Spurning til Kraftslögfræðinganna
Vantar að fá ykkar álit á þessu.
Við erum nokkur saman að leigja skúr í hafnarfirði.
Í kvöld fékk Árni símtal frá lögreglunni um að þeir hefðu fengið tilkynningu um að skúrinn okkar stæði opinn og hvort við vildum ekki koma og læsa honum. Árni var auðvitað smeikur um að nú væru öll okkar verkfæri horfin og spurði hvort það væri búið að stela einhverju og löggan sagði að það væri allt á sínum stað, sem okkur fannst svolítið skrýtið því hún vissi ekkert hvað átti að vera þarna. Við mætum á svæðið og þá stendur hurðin opin og líka hurðin á skúrnum við hliðina, sem eigandinn af báðum skúrunum er í.
Við skiljum voða lítið í þessu því það er engin lögga á svæðinu, en svo kemur einn sem sá þetta og sagði okkur að löggan hefði mætt á ómerktum bílum með lásasmið með sér og borað út báða lásana, leitað í húsinu og svo skipt um lása og farið.
Pétur sem á skúrana hringdi svo í gsm númerið sem löggan hafði hringt úr í Árna og þá sagði löggan að þeir hefðu fengið tilkynningu um að við værum með kannabisræktun og því hafi þeir leitað hjá okkur.
Er þetta löglegt? Vaða inn, ljúga því að skúrinn hafi staðið opinn og fara svo bara án þess að spyrja nokkurn um leyfi?
Ætla ekkert að fara að gera neitt mál úr þessu, finnst þetta bara nokkuð merkilegt að þeir geti komist upp með þetta og hefði glaður farið og opnað fyrir löggunni ef þeir hefðu beðið mig um það.
kv. AA