Page 1 of 2

hva.. 2007?

PostPosted: Tue 25. Aug 2009 12:47
by íbbi_
stolið af l2c
Image
Image
Image

eru þetta ekki turbo stútar á þeim svarta?

Re: hva.. 2007?

PostPosted: Tue 25. Aug 2009 12:51
by SteiniDJ
Ættli málningu verði skvett á þetta líka? :(

Re: hva.. 2007?

PostPosted: Tue 25. Aug 2009 14:43
by Thrullerinn
Ekki liði mér vel að aka um á svona í dag :?

Re: hva.. 2007?

PostPosted: Tue 25. Aug 2009 15:52
by MR.BOOM
Þetta eru sýningarbílar á vegum BB ,sem fara öllu líkindum út aftur...

Re: hva.. 2007?

PostPosted: Tue 25. Aug 2009 17:59
by bimmer
Thrullerinn wrote:Ekki liði mér vel að aka um á svona í dag :?


Æji erum við ekki komnir of langt í meðvirkninni?

Hvað með þá sem eru bara með sitt á þurru, fóru ekki út í 2007 stemmninguna og eiga
bara sína peninga, eru í sínum solid rekstri t.d.? Mega þeir ekki kaupa sér flotta bíla?

Þó svo að ég voni að 2007 geðveikin komi aldrei aftur þá megum við heldur ekki detta í
gamla gírinn sem var hér áður fyrr varðandi hatur á þeim sem eiga pening sem varð til
þess að menn þurftu að læðast með veggjum ef þeim vegnaði vel.

Re: hva.. 2007?

PostPosted: Tue 25. Aug 2009 18:04
by fart
Það má ekki gleyma því að einhverjum þarf að ganga vel, því það eru þeir sem skapa atvinnu fyirr hina, bæði með beinum ráðningum í fyrirtækjunum þeirra og í verktöku.

Re: hva.. 2007?

PostPosted: Tue 25. Aug 2009 18:07
by Alpina
Var að fá boðsmiða í pósti,, á þessa sýningu :thup:


TEAM BE er bara boðið :P

Re: hva.. 2007?

PostPosted: Tue 25. Aug 2009 18:20
by JonFreyr
Alpina wrote:Var að fá boðsmiða í pósti,, á þessa sýningu :thup:


TEAM BE er bara boðið :P



Mamma var einmitt ad fá sinn mida.

Re: hva.. 2007?

PostPosted: Tue 25. Aug 2009 18:23
by Hlynur___
JonFreyr wrote:
Alpina wrote:Var að fá boðsmiða í pósti,, á þessa sýningu :thup:


TEAM BE er bara boðið :P



Mamma var einmitt ad fá sinn mida.



:lol:

Re: hva.. 2007?

PostPosted: Tue 25. Aug 2009 18:31
by bimmer
Greinilega bara fyrir gamla fólkið......

Re: hva.. 2007?

PostPosted: Tue 25. Aug 2009 18:33
by SteiniDJ
bimmer wrote:
Thrullerinn wrote:Ekki liði mér vel að aka um á svona í dag :?


Æji erum við ekki komnir of langt í meðvirkninni?

Hvað með þá sem eru bara með sitt á þurru, fóru ekki út í 2007 stemmninguna og eiga
bara sína peninga, eru í sínum solid rekstri t.d.? Mega þeir ekki kaupa sér flotta bíla?

Þó svo að ég voni að 2007 geðveikin komi aldrei aftur þá megum við heldur ekki detta í
gamla gírinn sem var hér áður fyrr varðandi hatur á þeim sem eiga pening sem varð til
þess að menn þurftu að læðast með veggjum ef þeim vegnaði vel.


Algjörlega sammála þessu.

Re: hva.. 2007?

PostPosted: Tue 25. Aug 2009 18:54
by Hlynur___
Thrullerinn wrote:Ekki liði mér vel að aka um á svona í dag :?


hef nú ó sjaldan séð skeifu á gömlu fólki er ég ek framhjá þeim á fínum bílum

Re: hva.. 2007?

PostPosted: Tue 25. Aug 2009 19:11
by SteiniDJ
Hlynur___ wrote:
Thrullerinn wrote:Ekki liði mér vel að aka um á svona í dag :?


hef nú ó sjaldan séð skeifu á gömlu fólki er ég ek framhjá þeim á fínum bílum


Kallast öfund. :)

Re: hva.. 2007?

PostPosted: Tue 25. Aug 2009 20:17
by IvanAnders
bimmer wrote:
Thrullerinn wrote:Ekki liði mér vel að aka um á svona í dag :?


Æji erum við ekki komnir of langt í meðvirkninni?

Hvað með þá sem eru bara með sitt á þurru, fóru ekki út í 2007 stemmninguna og eiga
bara sína peninga, eru í sínum solid rekstri t.d.? Mega þeir ekki kaupa sér flotta bíla?

Þó svo að ég voni að 2007 geðveikin komi aldrei aftur þá megum við heldur ekki detta í
gamla gírinn sem var hér áður fyrr varðandi hatur á þeim sem eiga pening sem varð til
þess að menn þurftu að læðast með veggjum ef þeim vegnaði vel.


Þetta er náttúrulega alveg rétt hjá þér!
Maður hefur einnig orðið var við skítacomment þegar "venjulegir" bílar sjást í umferðinni með 13 miða... "djöfull er fólk ógeðslega heimskt að kaupa bíl núna!!!" "greinilega ekki kreppa hjá þessum"

Einhverjir verða að halda hagkerfinu gangandi, og þessir sömu aðilar eru að auka atvinnuöryggi margra :thup:

Re: hva.. 2007?

PostPosted: Wed 26. Aug 2009 15:29
by ValliFudd
Ég þarf að kíkja í póstkassann á eftir, ég átti Porsche og fæ alltaf einhverja pappírssnepla frá þeim. Klárlega framtíðarviðskiptavinur þar sem ég átti ónýtan 924, sem ég fékk gefins og gaf svo :lol: