Page 1 of 3

Vikuleg úttektarheimild úr hraðbanka á kreditkortum wtf???

PostPosted: Tue 18. Aug 2009 19:24
by gardara
Þannig er mál við vexti að ég er með fyrirframgreitt kreditkort, mastercard plús nánar tiltekið.
Kortið hefur alltaf reynst mér vel og ég ekki notað hefðbundið kreditkort eða debetkort þar sem ég á alltaf fyrir því sem ég kaupi mér og versla mikið erlendis frá.

Ég tók út einhvern 25þús kall úr hraðbanka í gær og þurfti svo að taka út annan 25þús kall í dag en fæ þá að kreditkortinu sé hafnað þótt það sé nóg inni á því.
Ég hringi í íslandsbanka þar sem kortið er skráð og þjónustufulltrúinn þar sér ekki afhverju ég get ekki tekið út, nema að það sé kannski sólarhrings heimild á þessu. En henni fannst það samt ólíklegt og hélt að ég ætti að geta tekið bara allt út sem ég hef sett inn á kortið.
Svo að ég fer þá í annan hraðbanka og sama sagan, ekki úttektarheimild.
Þá hringi ég í neyðarsíma mastercard og fæ þar upp gefið að það sé vikuleg 25þúsund króna úttektarheimild á öllum kreditkortum, ekki bara mínu heldur öllum og víst engin leið til þess að ná peningnum út af kortinu fyrr en á mánudaginn eftir viku.
Þar sem "kreditkort eru ekki til að nota í hraðbanka"

Mér finnst þetta mjööög svo undarlegt.
Hvernig í ósköponum getur þetta staðist?

Re: Vikuleg úttektarheimild úr hraðbanka á kreditkortum wtf???

PostPosted: Tue 18. Aug 2009 19:29
by IceDev
Nota bara debó í hraðbankann

Problem solved

Re: Vikuleg úttektarheimild úr hraðbanka á kreditkortum wtf???

PostPosted: Tue 18. Aug 2009 19:30
by gardara
IceDev wrote:Nota bara debó í hraðbankann

Problem solved


Ef ég ætti svoleiðis...
En nú er peningurinn fastur inni á kreditkortinu, ekki hægt að millifæra út af því og ekki hægt að taka út af því í hraðbanka :evil:

Re: Vikuleg úttektarheimild úr hraðbanka á kreditkortum wtf???

PostPosted: Tue 18. Aug 2009 19:30
by JonFreyr
Hef lent í thessu en eftir mikid rifrildi fékk ég minn vilja og heimildin var hækkud i 40000 á sólarhring. Thetta er kjánaleg regla sem getur verid hrikalega pirrandi en thetta er gert til ad vernda umrádamann kortsins, ef kortinu er stolid er hægt ad takmarka notkun thess í hradbonkum en hins vegar er hægt ad nota thad til ad versla gegnum netid. Thad skilur hins vegar eftir sig heimilisfang ef sá sem stal kortinu ætlar ad láta senda til sín vörur á thinn kostnad.

Thetta er semsagt ekki bara til ad pirra thig :) en getur hins vegar verid ótholandi hradahindrun thegar manni VANTAR pening.

Re: Vikuleg úttektarheimild úr hraðbanka á kreditkortum wtf???

PostPosted: Tue 18. Aug 2009 19:31
by SteiniDJ
En það er frítt að fá debit kort, right?

Re: Vikuleg úttektarheimild úr hraðbanka á kreditkortum wtf???

PostPosted: Tue 18. Aug 2009 19:31
by bebecar
Ég veit ekki betur en þetta hafi alltaf verið svona innanlands...

Re: Vikuleg úttektarheimild úr hraðbanka á kreditkortum wtf???

PostPosted: Tue 18. Aug 2009 19:36
by gardara
Sólarhrings heimild væri hægt að lifa með, en 25þúsund á viku er kjánalega lítið!

Ég hef aldrei fengið mér debetkort vegna þess að ég hef ekki séð tilganginn með því.
- Það tekur bara pláss í veskinu
- að nota það í verslun kostar (bara árgjald á kreditkortinu)
- það virkar ekki á netinu

En núna lítur víst út fyrir það að ég þurfi að fá mér debetkort, BARA til þess að geta tekið meira út úr hraðbanka :aww:

Re: Vikuleg úttektarheimild úr hraðbanka á kreditkortum wtf???

PostPosted: Tue 18. Aug 2009 19:37
by SteiniDJ
Færðu ekki staðgreiðsluafslátt með debetkortinu? Þó að þetta sé bara plúskort, þá hefði ég haldið að tölvan les þetta bara sem credit kort.

Re: Vikuleg úttektarheimild úr hraðbanka á kreditkortum wtf???

PostPosted: Tue 18. Aug 2009 19:46
by gardara
SteiniDJ wrote:Færðu ekki staðgreiðsluafslátt með debetkortinu? Þó að þetta sé bara plúskort, þá hefði ég haldið að tölvan les þetta bara sem credit kort.



Það gæti náttúrulega reyndar verið, en á móti kemur færslugjald sem ég borga.
Hef alveg ekkert verið að spara kreditkortið í eitthvað klinksmotterí þar sem verslunin borgar færslugjaldið en ekki ég.

Ætla að fara í bankann á morgun og rífast við þá, mig langar ekkert að þurfa að deila peningnum mínum á 2 kort :bawl:

Re: Vikuleg úttektarheimild úr hraðbanka á kreditkortum wtf???

PostPosted: Tue 18. Aug 2009 19:51
by arnibjorn
Af hverju þarftu að taka svona mikinn pening út?

Bara forvitinn :lol:

Re: Vikuleg úttektarheimild úr hraðbanka á kreditkortum wtf???

PostPosted: Tue 18. Aug 2009 20:08
by Thrullerinn
smá OT en EKKI fá ykkur American Express !!!

Er búinn að djöflast í að skrá þetta H#$"#%%" kort í tvo mánuði á paypal og ekki enn búinn að takast það!

Plús að margir taka ekki þessi kort þar sem þjónustugjöldin eru svo há!

Re: Vikuleg úttektarheimild úr hraðbanka á kreditkortum wtf???

PostPosted: Tue 18. Aug 2009 20:24
by gardara
arnibjorn wrote:Af hverju þarftu að taka svona mikinn pening út?

Bara forvitinn :lol:


Fjármagna eiturlyfjaneyslu.

Nei djók!

Borga mönnum fyrir svarta vinnu, get þar af leiðandi ekki millifært.

Re: Vikuleg úttektarheimild úr hraðbanka á kreditkortum wtf???

PostPosted: Tue 18. Aug 2009 20:28
by arnibjorn
Glæpamaður!!

Re: Vikuleg úttektarheimild úr hraðbanka á kreditkortum wtf???

PostPosted: Tue 18. Aug 2009 20:41
by gstuning
skrýtið ég get tekið út 100pund á hverjum degi með svona korti ekkert mál.

Re: Vikuleg úttektarheimild úr hraðbanka á kreditkortum wtf???

PostPosted: Tue 18. Aug 2009 20:49
by gardara
gstuning wrote:skrýtið ég get tekið út 100pund á hverjum degi með svona korti ekkert mál.



íslensku korti?