bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Geimför yfir Reykjavík? https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=39478 |
Page 1 of 3 |
Author: | Thrullerinn [ Sat 29. Aug 2009 22:40 ] |
Post subject: | Geimför yfir Reykjavík? |
Ég og konan erum sannfærð að við sáum tvö geimför rétt norð-vestur frá Reykjavík núna rétt áðan. Tvö sérkennileg ljós komu í áttina til okkar, ekkert hljóð, og ferðuðust á sérkennilegan máta, síðan hurfu þau upp í himinhvolfið. Klukkan var um 22:15 þegar þetta gerðist. Ég og konan erum svolítið orðlaus yfir þessu, ath. ekkert áfengi var með í för.. Við hringdum í 112 og gaurinn sem svaraði klóraði sér í hausnum, ætlaði að gefa okkur samband við lögreglu en ég afþakkaði.. Er hægt að tjékka á flugturninum? veit einhver leið til að nálgast tracka eða eitthvað? |
Author: | jens [ Sat 29. Aug 2009 22:46 ] |
Post subject: | Re: Geimför yfir Reykjavík? |
Örugglega svolítð sláandi að upplifa eitthvað sem maður trúir ekki á en geta ekki útskýrt hvað maður upplifði. Spurning hvort aðrir hafi séð þetta. |
Author: | Jet [ Sat 29. Aug 2009 22:54 ] |
Post subject: | Re: Geimför yfir Reykjavík? |
Ég sá þetta líka. Þetta voru allavega engin blys sem ég hef séð áður. Mjög furðulegt. Staðbundin mjög björt ljós, sem dofnuðu á svo til sama tíma. Síðan það furðulegasta, annað "farið" færðist í átt til sjávar og svo hitt á eftir nokkru síðar. ![]() |
Author: | Thrullerinn [ Sat 29. Aug 2009 22:56 ] |
Post subject: | Re: Geimför yfir Reykjavík? |
Jet wrote: Ég sá þetta líka. Þetta voru allavega engin blys sem ég hef séð áður. Mjög furðulegt. Staðbundin mjög björt ljós, sem dofnuðu á svo til sama tíma. Síðan það furðulegasta, annað "farið" færðist í átt til sjávar og svo hitt á eftir nokkru síðar. ![]() Geggjað, við erum þá ekki klikkuð !!! Hringdu í 112 eða eitthvað ![]() |
Author: | Steini B [ Sat 29. Aug 2009 23:00 ] |
Post subject: | Re: Geimför yfir Reykjavík? |
![]() |
Author: | tomeh [ Sat 29. Aug 2009 23:16 ] |
Post subject: | Re: Geimför yfir Reykjavík? |
![]() |
Author: | siggir [ Sun 30. Aug 2009 00:05 ] |
Post subject: | Re: Geimför yfir Reykjavík? |
Hafið samband við Magnús Skarphéðinsson. Hann er formaður Félags áhugamanna um fljúgandi furðuhluti og safnar frásögnum af svona löguðu. Svo getur hann örugglega frætt ykkur eitthvað um þetta. |
Author: | Thrullerinn [ Sun 30. Aug 2009 00:11 ] |
Post subject: | Re: Geimför yfir Reykjavík? |
siggir wrote: Hafið samband við Magnús Skarphéðinsson. Hann er formaður Félags áhugamanna um fljúgandi furðuhluti og safnar frásögnum af svona löguðu. Svo getur hann örugglega frætt ykkur eitthvað um þetta. Slæ á þráðinn á morgun.. Það virðist ekkert vera í fréttunum um þetta.. Reyndar fór stóra landhelgisgæsluþyrlan í loftið rétt á eftir og stefndi í svipaða átt, hvort það hafi verið tengt þessu veit ég ekki. En það væri gaman að fá staðfestingu, sé reyndar að Jet hérna ofar á Cessnu flugvél þannig hann veit örugglega hvað ég á við þegar ég segi að þessi ljós ferðuðust mjög furðulega.. |
Author: | Steini B [ Sun 30. Aug 2009 00:17 ] |
Post subject: | Re: Geimför yfir Reykjavík? |
En ef þið pælið í því, hverjar líkurnar séu að það séu til einhver svona geimför Hverjar eru þá líkurnar á að þau séu með ljós? Og afhverju? Ef þetta eru svona háþróuð, afhverju þurfa þau að vera með ljós? ![]() |
Author: | Hemmi [ Sun 30. Aug 2009 01:14 ] |
Post subject: | Re: Geimför yfir Reykjavík? |
Voru þetta ekki bara gervihnettir, þeir geta verið mjög bjartir í smá stund þegar þeir lenda í sterkum sólargeisla frá þér séð. Ef þú ert með nákvæma staðsetningu þá er alveg hægt að tjekka á því. |
Author: | gunnar [ Sun 30. Aug 2009 01:19 ] |
Post subject: | Re: Geimför yfir Reykjavík? |
Þótt svona hlutir séu talsvert óraunhæfir þá hef ég alltaf jafn gaman af svona pælingum. Datt einmitt inn í X-Files seríurnar um daginn aftur. Bara í lagi ![]() |
Author: | Hemmi [ Sun 30. Aug 2009 01:34 ] |
Post subject: | Re: Geimför yfir Reykjavík? |
