Page 1 of 1

Pæling varðandi BMW 3 línuna..

PostPosted: Tue 01. Sep 2009 18:44
by Emil Örn
Ég afsaka þetta þráðaflóð (tveir þræðir í röð), en er það bara vitleysa í mér eða eru E46 bílarnir kraftminni en eldri og nýrri gerðir?

Því mér finnst stundum eins og þeir líti út fyrir að vera þunglegir og kraftlausir..
Og ástæða þessara spurningaþráða minna er einfaldlega sú að ég er að reyna að læra meira um BMW, enda bílar sem vert er að læra um. ;)

Re: Pæling varðandi BMW 3 línuna..

PostPosted: Tue 01. Sep 2009 18:46
by Hlynzi
Skelltu þér bara á wikipedia og google, nóg um allt þar.

Oftast ef nýrri árgerðir hafa verið að koma kraftlausari en sú gamla er oft um að kenna reglugerðum um mengun.

Re: Pæling varðandi BMW 3 línuna..

PostPosted: Tue 01. Sep 2009 18:51
by SteiniDJ
Hvað áttu við eldri og nýrri gerðir? Áttu þá E36 og E90 320i?

Ef svo er, þá var fyrsti E90 320i 148bhp, fyrsti E36 320i var 148bhp og fyrsti E46 320i var 148bhp. Allir um 9 - 10 sekúndur í 100.

Getur lesið meira hér: E36, E46 og E90 - ef þú átt við þrista.

Re: Pæling varðandi BMW 3 línuna..

PostPosted: Tue 01. Sep 2009 19:16
by IceDev
E36 = 9.9

E46 = 9.8

E90 = 9.5

Allir 320 4-door

Kom mér á óvart :O