Page 1 of 2

Montþráður (ég vil vera með!)

PostPosted: Wed 25. Nov 2009 10:00
by Daníel
Ég ætla að vera með og gera montþráð um drenginn minn. :)

Þann 18. september síðastliðinn klukkan 11 áttum við frúin tíma í monitor niðri á Landspítala. Við vorum ekki komin þangað inn fyrr en um 12 og þegar leið á leist þeim ekki alveg nógu vel á þetta og var afráðið að sækja barnið. þVí var okkur hraðað upp á fæðingargang þar sem skurðstofan var græjuð og klukkan 14:09 kom svo þessi ungi maður í heiminn:

Image
Nokkurra mínútna gamall þarna

Ef ekki hefði verið fyrir þennan monitor er óvíst að hann hefði haft helgina af í móðurkviði, fylgjan var eitthvað lélég svo hann fékk ekki allt sem hann þurfti og var frekar lítill, eða 46cm. og 2685gr. Hann var í vandræðum með blóðsykurinn og þurfti að styrkja sig til að geta drukkið sjálfur og var því á vökudeild í 12 daga.

Image
Image

Á nokkrum dögum var hann búinn að ná blóðsykrinum í jafnvægi og þurfti þá bara nokkra daga til viðbótar til að geta drukkið og losnaði þá við sonduna úr nefinu. Allan þennan tíma kom hann okkur sífellt á óvart, bjuggumst ekki við að það tæki hann svona stuttan tíma að ná sér.

Image

Nú er hann að verða 10 vikna gamall og er hörkuduglegur, er búinn að stækka vel en er enn frekar lítill miðað við önnur börn. Var í 8 vikna skoðun kominn í 52cm. og 4005gr. :)

Image

Þrátt fyrir allt sem gekk á er þetta búið að vera alveg yndislegt og foreldrahlutverkið er það merkilegasta sem ég hef nokkurn tíma upplifað. Stoltur pabbi. :)

Re: Montþráður (ég vil vera með!)

PostPosted: Wed 25. Nov 2009 10:02
by bimmer
Til hamingju með guttann :thup:

Re: Montþráður (ég vil vera með!)

PostPosted: Wed 25. Nov 2009 10:05
by Einarsss
Til hamingju :)

Re: Montþráður (ég vil vera með!)

PostPosted: Wed 25. Nov 2009 10:06
by arnibjorn
Til hamingju :)

Spurning um að ég fari að búa til nýtt svæði á kraftinum.

Börn meðlima
Hér geturðu póstað myndum af börnunum þínum.

:D

Re: Montþráður (ég vil vera með!)

PostPosted: Wed 25. Nov 2009 10:09
by Daníel
Takk félagar. :)

Já, þetta er farinn að verða ansi stór krakkaskari hérna hjá meðlimum. :lol:

Re: Montþráður (ég vil vera með!)

PostPosted: Wed 25. Nov 2009 10:10
by bimmer
Þurfum sér svæði - hvernig á að modda barnastóla, etc.

Re: Montþráður (ég vil vera með!)

PostPosted: Wed 25. Nov 2009 10:15
by Zed III
Góður, gaman að sjá þetta.

Til hamingju.

Styð sér svæði: "Baby mods for your bmw"

Re: Montþráður (ég vil vera með!)

PostPosted: Wed 25. Nov 2009 10:20
by saemi
Barnakraftur.is :o

Re: Montþráður (ég vil vera með!)

PostPosted: Wed 25. Nov 2009 10:28
by Einarsss
bimmer wrote:Þurfum sér svæði - hvernig á að modda barnastóla, etc.



Þarf ekki að modda, kaupir bara recaro ;)

Er með einn svoleiðis fyrir yngri stelpuna, hægt að plögga mp3 spilara í hann og læti :D

Re: Montþráður (ég vil vera með!)

PostPosted: Wed 25. Nov 2009 10:50
by Thrullerinn
Bara gaman ;) til hamingju !!
Þau eru seig þessi litlu...

Re: Montþráður (ég vil vera með!)

PostPosted: Wed 25. Nov 2009 11:36
by gardara
Það er greinilegt að maður verður að fara að búa til krakka ef maður ætlar að halda áfram að stunda kraftinn :shock:


Til hamingju annars :)

Re: Montþráður (ég vil vera með!)

PostPosted: Wed 25. Nov 2009 12:15
by íbbi_
rosalega sætur
innilega til hamingju með strákinn, mikið er nú gott að heyra að þettas hafi farið svona,

Re: Montþráður (ég vil vera með!)

PostPosted: Wed 25. Nov 2009 16:11
by Seli
hvað er hann í hö þessi? :lol:

Re: Montþráður (ég vil vera með!)

PostPosted: Wed 25. Nov 2009 16:31
by flamatron
Til hamingju með lilla :thup:

Re: Montþráður (ég vil vera með!)

PostPosted: Wed 25. Nov 2009 18:42
by burger
til hamingju með drenginn :D