gunnar wrote: Þótt svona hlutir séu talsvert óraunhæfir þá hef ég alltaf jafn gaman af svona pælingum. Datt einmitt inn í X-Files seríurnar um daginn aftur. Bara í lagi ![]() Ég mæli með Þversögn Fermis: http://www.stjornuskodun.is/forsida/37- ... egn-fermis og þessari grein líka: http://www.stjornuskodun.is/forsida/37- ... -geimverur |
Author: | SteiniDJ [ Sun 30. Aug 2009 02:00 ] |
Post subject: | Re: Geimför yfir Reykjavík? |
Áhugavert. ![]() Annars fór ég út fyrir tveim kvöldum með stjörnusjónauka og nokkrum vinum mínum, rétt fyrir utan bæjarmörkin þar sem var engin lýsing. Við í borginni erum að missa af rosalega miklu útaf allri lýsingunni sem við notum. Bókstaflega 1000x fleiri og bjartari stjörnur var að sjá, endalaus gervitungl og meira að segja vetrarbrautin sjálf. Var að skoða Júpíter þegar það kom frekar bjart ljós í sjónaukann. Í fyrstu hélt ég að þetta væri flugvél, því þær voru margar að lenda í kringum miðnætti, en þetta var of bjart til þess og í fyrstu hreyfðist þetta ekkert. Svo fer þetta nú aðeins að hreyfa sig og stefnir 'ská-upp' og virðist fara sífelt hraðar og hraðar. Það var eins og hluturinn var að fara burt frá mér, því þegar hraðinn jókst, deyfðist ljósið. Á endanum hvarf þetta alveg. Líklegast bara gervihnöttur, en mega töff. Ég er a.m.k. alveg 100% á því að þetta hafi ekki verið flugvél. ![]() |
Author: | Hemmi [ Sun 30. Aug 2009 02:08 ] |
Post subject: | Re: Geimför yfir Reykjavík? |
SteiniDJ wrote: Áhugavert. ![]() Annars fór ég út fyrir tveim kvöldum með stjörnusjónauka og nokkrum vinum mínum, rétt fyrir utan bæjarmörkin þar sem var engin lýsing. Við í borginni erum að missa af rosalega miklu útaf allri lýsingunni sem við notum. Bókstaflega 1000x fleiri og bjartari stjörnur var að sjá, endalaus gervitungl og meira að segja vetrarbrautin sjálf. Var að skoða Júpíter þegar það kom frekar bjart ljós í sjónaukann. Í fyrstu hélt ég að þetta væri flugvél, því þær voru margar að lenda í kringum miðnætti, en þetta var of bjart til þess og í fyrstu hreyfðist þetta ekkert. Svo fer þetta nú aðeins að hreyfa sig og stefnir 'ská-upp' og virðist fara sífelt hraðar og hraðar. Það var eins og hluturinn var að fara burt frá mér, því þegar hraðinn jókst, deyfðist ljósið. Á endanum hvarf þetta alveg. Líklegast bara gervihnöttur, en mega töff. Ég er a.m.k. alveg 100% á því að þetta hafi ekki verið flugvél. ![]() Ég og nokkrir úr stjörnuskoðunarfélaginu förum reglulega út í Krýsuvík, mjög fínt að vera þar, það er malarplan þar hjá tveimur stórum turnum sem er fínt að vera og skoða himininn. |
Author: | SteiniDJ [ Sun 30. Aug 2009 02:15 ] |
Post subject: | Re: Geimför yfir Reykjavík? |
Hemmi wrote: SteiniDJ wrote: Áhugavert. ![]() Annars fór ég út fyrir tveim kvöldum með stjörnusjónauka og nokkrum vinum mínum, rétt fyrir utan bæjarmörkin þar sem var engin lýsing. Við í borginni erum að missa af rosalega miklu útaf allri lýsingunni sem við notum. Bókstaflega 1000x fleiri og bjartari stjörnur var að sjá, endalaus gervitungl og meira að segja vetrarbrautin sjálf. Var að skoða Júpíter þegar það kom frekar bjart ljós í sjónaukann. Í fyrstu hélt ég að þetta væri flugvél, því þær voru margar að lenda í kringum miðnætti, en þetta var of bjart til þess og í fyrstu hreyfðist þetta ekkert. Svo fer þetta nú aðeins að hreyfa sig og stefnir 'ská-upp' og virðist fara sífelt hraðar og hraðar. Það var eins og hluturinn var að fara burt frá mér, því þegar hraðinn jókst, deyfðist ljósið. Á endanum hvarf þetta alveg. Líklegast bara gervihnöttur, en mega töff. Ég er a.m.k. alveg 100% á því að þetta hafi ekki verið flugvél. ![]() Ég og nokkrir úr stjörnuskoðunarfélaginu förum reglulega út í Krýsuvík, mjög fínt að vera þar, það er malarplan þar hjá tveimur stórum turnum sem er fínt að vera og skoða himininn. Hvar er þetta plan nákvæmlega? Hef einmitt verið að velta því fyrir mér hvert gott væri að fara. |
Page 1 of 3 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |