Page 1 of 1

Einhver að vinna á bílaleigunum eða umboðunum hérna?

PostPosted: Wed 26. Aug 2009 00:00
by IngiSig
Sælir,
heyrði af því fyrr í sumar að m.a. HERTZ væri að fara selja flesta af sínum bílum í haust(rekstrarleigusamningar búnir) og það yrði einhver útsala hjá Toyota. Síðan sá ég þetta komment á bílasöluvef Barnalands í gær þar sem einhver var að segja fólki að bíða með bílakaup þangað til í sept;
[i]Eftir 11 daga byrjar fyrsta salan.
Er að vinna hjá einum af þessum aðilum og þekki nokkra hjá öðrum rekstraraðilum. Verið er að undirbúa söluna.
Í sumar var mjög mikið af notuðum bílum í eigu bílaumboðanna(Brimborg, Hekla, IH og Toyota) settir í útleigu. Einnig eru 2-4ja ára rekstrarleigusamningar á bílaleigubílum milli umboða og bílaleiga í mörgum tilfellum lokið og bílaleigur skila bílunum. Bæði bílaleigubílarnir og notaðir bílar bílaumboða sem fóru í útleigu í sumar verða seldir.
Lítið eknir (0-45.000km) gæðabílar verða þó ekki á útsölum spái ég(held að umboðin eigi þá til að selja á fullu verði)[/i]

Einhver sem veit meira um þessar útsölur eða hvort gaurinn sem skrifaði þetta sé að bullshita?

Re: Einhver að vinna á bílaleigunum eða umboðunum hérna?

PostPosted: Wed 26. Aug 2009 01:31
by Seli
Ég var að vinna á bílaleigu akureyrar í sumar og ég held að þeir setji suma bíla á sölu eftir sumarið eins og venjulega, flest í gegnum umboðin þá, en hinsvegar veit ég að þeir fengu fullt af bílum lánuðum eða leigða frá til dæmist Lýsingu og fleirum sem eiga lánabíla sem ekki tókst að borga af. Þeim verður líklega bara skilað þangað.

Re: Einhver að vinna á bílaleigunum eða umboðunum hérna?

PostPosted: Wed 26. Aug 2009 02:31
by gardara
Vilja menn virkilega kaupa notaða yarisa sem einhverjir útlendingar hafa verið að nota í torfæru?

Re: Einhver að vinna á bílaleigunum eða umboðunum hérna?

PostPosted: Wed 26. Aug 2009 11:49
by Seli
Það kæmi þér á óvart, þetta er flest selt mun ódýrara en sambærilegir bílar bara af því að þetta eru bílaleigu bílar. Veit samt ekki hvort að kaupandinn viti alltaf af því að þetta séu bílaleigubílar.

Re: Einhver að vinna á bílaleigunum eða umboðunum hérna?

PostPosted: Wed 26. Aug 2009 11:52
by SteiniDJ
Seli wrote:Það kæmi þér á óvart, þetta er flest selt mun ódýrara en sambærilegir bílar bara af því að þetta eru bílaleigu bílar. Veit samt ekki hvort að kaupandinn viti alltaf af því að þetta séu bílaleigubílar.


Ætti hann ekki að sjá það á eigandaferlinum eða óvenjulegum akstri m.v. aldur?

Re: Einhver að vinna á bílaleigunum eða umboðunum hérna?

PostPosted: Wed 26. Aug 2009 13:10
by Seli
jújú þetta er ekkert falið en held að það sé ekkert alltaf verið að láta vita af því. Hins vegar þá er ágætis viðhald á þessum bílum, tjékkað á olíu eftir hverja leigu og skipt um og lagað það sem er að, nema það sé eitthvað smávægilegt eins og smá rispa og slíkt. Yfirleitt eru það líka best förnu bílarnir eða þeir sem eru minnst notaðir yfir veturin sem eru seldir. Persónulega myndi ég samt ekki kaupa bílaleigu bíl nema með undartekningum. Sem dæmi þá fór kúpling í swift sem var keyrður tæpa 20þús km í sumar. Þannig að það er mismunandi vel farið með þá.

edit* tæpa 10þús km, nett innsláttarvilla*

Re: Einhver að vinna á bílaleigunum eða umboðunum hérna?

PostPosted: Wed 26. Aug 2009 13:17
by Bjarkih
Fyrsti bíllinn minn var bílaleigubíll, hyundai accent '97 var búinn að vera í leigu í 1 sumar þegar við keyptum hann og það var ekkert að honum, nema smá grótkast skemmd á húddinu.

Re: Einhver að vinna á bílaleigunum eða umboðunum hérna?

PostPosted: Wed 26. Aug 2009 13:34
by Aron M5
ég er sjálfur buinn að vera að vinna á sömu bílaleiguni í 5 ár S.S bilalegu og bílarnir hjá okkur seljast alltaf mjög vel
bara skil þeim hreinum og flottum inn


en eg var samt buinn að heyra að flest allar þessar stóru leigur ætluðu að eiga bílana því það verður nátturulega ekkert flutt inn af nýjum bilum

Re: Einhver að vinna á bílaleigunum eða umboðunum hérna?

PostPosted: Wed 26. Aug 2009 23:12
by Seli
Það er bara ekki pláss fyrir þessa u.þ.b 2500 bíla sem Bílaleiga Akureyrar á, þeir eru flestir í stanslausri leigu á sumrin þannig að það fer minna fyrir þeim en á veturna fara margir í geymslu eða sölu. Hins vegar er það virkilega mismunandi hvort að bílaleigu bíll sé vel eða illa farinn, sumir eru stanslaust leigðir út til einhverja sveppa sem ákveða að fara Kjöl á yaris :roll:

Re: Einhver að vinna á bílaleigunum eða umboðunum hérna?

PostPosted: Sat 29. Aug 2009 19:21
by Bartek
bilaleigu bilar i vinnuni hjá mer:D:p

Image
Image
Image
Image
[imghttp://images38.fotosik.pl/185/b2c3c064dc0969c6.jpg][/img]

:thup: :thup: