Page 1 of 2

Ránið í Svíþjóð

PostPosted: Wed 23. Sep 2009 13:26
by arnibjorn
Hversu awesome er þetta??

http://www.visir.is/article/20090923/FR ... /907907285

Sænska lögreglan telur að þyrluflugmaðurinn sem tók þátt í að ræna peningageymslu öryggisfyrirtækis í morgun hafi hlotið herþjálfun. Þá leikur einnig grunur á að einn ræningjanna sé starfsmaður öryggisfyrirtækisins.

Ræningjarnir lentu þyrlunni á þaki öryggisfyrirtækisins og sprengdu sér leið inn í húsið. Næturverðir gerðu lögreglu viðvart og voru þjófarnir enn í byggingunni þegar hún kom á staðinn en þeir flugu á brott með ránsfenginn áður en lögreglan náði að komast upp á þakið.

Þyrlan fannst mannlaus norðan við Stokkhólm nokkru eftir ránið. Það virðist hafa verið þaulskipulagt en skemmdarverk voru unnin á þyrlum lögreglunnar sem fyrir vikið komust hvorki lönd né strönd. Sænska lögreglan telur að einn eða fleiri mannanna hafi hlotið herþjálfun þar sem þyrluflugmaðurinn hefur þurft að búa yfir talsverðri færni. Flugmaðurinn lenti þyrlunni mjög nálægt 12 metra háum birkitrjám. Þyrluspaðarnir voru aðeins nokkra metra frá þeim. Sænska lögreglan reynir nú að kortleggja hverjir búa yfir slíkri færni.

Þá leikur einnig grunur á að meðal þjófanna sé starfsmaður öryggisfyrirtækisins. Enn hefur ekki komið fram hversu stór ránsfengurinn var en lögreglan telur að hann hafi verið í kringum 1 milljarð sænskra króna eða 18 milljarðar íslenskra króna

Re: Ránið í Svíþjóð

PostPosted: Wed 23. Sep 2009 13:46
by Maddi..
Haha já!
Almennilegt. :shock:

Re: Ránið í Svíþjóð

PostPosted: Wed 23. Sep 2009 13:47
by SteiniDJ
Deem, þeir voru teknir algjörlega í bakaríið.

Re: Ránið í Svíþjóð

PostPosted: Wed 23. Sep 2009 13:51
by HAMAR
Ef að maður ætlar að ræna einhverju þá á maður að gera það almennilega eins og þessir gaurar,
ekki að vera í einhverju helv... búðarhnuppli eins og kelling.

p.s. búðarhnuppl á íslandi er tjón uppá 3-4 milljarða á ári :shock:

Re: Ránið í Svíþjóð

PostPosted: Wed 23. Sep 2009 13:55
by kalli*
Hluti sem maður bjóst við að væru aðeins gert í bíómyndum (oftast allavegana) :shock:

Re: Ránið í Svíþjóð

PostPosted: Wed 23. Sep 2009 13:59
by arnibjorn
Ég er líka búinn að heyra að þeir settu svona spike strips á allar göturnar sem að lágu að þessu húsi og tilkynntu lögreglunni um að þeir væru búnir að setja sprengur á þyrlupallinn sem væri þarna þannig að það var mjög erfitt fyrir lögregluna að ná þeim.

Það kom síðan í ljós að þetta var gervi sprengja.

Fagmenn :D

Re: Ránið í Svíþjóð

PostPosted: Wed 23. Sep 2009 14:57
by IvanAnders
NICE!!!!

Svíarnir kunna þetta!!! 8)

Hefur verið turbo þyrla! :lol:

Re: Ránið í Svíþjóð

PostPosted: Wed 23. Sep 2009 16:01
by SteiniDJ
IvanAnders wrote:NICE!!!!

Svíarnir kunna þetta!!! 8)

Hefur verið turbo þyrla! :lol:


Haha. :D

Annars merkilega skemmtilegt að sjá hvað þeir hafa hugsað fyrir ÖLLU og að enginn virðist hafa hlotið líkamlegt tjón.

Re: Ránið í Svíþjóð

PostPosted: Wed 23. Sep 2009 16:29
by gunnar
Þetta virðist vera alveg klippt útur verstu Hollywood klisjumynd.....

Veit að það er ekki töff að stela en þetta er samt sem áður svo fokking kúl aðferð! :lol:

Re: Ránið í Svíþjóð

PostPosted: Wed 23. Sep 2009 16:41
by Eggert
Sammála því... En þeir eru nú víst búnir að handtaka einn. Ef menn komast ekki upp með þetta þá er ég ansi hræddur um að menn komist ekki upp með neitt. :|

Re: Ránið í Svíþjóð

PostPosted: Wed 23. Sep 2009 16:43
by basten
IvanAnders wrote:NICE!!!!

Svíarnir kunna þetta!!! 8)

Hefur verið turbo þyrla! :lol:


Hugsa að það sé líklegra að þarna séu menn frá Balkanskaganum á ferðinni.
Nokkuð af innflytjendum þaðan sem margir hafa mikla reynslu af hernaði.

Re: Ránið í Svíþjóð

PostPosted: Wed 23. Sep 2009 16:47
by Alpina
basten wrote:
IvanAnders wrote:NICE!!!!

Svíarnir kunna þetta!!! 8)

Hefur verið turbo þyrla! :lol:


Hugsa að það sé líklegra að þarna séu menn frá Balkanskaganum á ferðinni.
Nokkuð af innflytjendum þaðan sem margir hafa mikla reynslu af hernaði.


frændi minn er retired úr FRÖNSKU ÚTLENDINGAHERSVEITINNI,, belive it or not

hann er ca 40 ára

eftir BALKAN stríðið hrugaðist inn svo mikið af psycho liði að það var sett stopp á þessa aðila,, menn voru í meiri hættu innann liðsins en meðal óvina :shock: :shock: :shock: :shock: :shock: :shock: :shock:

Re: Ránið í Svíþjóð

PostPosted: Wed 23. Sep 2009 17:35
by hjolli
haha þetta er svo geðveik!! og líka ekki eitthverjar milljónir, heldur....

18 MILLJARÐAR

Re: Ránið í Svíþjóð

PostPosted: Wed 23. Sep 2009 19:45
by bimmer
hjolli wrote:haha þetta er svo geðveik!! og líka ekki eitthverjar milljónir, heldur....

18 MILLJARÐAR


Pffffff..... miklu stærri rán í gangi hér heima:

Re: Ránið í Svíþjóð

PostPosted: Wed 23. Sep 2009 20:08
by Alpina
bimmer wrote:
hjolli wrote:haha þetta er svo geðveik!! og líka ekki eitthverjar milljónir, heldur....

18 MILLJARÐAR


Pffffff..... miklu stærri rán í gangi hér heima:


Þetta er brandari......

mesta siðleysi EVER :shock: :shock: :shock: