakerfi Vodafone.
|
Author: | Kristjan [ Mon 30. Nov 2009 19:44 ] |
Post subject: | Re: Síminn a.k.a skíta fyrirtæki ? |
Liv er sænskt nafn. Borið fram Lív. ![]() |
Author: | bimmer [ Mon 30. Nov 2009 19:53 ] |
Post subject: | Re: Síminn a.k.a skíta fyrirtæki ? |
SteiniDJ wrote: Finnst líka alveg absúrd hvað það er dýrt að hringja í Nova númer. Er það semsagt þannig sem allt þetta fría hjá Nova er fjármagnað???? |
Author: | gulli [ Mon 30. Nov 2009 20:24 ] |
Post subject: | Re: Síminn a.k.a skíta fyrirtæki ? |
Að hafa lag í staðinn fyrir "BÍÍÍB-BÍÍÍB" er bara mjög skemmtilegt finnst mér..... og eða eitthverja fyndna rulu ![]() það er dýrt fyrir fólk sem ekki er í viðskiptum hja Nova að hringja i Nova,,, en er það þá ekki bara fyrirtækinu sem sá aðili er í sem er um að kenna? eða er það kannski rangt hjá mér ![]() ![]() |
Author: | arnibjorn [ Mon 30. Nov 2009 20:27 ] |
Post subject: | Re: Síminn a.k.a skíta fyrirtæki ? |
Nova er bara algjörlega málið. Símreikningurinn minn var alltaf í kringum 10k á mánuði hjá Vodafone. Fór yfir í Nova og núna eru nánast allir vinir mínir í Nova og ég er að borga eitthvað klink í símreikning! ![]() |
Author: | Aron Andrew [ Mon 30. Nov 2009 20:33 ] |
Post subject: | Re: Síminn a.k.a skíta fyrirtæki ? |
///M wrote: Aron Andrew wrote: Ég er búinn að þvælast mikið um núna í haust og hef tekið eftir því á tveimur stöðum að ég var með símasamband en ekki aðrir sem eru hjá Vodafone og Símanum. Þetta var í bröttubrekku og austur í möðrudalsöræfum. Quote: Vodafone og Nova hafa samið um samnýtingu farsímakerfa hvors annars og hafa stjórnir félaganna þegar samþykkt samning þess efnis. Samningurinn felur í sér að Vodafone fær aðgang að nýju dreifikerfi Nova fyrir þriðju kynslóð farsíma (3G) og Nova fær aðgang að GSM farsímakerfi Vodafone. Þetta var samt sem áður málið. Vegna þess að ég náði sambandi þá ákváðum við að reyna að komast yfir á, við festumst og ég gat hringt í gaur til að draga okkur upp ![]() |
Author: | SteiniDJ [ Mon 30. Nov 2009 20:37 ] |
Post subject: | Re: Síminn a.k.a skíta fyrirtæki ? |
bimmer wrote: SteiniDJ wrote: Finnst líka alveg absúrd hvað það er dýrt að hringja í Nova númer. Er það semsagt þannig sem allt þetta fría hjá Nova er fjármagnað???? Þeir gætu vel gert það, enda kostar 28 krónur að hringja í Nova úr Símanum, en 23.5 krónur í öll önnur kerfi (fyrir utan í Símann, þá kostar það 11.9 krónur ef þú ert ekki í Ring). |
Page 1 of 3 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |