Þannig er mál við vexti að ég er með fyrirframgreitt kreditkort, mastercard plús nánar tiltekið.
Kortið hefur alltaf reynst mér vel og ég ekki notað hefðbundið kreditkort eða debetkort þar sem ég á alltaf fyrir því sem ég kaupi mér og versla mikið erlendis frá.
Ég tók út einhvern 25þús kall úr hraðbanka í gær og þurfti svo að taka út annan 25þús kall í dag en fæ þá að kreditkortinu sé hafnað þótt það sé nóg inni á því.
Ég hringi í íslandsbanka þar sem kortið er skráð og þjónustufulltrúinn þar sér ekki afhverju ég get ekki tekið út, nema að það sé kannski sólarhrings heimild á þessu. En henni fannst það samt ólíklegt og hélt að ég ætti að geta tekið bara allt út sem ég hef sett inn á kortið.
Svo að ég fer þá í annan hraðbanka og sama sagan, ekki úttektarheimild.
Þá hringi ég í neyðarsíma mastercard og fæ þar upp gefið að það sé vikuleg 25þúsund króna úttektarheimild á öllum kreditkortum, ekki bara mínu heldur öllum og víst engin leið til þess að ná peningnum út af kortinu fyrr en á mánudaginn eftir viku.
Þar sem "kreditkort eru ekki til að nota í hraðbanka"
Mér finnst þetta mjööög svo undarlegt.
Hvernig í ósköponum getur þetta staðist?





