Page 1 of 3
Tölvunördar

Posted:
Sun 15. Nov 2009 18:28
by Knud
Komið þið sælir
Ég lendi í smá basli reglulega með tölvuna mína.
Ef ég spila tölvuleiki (helst þó leikir í flottari kantinum) í henni þá á hún það til að frjósa eftir c.a 30mín - 2 tíma.
Ekkert blue screen eða neitt, myndin bara föst og verð að restarta.
Er með windows xp service pack 2, nóg vinnsluminni
þetta eru samt leikir sem vélin mín stendur alveg undir lágmarkskröfum fyrir keyrslu og oft gott betur.
Hafið þið nokkrar hugmyndir um hvað gæti orsakað þetta
Re: Tölvunördar

Posted:
Sun 15. Nov 2009 18:36
by slapi
Er ekki spurning um að skoða hitann á örgjörvanum hjá þér undir öllu þessu álagi ?
Re: Tölvunördar

Posted:
Sun 15. Nov 2009 18:40
by Jónas Þór
mjög líklega einhver kæling, hjá mér var viftan á skjákortinu ónýtt og tölvan fraus alltaf eftir 10-20 min í leikjum.
Re: Tölvunördar

Posted:
Sun 15. Nov 2009 18:42
by Knud
ok er þetta bara spurning um að þreifa á draslinu þegar hún frýs??
Re: Tölvunördar

Posted:
Sun 15. Nov 2009 18:48
by Arnarf
Knud wrote:ok er þetta bara spurning um að þreifa á draslinu þegar hún frýs??
speedfan og fleiri forrit geta séð hitan á flest öllu dótinu í tölvunni þinni
Gott að byrja þar
Re: Tölvunördar

Posted:
Sun 15. Nov 2009 19:00
by SteiniDJ
Passa líka bara að allar viftur fái gott pláss tli að blása og að það sé ekki búið að loka fyrir þær (með t.d. skrifborði). Getur síðan opnað kassan og séð hvort þetta sé stútfullt af ryki eða ekki, blása svo bara úr henni ef svo er.
Re: Tölvunördar

Posted:
Sun 15. Nov 2009 19:09
by ValliFudd
Mjög algeng sjón er að sjá þetta svona undir viftum..

Sammála strákunum, opna hana og skoða kæliplötur og viftur..
Re: Tölvunördar

Posted:
Sun 15. Nov 2009 19:35
by Knud
Ég tek og hreinsa rykið reglulega innan úr henni.
var að því núna og það var ekkert hættulega mikið inn í henni.
einnig sótti ég speedfan og komst að því að temp nr3 var of hátt sem er að ég held hitinn á skjákortinu
viftan er að snúast c.a 1200 rpm og hitinn er 82°c
núna þekki ég ekki hvað viftan á að snúast, en mig grunar að þetta hitastig sé of hátt
Re: Tölvunördar

Posted:
Sun 15. Nov 2009 19:41
by doddi1
ég var að lenda í nákvæmlega sama dæmi núna eftir að hafa keypt Cod MW2...
ég opnaði bara kassann og sneri borðviftunni inn í hann, hef ekki lent í þessu síðan.
Re: Tölvunördar

Posted:
Sun 15. Nov 2009 21:47
by SteiniDJ
Var að keyra Crysis í hæstu stillingum og þá fór kortið mitt að rokka í 110° +.

Gamla vélin mín át hrikalega mikið ryk og þurfti ég reglulega að hreinsa hana.
Re: Tölvunördar

Posted:
Sun 15. Nov 2009 21:53
by Knud
já en þegar þetta hitinn er í 85°c á kortinu , er það eðlilegt eða ætti maður að huga að fjárfesta í nýrri viftu
þetta er ati-radeon 4800 ef það skiptir einhverju máli
Re: Tölvunördar

Posted:
Sun 15. Nov 2009 22:24
by SteiniDJ
85° Idle eða í vinnslu?
Re: Tölvunördar

Posted:
Sun 15. Nov 2009 22:27
by Einarsss
var að lenda í svipuðum pakka ... hreinsaði rykið og allt í góðu

nú get ég haldið áfram að spila COD MW II, Dragon Age: Orgins og Torchlight
Re: Tölvunördar

Posted:
Sun 15. Nov 2009 22:28
by Kristjan
Ryk er algjör dauði þegar kemur að fartölvum, maður þarf helst að hreinsa þær á nokkra mánaða fresti ef maður er að nota þær upp í rúmi t.d.
Re: Tölvunördar

Posted:
Sun 15. Nov 2009 22:30
by SteiniDJ
Dragon Age er rosalegur. Er alveg að vera búinn með hann, en þetta er leikur sem maður getur alveg spilað aftur og aftur.
