Page 1 of 1

Reiðhjóli stolið

PostPosted: Thu 19. Nov 2009 10:29
by grettir
Sælir félagar.

Einhver óprúttinn aðili tók fjallahjólið mitt traustataki í nótt. Þetta er svart og dökkgrátt Trek 4300 með festingu fyrir barnastól og hraðamæli. Ég var að smyrja það í gær, svo það er hugsanlegt að ég hafi gleymt að læsa því og er að vona að einhver hafi notað það til að ferðast stutta vegalengd og hjólið finnist.

Ef þið verðið varir/vör við yfirgefið hjól í nágrenni við 105 (hlíðar/holt) sem svarar lýsingunni, þá megið þið gjarnan senda mér póst á fjallahjol hja grettir.net

kv.
Grettir

Re: Reiðhjóli stolið

PostPosted: Thu 19. Nov 2009 10:54
by arnibjorn
Ég bý í hlíðunum og ég skal hafa augun opin :)

Re: Reiðhjóli stolið

PostPosted: Thu 19. Nov 2009 13:17
by SteiniDJ
Krafturinn ætti að opna undirflokk sem heitir "Stolið"! :shock:

Re: Reiðhjóli stolið

PostPosted: Thu 19. Nov 2009 13:44
by grettir
arnibjorn wrote:Ég bý í hlíðunum og ég skal hafa augun opin :)

Kærar þakkir..

Þetta er ansi bagalegt þar sem ég nota gripinn til að ferðast í og úr vinnu.

Re: Reiðhjóli stolið

PostPosted: Thu 19. Nov 2009 14:19
by siggir
Ég er í Hlíðunum líka. Hef augun hjá mér.

Re: Reiðhjóli stolið

PostPosted: Fri 20. Nov 2009 11:02
by grettir
Ég fann hjólið í morgun! Var að skutla krökkunum í skólann þegar ég sé einhvern náunga hjólandi í áttina að 10-11 Lágmúla á hjólinu. Hringdi á lögregluna sem mætti og gerði hjólið upptækt og skutlaði því heim skömmu síðar.

:thup:

Re: Reiðhjóli stolið

PostPosted: Fri 20. Nov 2009 11:11
by Jón Ragnar
grettir wrote:Ég fann hjólið í morgun! Var að skutla krökkunum í skólann þegar ég sé einhvern náunga hjólandi í áttina að 10-11 Lágmúla á hjólinu. Hringdi á lögregluna sem mætti og gerði hjólið upptækt og skutlaði því heim skömmu síðar.

:thup:

Snillingur! :thup: :thup:

Re: Reiðhjóli stolið

PostPosted: Fri 20. Nov 2009 11:13
by gunnar
Wow það er bara gott.. :thup:

Re: Reiðhjóli stolið

PostPosted: Fri 20. Nov 2009 12:53
by SteiniDJ
grettir wrote:Ég fann hjólið í morgun! Var að skutla krökkunum í skólann þegar ég sé einhvern náunga hjólandi í áttina að 10-11 Lágmúla á hjólinu. Hringdi á lögregluna sem mætti og gerði hjólið upptækt og skutlaði því heim skömmu síðar.

:thup:


Djöfulsins snilld, gaman að heyra það! :)